Fréttablaðið - 19.11.2009, Blaðsíða 78

Fréttablaðið - 19.11.2009, Blaðsíða 78
58 19. nóvember 2009 FIMMTUDAGUR sport@frettabladid.is HANDBOLTI Landsliðsþjálfarinn Guðmundur Guðmundsson hefur verið að gera hreint út sagt frá- bæra hluti sem þjálfari GOG Svendborg í dönsku úrvalsdeild- inni í handbolta en liðið er í öðru sæti eins og stendur. Til að undirstrika gott gengi liðsins undir stjórn Guðmundar þá er nærtækast að nefna stór sigur GOG í fyrrakvöld þegar liðið tók topplið deildarinnar og núverandi meistara í KIF Kolding í kennslustund og vann ellefu marka sigur, 35-24. „Þetta var frábær leikur af okkar hálfu. Það liggur við að fyrri hálfleikur- inn hafi verið gallalaus og það er ekki oft sem það gerist en stað- an var 18-11 í hálfleik. Kolding er náttúrulega gríðarlega sterkt lið og hefur til að mynda verið að standa sig mjög vel í Meistara- deildinni þar sem liðið hefur gert jafntefli við bæði Kiel og Ademar León,“ segir Guðmundur. Margir óvissuþættir hafa verið í kringum GOG á þessari leiktíð vegna fjárhagsörðugleika og meiðsla lykilmanna enda var liðinu heldur ekki spáð sérlega góðu gengi fyrir leiktíðina. „Þetta er búið að vera mjög erfitt að mörgu leyti. Bæði misstum við Snorra Stein frá okkur fyrir tímabilið og misstum svo tvo lykil- menn í meiðsli auk þess að vera bara nýbúnir að endurheimta Ásgeir Örn úr meiðslum. Síðan eru það fjárhagsörðugleikarnir sem hafa verið að plaga okkur og þau mál eru enn óleyst. Þó svo að fjárfestar hafi komið er fjárhagsstaða liðsins með þeim hætti að þetta er erfitt. Við höfum því þurft að aðskilja fjár- hagsvandamálin utan vallar frá handboltahliðinni innan vallar og menn hafa gert það mjög vel því þetta er ekkert auðvelt. Við vonumst hins vegar til þess að komast í gegnum tímabilið með ákveðnum hætti upp á framhald- ið að gera,“ segir Guðmundur og viðurkennir að liðið eigi á hættu á að missa lykilleikmenn frá sér ef fjárhagsvandamálin leysast ekki. - óþ Guðmundur Guðmundsson og lærisveinar rústuðu Danmerkurmeistarana: Frábær leikur af okkar hálfu ÁRANGUR Guðmundur Guðmundsson hefur gert góða hluti með GOG. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN HANDBOLTI Landsliðsmaðurinn Ásgeir Örn Hallgrímsson hefur leikið vel með liði sínu GOG Svend- borg eftir að hafa snúið aftur úr erfiðum hnémeiðslum sem héldu honum utan vallar í tæpt hálft ár. Ásgeir Örn hóf endurkomu sína sem kunnugt er með stæl í byrjun nóvember þegar hann tryggði GOG 24-23 sigur gegn Bjerringbro- Silkeborg með sigurmarki á loka- sekúndunni. GOG tapaði reyndar næsta leik gegn fallbaráttu liðinu Århus GF en fékk svo heldur betur uppreisn æru í fyrrakvöld þegar liðið vann ellefu marka stór- sigur, 35-24, gegn toppliðinu KIF Kolding þar sem Ásgeir Örn skoraði þrjú mörk. „Þetta var helvíti þétt hjá okkur og virkilega vel gert. Við bara völtuðum yfir þá eins og sagt er. Þetta er vissulega sterk yfirlýsing sem við erum að senda með þessum sigri en við töpuðum reyndar fyrir liðinu í næst- neðsta sæti í umferðinni þar á undan. Þannig að það má kannski segja frekar að við séum að senda frá okkur svona blendin skilaboð. Við verðum samt að reyna að byggja á þess- um góða sigri í síðasta leik. Það er það sem þetta snýst um,“ segir Ásgeir Örn. Ásgeir Örn kveðst eðlilega ekki vera kominn í sitt gamla form enn eftir langvarandi meiðsli en er bjartsýnn á að þau séu nú að baki. „Mér finnst ég náttúrlega ekki vera alveg sami maður og fyrir meiðslin og það er ekkert óeðlilegt miðað við hvað ég var lengi frá. Maður er ekki jafn sterkur og ekki