Fréttablaðið - 19.11.2009, Blaðsíða 4
4 19. nóvember 2009 FIMMTUDAGUR
BORGARMÁL „Mér var tekið eins og
ég hefði uppgötvað fjársjóð þegar
ég kom með þetta blaðadrasl,“
segir Eiríkur Símon Eiríksson,
fyrrverandi trésmiður og starfs-
maður borgarinnar, sem lét af
því verða í gær að koma í vörslu
borgar innar skjölum sem hann
rakst á fyrir tilviljun.
Svanhildur Bogadóttir borgar-
skjalavörur segir að gögnin sem
Eiríkur Símon færði Borgar-
skjalasafni séu ómetanlegar heim-
ildir um upphaf og rekstur Nýja
Bíós, sem stofnað var í Reykja-
vík árið 1912. „Við skráum þetta
og gögnin verða strax aðgengileg
fyrir þá sem vilja skoða,“ segir
hún.
Í gögnunum eru handskrifað-
ar fundagerðarbækur frá 1914
til ársins 1944. Þá er þarna að
finna undirrituð lög hlutafélags-
ins frá 1912 og afrit af leyfi sýslu-
manns til að vera með kvikmynda-
sýningar í húsnæði Nýja Bíós frá
sama ári, auk efnahagsbókar frá
1916 til 1928.
„Það var nú eiginlega óafvitandi
sem ég passaði upp á þetta, meðan
ég geymdi það sem lengst,“
segir Eiríkur Símon. Árið 1999
vann hann við að setja saman
plasttunnur fyrir borgina, en eldri
járntunnum var komið á haugana.
Eiríkur er 79 ára, en var þarna í
einu af sínum síðustu verkum fyrir
borgina.
Í einni haugaferðinni rakst hann
á tvo stóra filmukassa sem hann
sá að mætti nýta í annað. „Ég var
þarna með Sveini Jósepssyni og
það var nú eiginlega hann sem
vildi hirða kassana. Við vorum þá
með garðrækt og kartöfluskúra
þar sem við töldum að þeir gætu
nýst. Þangað fóru kassarnir, en
gleymdust svo eiginlega.“
Þarna fyrir áratug segist Eiríkur
ekkert hafa tekið eftir gögnunum
sem voru í öðrum kassanum. „En
svo var það fyrir einu og hálfu til
tveimur árum að ég var að losa
mig við garðræktina og rakst á
kassana. Þá ætlaði ég að nota uppi
í sumarbústað uppi á lofti, því hel-
vítis músin komst þar inn og ég
náði henni aldrei út aftur.“
Þegar Eiríkur ætlaði af stað
með kassana heyrði hann hringla
í öðrum og rakst þar á skjölin.
„Fyrst ætlaði ég nú bara að henda
þessu, en sá þá að þarna stóð stofn-
fundur á einu skjalinu.“ Eiríkur
gekk því frá gögnunum í poka og
fór með heim tíl sín og upp í hillu.
„Þar gleymdist þetta nú bara þang-
að til í vor, en svo varð alltaf eitt-
hvað til þess að ég komst ekki af
stað með þetta fyrr en núna.“
olikr@frettabladid.is
Ómetanleg gögn um Nýja
Bíó fundust á haugunum
Fyrir áratug hirtu tveir starfsmenn borgarinnar tvo filmukassa af haugunum. Nokkru síðar uppgötvuðust
í þeim gögn sem varða sögu Nýja Bíós í Reykjavík. Gögnunum var komið í vörslu Borgarskjalasafnsins.
HEIMILDIR Meðal skjala Nýja Bíós sem
forðað var frá glötun eru fundagerðar-
bækur, lög félagsins og fleira.
MYND/BORGARSKJALASAFN
GLUGGAÐ Í GÖGNIN Eiríkur Símon Eiríksson, trésmiður og fyrrverandi borgar-
starfsmaður, og Svanhildur Bogadóttir borgarskjalavörður glugga í gögn frá árdögum
Nýja Bíós í Reykjavík sem Eiríkur Símon bjargaði frá glötun. MYND/BORGARSKJALASAFN
Í riti Félags sýningarmanna sem finna má á vef Rafiðnaðarsambandsins, raf.
is, kemur fram að Nýja Bíó h/f hafi verið stofnað í Reykjavík 12. apríl árið
1912 af bræðrunum Sturlu og Friðriki Jónssonum, Sveini Björnssyni, Pétri Þ.
J. Gunnarssyni, Ólafi Johnsson, Carl Sæmundssyni og Pétri Brynjólfssyni.
Fyrsta kvikmyndasýning á vegum félagsins fór fram í austursal Hótels
Íslands 4. júlí 1912. Í maí 1919 var hafist handa við byggingu nýs húsnæð-
is fyrir bíóið við Austurstræti í miðbæ Reykjavíkur. Húsið þótti bylting í
aðstöðu fyrir bíóhús og voru margvíslegar aðrar sýningar þar líka. Bíórekstri
var svo hætt í húsinu fyrir lok níunda áratugarins, en seinustu árin voru
ýmsir skemmtistaðir til húsa í Nýja Bíói, svo sem Tunglið. Húsið skemmdist
síðan illa í bruna 1998 og var síðar rifið.
ÁGRIP AF SÖGU NÝJA BÍÓS
ALÞINGI Árni Þór Sigurðsson, for-
maður þingflokks VG, vill að lög
verði sett um launabónusa. Slík
lagasetning sé óhjákvæmileg í
tiltektinni eftir hrunið.
