Fréttablaðið - 19.11.2009, Qupperneq 8
8 19. nóvember 2009 FIMMTUDAGUR
1 Hvenær var Félag íslenskra
hjúkrunarfræðinga stofnað?
2 Hvaða íslenska tónlistarkona
semur lag fyrir teiknimynd um
Múmínálfana?
3 Hvaða samtök gefa út lista
um spillingarstig ríkja heims?
SVÖRIN ERU Á SÍÐU 66
VIRKJANIR Til að tryggja 360 þúsund tonna
álver Norðuráls í Helguvík þarf 625 mega-
wött (MW) af orku. Óljóst er hvaðan sú orka
kemur, en fyrirtækið hefur samið við HS
Orku og Orkuveitu Reykjavíkur um öflun
hennar. Þar á bæ er aðeins tryggð orka fyrir
tveimur af þremur áföngum álversins.
Orkuveita Reykjavíkur hefur á borðinu
þrennar framkvæmdir sem umhverfismati er
lokið á: fimmta áfanga Hellisheiðarvirkjunar,
Hverahlíðarvirkjun og Bitruvirkjun. Þar að
auki hefur matsáætlun verið samþykkt fyrir
virkjun við Gráuhnúka. Samtals gefa þessar
virkjanir af sér 360 MW.
HS Orka hefur fyrirhugað stækkun Reykja-
nesvirkjunar um 100 MW. Umhverfismat
hefur farið fram, en hvorki er komið virkjana-
leyfi frá Orkustofnun né heimild skipulags-
yfirvalda í Reykjanesbæ og Grindavík. Að
auki eru hugmyndir um ýmsa virkjanamögu-
leika, sumir hverjir mjög skammt á veg
komnir, sem saman eiga að gefa 200 til 300
MW.
Eftir stendur að einungis er búið að full-
tryggja 460 MW af orku fyrir álverið í Helgu-
vík, sem framkvæmdir eru þegar hafnar við.
Norðurál sótti fyrst um starfsleyfi fyrir 250
þúsund tonna álveri, en orkuþörf þess nemur
435 MW.
Ágúst Hafberg, hjá Norðuráli, segir að ætl-
unin sé að byggja álverið upp í fjórum níutíu
þúsund tonna áföngum. Hagkvæmast sé fyrir
fyrirtækið að tólf til fimmtán mánuðir líði á
milli þess sem áfangarnir eru teknir í notkun.
„Við viljum vera þokkalega vissir um að við
fáum alla áfangana.“
Fyrirtækið hafi gert samning við HS Orku
og Orkuveituna um orkuöflun og koma verði í
ljós hversu hratt og vel gengur að ná í orkuna.
Í Norðuráli séu menn bjartsýnir á að það
takist.
Auk álversins eru nokkrar orkufrekar
framkvæmdir fyrirhugaðar á Reykjanesi,
sem óljóst er hvaðan muni fá orku. Þetta
eru netþjónabú í Sandgerði og annað á
Keflavíkur flugvelli, kísilmálmverksmiðja í
Helguvík og framleiðsluaukning álversins í
Straumsvík. Samanlögð orkuþörf þeirra er
270 til 370 MW.
Sé álverið reiknað með er orkuþörfin á
svæðinu 895 til 995 MW. Gangi allar hug-
myndir HS Orku eftir, sem allsendis er óvíst,
sjáum við fram á 760 til 860 MW af orku.
kolbeinn@frettabladid.is
Ekki trygg orka fyrir álverið
Ekki er til trygg orka fyrir 360 þúsund tonna álveri í Helguvík sem framkvæmdir eru þegar hafnar við.
Orka er til fyrir tveimur áföngum af þremur. Óljóst hvernig full orka verður tryggð sem og í annan iðnað.
HELGUVÍK Framkvæmdir eru hafnar við álver í Helguvík, en óljóst er hvaðan orkan í það mun koma. Allar tölur í
fréttinni eru fengnar úr gögnum Orkuveitu Reykjavíkur og HS Orku til Skipulagsstofnunar vegna mats á Suðvestur-
línu. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Hraðallinn brátt í notkun
Öreindahraðall kjarnvísindastofnunar-
innar CERN í Sviss verður brátt tekinn í
notkun á ný eftir að hafa verið í viðgerð
í meira en ár. Bilun varð í hraðlinum
þegar hann var fyrst tekinn í notkun
með mikilli viðhöfn á síðasta ári.
SVISS
25 TÍMA AÐGERÐ Stúlkunum verður
haldið sofandi næstu daga. NORDICPHOTOS/AFP
ÁSTRALÍA, AP Samvaxnir tvíburar,
tveggja ára stúlkur frá Bangla-
dess, voru aðskildir með skurð-
aðgerð í Melbourne í Ástralíu.
Aðgerðin tók alls 25 klukkustund-
ir og tóku sextán skurðlæknar
þátt í henni ásamt hjúkrunar-
fólki.
Stúlkurnar voru samvaxnir á
höfði. Hluti af æðakerfi þeirra,
höfuðkúpu og heilavef var sam-
eiginlegur.
