Fréttablaðið - 19.11.2009, Blaðsíða 81

Fréttablaðið - 19.11.2009, Blaðsíða 81
FIMMTUDAGUR 19. nóvember 2009 61 Sturtuhaus, barki og festing 3.490 FÓTBOLTI Knattspyrnustjórinn Paul Hart hjá Portsmouth bindur mikl- ar vonir við að stutt sé í að Her- mann Hreiðarsson snúi aftur til leiks í ensku úrvalsdeildinni. Hermann hefur ekkert getað leikið með liðinu til þessa á tíma- bilinu eftir að hafa rifið sin í il á æfingu með landsliðinu fyrir leik gegn Noregi í upphafi september. Hermann spilaði aftur á móti með Portsmouth í æfingarleik gegn Cheltenham í fyrrakvöld sem fór fram fyrir luktum dyrum og komst í gegnum rúman klukku- tíma án þess að kenna sér meins. Hart segir að betur komi í ljós á næstu sólarhringum eða svo hvernig staðan verði á Hermanni. „Fyrir það fyrsta er frábært að fá Hermann aftur en við sjáum það betur næstu daga hvort hann verði í lagi,“ segir Hart en Portsmouth hefur átt erfitt uppdráttar í upp- hafi tímabilsins og er sem stendur í botnsæti deildarinnar. Mikil óvissa var í kringum Ports- mouth síðasta sumar vegna breyt- inga á eignarhaldi félagsins og það hafði slæm áhrif á liðið innan vall- ar. Portsmouth tapaði sjö fyrstu leikjum sínum í deildinni, sem er versta byrjun ensks félags í efstu deild síðan Manchester United tapaði tólf fyrstu leikjum sínum haustið 1930. Portsmouth hefur síðan verið að rétta úr kútnum og hefur nú unnið tvo leiki af síðustu fimm, gert eitt jafntefli og tapað tveimur. Hart telur að endurkoma Hermanns muni hafa jákvæð áhrif á gengi liðsins. „Hermann býr yfir eldmóði á við sautján ára ungling á vellin- um. Hann er bara eins og eitthvert dýr og reynsla hans mun einnig verða okkur mjög dýrmæt. Það er einmitt ástæðan fyrir því að við buðum honum nýjan samning eftir síðasta tímabil,“ segir Hart í við- tali við Portsmouth News. Hart kveðst þó enn vera óviss um hvort Hermann geti spilað gegn Stoke á sunnudaginn en ljóst er að stutt er í að Eyjapeyinn fari að hrella sóknarmenn ensku úrvalsdeildarinnar. - óþ Paul Hart getur ekki beðið eftir að Hermann Hreiðarsson verði leikfær á ný: Frábært að fá Hermann aftur ÞRAUTREYNDUR Knattspyrnustjórinn Paul Hart hefur miklar mætur á Hermanni Hreiðarssyni og hlakkar til þess að hann verði leikfær á ný. NORDIC PHOTOS/AFP HNEFALEIKAR Samkvæmt breskum fjölmiðlum í gær er hnefaleika- kappinn Ricky Hatton í viðræð- um við Juan Manuel Marquez um bardaga í léttveltivigt næsta sumar. Hinn 31 árs gamli Hatton hefur til þessa verið hljóður um mögu- lega endurkomu í hringinn eftir niðurlægjandi tap gegn Manny Pacquiao síðasta sumar og hefur í millitíðinni einbeitt sér að því að koma ungum hnefaleikamönnum frá heimaborg sinni Manchester á framfæri. Hinn 36 ára gamli Marquez tapaði aftur á móti gegn Floyd Mayweather Jr. í síðasta bardaga sínum í september síðastliðnum. Talið er að þeir félagar muni mætast á Borgarleikvanginum í Manchester, sem er heimavöllur enska úrvalsdeildarfélagsins Manchester City, en Hatton er einmitt forfallinn aðdáandi félagsins. - óþ Hatton líklega að snúa aftur: Mætast Hatton og Marquez? HATTON Lætur líklega ljós sitt skína næsta sumar. NORDIC PHOTOS/AFP FÓTBOLTI Samkvæmt heimildum Daily Telegraph munu forráða- menn Chelsea og Atletico Madrid vera búnir að ákveða að hittast á fundi strax eftir helgi til þess að ræða félagaskipti framherjans Sergio Aguero. Hinn 21 árs gamli landsliðsmaður Argentínu er einnig sagður áhugasamur að ganga í raðir Chelsea en hann viðurkenndi í nýlegu viðtali við spænska dagblaðið AS að hann væri ánægður með að vera orð- aður við félög á borð við Chelsea. Lundúnafélagið þarf líklega að punga út í kringum fjörutíu millj- ónum punda fyrir leikmanninn. Það yrði nýtt met hjá enskum félögum þar sem Robinho er dýr- astur eins og staðan er núna en hann kostaði Manchester City 32,5 milljónir punda í september árið 2008. - óþ Rætt um framtíð Aguero: Chelsea vill kaupa Aguero ÖFLUGUR Sergio Aguero myndi styrkja sóknarlínu Chelsea mikið. NORDIC PHOTOS/AFP
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.