Á þingfundi í gær ræddi Árni
um tíðindin af milljónakröfum
fyrrverandi yfirmanna Lands-
bankans í þrotabú hans. Kvað
hann þær úr takti við þau gildi
sem þjóðfundurinn á laugardag
lagði til grundvallar endurreisn
sam félagsins en þau eru heiðar-
leiki, réttlæti, jafnrétti og virð-
ing. Hvatti Árni til samstöðu um
lög sem hömluðu ofurbónusa-
stefnu í anda 2007. - bþs
Kröfur bankafólksins átaldar:
Vill lög gegn
ofurbónusum
ATVINNUMÁL Árni Páll Árnason,
félags- og tryggingamálaráðherra,
segir ekki mögulegt að fjölga starfs-
fólki Vinnumálastofnunar í takt við
óskir þeirra sem þar starfi. Til þess
sé ekki til fjármagn. „Það er hins
vegar óskastaðan og við vinnum að
því með öllum ráðum að skapa það
svigrúm. Við verðum hins vegar
að starfa innan ramma fjárlaga
og hugmyndirnar sem við vinnum
með þessa dagana er að veita hluta
af bótagreiðslum í virkni- og náms-
úrræði. Við berum sem samfélag
ábyrgð á því að viðhalda virkni
þessa fólks og nýta krafta þess
og teljum það skyldu okkar. Að
óbreyttu endum við í ógöngum.“
Árni Páll segir að á sama tíma og
lítið svigrúm sé til aðgerða sé verið
að stokka spilin upp á nýtt. „Sér-
staklega erum við að vinna að hug-
myndum sem snerta yngsta hópinn
og þar þurfum við án efa fjölþætt
og flókin úrræði. Við erum með
áætlanir um að nýta allt nærsam-
félagið í þetta verkefni. Við þurf-
um að semja við stéttarfélögin um
að styðja sína félaga og bjóða fólki
í viðkomandi starfsgrein úrræði
á þeirra vegum. Við þurfum að fá
kirkjuna til leiks og Rauða kross-
inn svo dæmi sé tekið. Það er gríð-
arlegt verkefni fram undan. Önnur
lönd búa svo vel að geta veitt mikl-
um fjármunum til að leysa þennan
vanda. Það höfum við ekki. Í stað-
inn mætum við vandanum með
hugmyndaauðgi.“ - shá
Félagsmálaráðherra segir ekki hægt að fjölga starfsfólki Vinnumálastofnunar:
Óskastaðan er að fjölga fólki
ÁRNI PÁLL ÁRNASON Vegna fjárskorts
er ekki hægt að fjölga starfsmönnum
Vinnumálastofnunar í takt við óskir
þeirra sem þar starfa. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
BRETLAND, AP Hægt væri að
hægja á hlýnun jarðar með því
að dreifa ókeypis smokkum og
fræða fólk um getnaðarvarnir,
segir í nýrri skýrslu frá Mann-
fjöldasjóði Sameinuðu þjóðanna,
UNFPA.
Með því einfaldlega að hægja
á fjölgun mannkyns er hægt að
draga úr útblæstri gróðurhúsa-
lofttegunda.
„Konur sem hafa aðgang
að kynheilbrigðisþjónustu,“
segir í skýrslunni, „hafa lægri
fæðingar tíðni, sem stuðlar að
hægari vexti útblásturs gróður-
húsalofttegunda.“
- gb
Mannfjöldasjóður SÞ:
Smokkar vinna
gegn hlýnun
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Eindhoven
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
21°
18°
12°
12°
13°
13°
17°
11°
11°
22°
14°
20°
15°
28°
9°
15°
15°
10°
Á MORGUN
Fremur hæg breytileg átt.
Strekkingur á V-fjörðum.
14
LAUGARDAGUR
Strekkingur sunnan- og
vestantil, annars hægari.
3
3 2
3
4
8
5
7
4
1
5
16
18
15 13
12
11
10
11
13
13
HLÝNAR Það
hlýnar á landinu í
dag og má gera ráð
fyrir fremur mildum
dögum miðað við
árstíma fram yfi r
helgi. Það verður
heldur vindasamt
hjá okkur í dag en
svo dregur úr vindi
um austanvert
landið. Á Vestfjörð-
um má búast við
að blási nokkuð
næstu daga.
5
2 2
5
6
2 2
3
67
Ingibjörg
Karlsdóttir
Veður-
fréttamaður
KÍNA, AP Bæði Barack Obama
Bandaríkjaforseti og Eric Holder
dómsmálaráðherra hafa varið þá
ákvörðun að flytja hóp fanga frá
Guantanamo-búðunum til Banda-
ríkjanna þar sem réttað verði yfir
þeim.
Obama, sem er á ferðalagi í
Asíu, sagðist sannfærður um að
Khalid Sheikh Mohammed, sem
talinn er hafa skipulagt hryðju-
verkin í Bandaríkjunum 11. sept-
ember 2001, yrði dæmdur sekur.
Holder, sem ræddi við blaða-
menn í Washington, tók fram
að jafnvel þótt grunaður
hryðjuverka maður frá
Guantanamo yrði sýknaður yrði
hann ekki látinn laus í Banda-
ríkjunum. - gb
Obama treystir dómstólum:
Fullviss um að
Khalid fái dóm
Ranghermt var í Fréttablaðinu í gær
að Arnar Arnarson, sem starfaði sem
verðbréfamiðlari hjá Landsbanka
Íslands, hefði gert 167 milljóna kröfu
í þrotabú bankans. Hið rétta er að
krafa Arnars nemur 67 milljónum
króna.
LEIÐRÉTTING
GENGIÐ 18.11.2009
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
237,5414
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
123,20 123,78
207,01 208,01
183,95 184,97
24,718 24,862
22,053 22,183
18,031 18,137
1,3811 1,3891
197,31 198,49
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
– fullt hús jólagjafa