Óljóst er hvort stúlkurnar
hafa beðið heilaskaða af aðgerð-
inni. Þeim verður haldið sofandi í
nokkra daga.
Fyrir fram voru taldar
helmings líkur á heilaskaða. - gb
Samvaxnir tvíburar:
Aðskildir með
skurðaðgerð
Verkefnisstjórnin:
Bergur Elías Ágústss. f.h. Norðurþings
Margrét Hólm Valsd. f.h. Skútust.hr.
Tryggvi Harðars. f.h. Þingeyjarsveitar
Reinhard Reyniss. f.h. Atv.þr.f. Þing.
Einar Mathiesen f.h. Landsvirkjunar
Martha Eiríksdóttir f.h. iðnaðarráðun.
ATVINNUMÁL Verkefnisstjórn
um leit að samstarfsaðilum um
atvinnuuppbyggingu í Þingeyjar-
sýslum hefur verið skipuð og
tekið til starfa.
Stjórnin á að ljúka fyrstu
athugun á mögulegum samstarfs-
aðilum fyrir 1. apríl á næsta ári
og nýta næstu sex mánuði þar
á eftir til nánari viðræðna og
samningagerðar. - bþs
Atvinna í Þingeyjarsýslum:
Samstarfsaðila
leitað til 1. apríl
Hægt að bjarga þúsundum
Hægt væri að koma í veg fyrir dauða
24 þúsund ungbarna á hverjum ein-
asta degi í þróunarlöndum ef stjórn-
völd þar verðu meira fé til heilsu-
gæslu. Þetta kom fram á alþjóðlegri
ráðstefnu í Kenía.
KENÍA
Húsfélagaþjónusta Kaupþings
sparar þér tíma og fyrirhöfn
Nánar á www.kaupthing.is/husfelag
Ekkert mánaðargjald
Einföld innheimta
Öflugur netbanki
Þinn þjónusturáðgjafi
Fullkomið rekstraryfirlit
Félagatal og greiðslustaða
Komdu í viðskipti með húsfélagið þitt. Sendu fyrirspurn
á husfelag@kaupthing.com - hringdu í síma 444 7000
eða komdu við í næsta útibúi. Starfsfólk Kaupþings tekur
vel á móti þér og veitir allar nánari upplýsingar.
LÖGREGLUMÁL Lögreglan á höfuð-
borgarsvæðinu gerði upptæk fíkni-
efni þegar hún fór heim til manns í
miðborginni til að birta honum nið-
urstöðu dóms um nálgunarbann. Í
íbúð hans og nágranna hans fund-
ust samtals um hundrað grömm af
fíkniefnum, auk þess sem nágrann-
inn var nappaður við sölu fíkni-
efna.
Fyrrnefndi maðurinn hafði
hlotið nálgunarbannsdóm eftir að
hann hafði hótað einstaklingi, er
hafði nýverið borið vitni í héraðs-
dómi, í máli sem hann hafði verið
dæmdur í.
Þegar lögreglan kom í íbúð
mannsins var þar rammur þefur
af maríjúana og fíkniefni, tól og
neyslutæki út um allt. Við leit í
húsinu fundust fimmtíu grömm af
maríjúana.
Meðan á þessum aðgerðum stóð
veitti lögregla því athygli að annar
íbúi í sama stigagangi var á miklu
stími og átti greinilega annríkt.
Þóttu ferðir hans grunsamlegar
og við nánari eftirgrenslan reynd-
ist hann hafa verið að selja fíkni-
efni.
Við húsleit hjá honum fundust um
fimmtíu grömm af hassi og amfet-
amíni.
Mennirnir sem báðir eru á þrí-
tugsaldri, hafa komið við sögu lög-
reglu áður, og að minnsta kosti
annar vegna fíkniefnamála. Þar
sem nálgunarbannsmaðurinn er
þekktur fyrir að hóta ofbeldi fór
sérsveit ríkislögreglustjóra með
lögreglumönnunum á höfuðborgar-
svæðinu til að birta dóminn.
Lögregla gerði tvær árangursríkar húsleitir á höfuðborgarsvæðinu:
Fundu dópsala við birtingu dóms
MARIJÚANA Lögregla fann um fimmtíu
grömm af maríjúana í annarri íbúðinni
og hass og amfetamín í hinni.
DÓMSMÁL Rúmlega tvítugur karl-
maður hefur verið dæmdur í átta
mánaða fangelsi og til sviptingar
ökurétti ævilangt fyrir að valda
árekstri við bifhjól. Ökumaður
þess beinbrotnaði á sex stöðum
við áreksturinn.
Héraðsdómi Suðurlands þótti
fullsannað að maðurinn hefði
ekið undir áhrifum fíkniefna,
gegn biðskyldu án þess að virða
hana og í veg fyrir bifhjólið með
þeim afleiðingum að ökumaður
þess stórslasaðist.
Ökuníðingurinn á langan saka-
feril að baki þrátt fyrir ungan
aldur, þar á meðal ítrekaðan
fíkniefnaaakstur. - jss
Átta mánaða fangelsi:
Ók á mann
undir áhrifum
VEISTU SVARIÐ?