jafn snöggur og áður og á enn smá í land með þá þætti en það kemur allt á endanum. Ég fór í aðgerð á hnénu og finn alveg fyrir því en það er ekkert sem ég hef áhyggjur af eða er eitthvað óeðlilegt. Maður þarf bara að passa sig og hugsa vel um þetta svo þetta taki sig ekki upp aftur,“ segir Ásgeir Örn. Hann er harðákveðinn í því að vera klár í slaginn með íslenska landsliðinu fyrir EM í Austur- ríki í janúar. „Ef ég verð heill áfram þá stefni ég klárlega á að vera með lands- liðinu á EM en það er auðvit- að h lutverk Guðmundar [Guðmundssonar, landsliðsþjálfara og þjálfara GOG] að velja liðið. Ég hef svo sem ágætis glugga til að sýna mig fyrir honum,“ segir Ásgeir Örn á léttum nótum. omar@ frettabladid.is Stefni klárlega á að vera með á EM Ásgeir Örn Hallgrímsson hefur komið sterkur til baka eftir að hafa verið meiddur í næstum hálft ár. MIKILVÆGUR Ásgeir Örn Hallgrímsson er mikilvægur hlekkur í liði GOG en liðið er í toppbaráttu dönsku úrvalsdeildarinnar. Ertu með flensu... ...eða kvef? Samningur Viktors Bjarka Arnarssonar við Lilleström í Noregi rennur út í næsta mánuði og verður honum þá frjálst að finna sér nýtt félag. Hann hefur reyndar verið á láni hjá Nybergsund sem leikur í norsku B-deildinni en honum finnst ekki líklegt að hann verði áfram þar. „Ég held að fótboltinn sem er spilaður í Svíþjóð og Danmörku henti mér betur,“ segir Viktor Bjarki við Fréttablaðið. „Hér í Noregi er meira um „kick and run“ og mikil hlaup. Meiri áhersla er lögð á að spila boltanum í hinum löndunum og það hentar mér betur.“ Hann segir málið allt á frumstigi og því enn mikil óvissa um framhaldið. „Það eru þó einhver lið sem hafa sýnt manni áhuga en markaðurinn hefur auðvitað breyst mikið að undanförnu og félögin hafa minna á milli handanna. Ég ætla mér þó að vera áfram á Norðurlöndunum og tel nánast engar líkur á því að ég komi aftur heim til Íslands eins og er. Ég vil þó ekki útiloka neitt eins og er.“ Viktor Bjarki fór frá Víkingi til Lilleström fyrir þremur árum. Hann lenti hins vegar í erfiðum meiðslum og fékk lítið sem ekkert að spila með liðinu. Hann var lánaður til KR í fyrra og svo til Nybergsund í ár. „Það háði mér líka að þjálfarinn sem keypti mig, Uwe Rösler, var rekinn viku eftir að ég kom til félagsins. Ég var svo einfaldlega ekki í myndinni, hvorki hjá Tom Nordlie né Henning Berg sem hafa þjálfað Lilleström síðan þá. Maður verður bara að bíta í það súra epli en ég tel líklegt að ég hefði fengið meira að spila ef Uwe hefði haldið áfram.“ Hann segist ekki mótfallinn því að spila í annað hvort sænsku eða dönsku B-deildinni. „Ég geri mér grein fyrir því að ég er ekki að fara að labba inn í stór lið eins og Bröndby eða FCK. Ég þarf fyrst og fremst á því að halda að komast að hjá liði þar sem ég nýt trausts þjálfarans og fæ nóg að spila. Ég vil sýna og sanna að það býr enn mikið í mér – en þó fyrst og fremst fyrir sjálfum mér.“ VIKTOR BJARKI ARNARSSON: SAMNINGSLAUS OG LEITAR AÐ NÝJU FÉLAGI Á NORÐURLÖNDUNUM Nánast engar líkur á því að ég komi heim strax > Dæma í Íslendingaslag Handboltadómararnir Ingvar Guðjónsson og Jónas Elíasson fá það verðuga verkefni að dæma Íslendingaslag Amicitia Zürich frá Sviss og Kiel frá Þýskalandi í Meistaradeild Evrópu um næstu helgi en Íslendingar leika með báðum liðum. Kári Kristján Kristjánsson leikur með Amicitia en Aron Pálmarsson með Kiel. Þjálfari síðarnefnda liðsins er Alfreð Gíslason. Þessi lið mættust í Þýskalandi um síðustu helgi og þá vann Kiel stórsigur, 42-24.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.