Fréttablaðið


Fréttablaðið - 19.11.2009, Qupperneq 16

Fréttablaðið - 19.11.2009, Qupperneq 16
16 19. nóvember 2009 FIMMTUDAGUR Framkvæmd og sköpunargleði verður yfirskriftin í dag þegar kynnt verða nokkur góð dæmi um drifkraftinn í norðlensku athafnalífi í Ketilhúsi í tengsl- um við athafnaviku. Þar geta áhugasamir kynnst því sem er að gerast í norðlensku athafna- lífi og hitt aðila meðal annars frá Byggðastofnun, Atvinnuþróunar- félagi Eyjafjarðar, Atvinnuþróun- arfélagi Þingeyinga, Menningar- ráði Eyþings, Nýsköpunarmiðstöð Íslands, Háskólanum á Akureyri, Akureyrarstofu og Norrænu upp- lýsingaskrifstofunni sem verða á staðnum og veita upplýsingar um sína starfsemi og stuðningsum- hverfi frumkvöðla og atvinnulífs á Norðurlandi. Á hálftíma fresti verða svo stuttir fyrirlestrar um verkefni sem eru í gangi á Norðurlandi. Þar má nefna Gebris-verkefnið sem er nýsköpunarverkefni í ferðaþjónustu í Langanesbyggð, fyrirlestur um skotveiðitengda ferðaþjónustu, um náttúrutengda köfun í ferðaþjónustu, snjótöfra og jólasveina í Dimmuborgum og fleira. Dagskráin hefst klukkan þrjú og lýkur klukkan sex. - sbt Drifkraftur og athafnasemi: Norðlenskt at- hafnalíf kynnt í Ketilhúsi JÓLASVEINN Í DIMMUBORGUM Sagt verður frá jólasveinum í Mývatnssveit í Ketilhúsi í dag. 10.00 – 12.00 Þrívíddarhönnun með Blender, Nýsköpunarmiðstöð Íslands í Vestmannaeyjum, Bárustíg 1 11.00 – 14.00 Opinn fundur. „Norður ljós - Kveikjum á perunni!“, Café Síróp, Hvammstanga 12.00 – 13.00 Úr reynsluheimi frumkvöðla – Kaffihúsahittingur, Súfistinn, Laugavegi 18 12.00 – 13.00 Daðraðu við sjálfs- traustið, VR - Húsi verslunarinnar, fundarsalur jarðhæð. FULLBÓKAÐ 12.00 – 12.50 Nýsköpun og frumkvöðlastarf notenda, Háskólinn í Reykjavík, Ofanleiti 2 (stofa 201) 12.00 – 13.00 Nýjar aðferðir við hugbúnaðarþróun, Háskólinn í Reykjavík, Ofanleiti 2 (stofa 101) 12.15 – 12.45 Frumkvæði og fram- kvæmdagleði, Amts-Café (Amtsbóka- safninu) 13.00 – 15.00 Saumasmiðjan, Rauðakrosshúsið, Borgartúni 25 13.00 – 14.00 Fjármálalæsi og frumkvöðlar, Réttarholtsskóli 13.00 – 15.00 Fundur hjá Atvinnu- leysi, nei takk!, VR - Húsi verslunar- innar, fundarsalur jarðhæð 13.00 – 20.00 Smíði rafbíls, Lagna- kerfamiðstöð Íslands, Keldnaholti 14.00 – 18.00 Ný sóknarfæri á Norðurlandi vestra - umhverfi og afurðir, Blönduvirkjun 14.15 Sögustund fyrir yngstu kyn- slóðina, Nýheimar Bókasafn - Menn- ingarmiðstöð Hornafjarðar 15.00 – 18.00 Drifkraftur og athafnasemi, Ketilhús, Akureyri 18.00 Kveikt á jólaljósum í Árborg, Fyrir framan bókasafn Árborgar, Selfossi 18.00 Hausttónleikar Lúðrasveitar Stykkishólms, Stykkishólmskirkja 20.00 Upplestur í Bókasafni Ár borgar, Bókasafn Árborgar, Selfossi 20.00 Opinn kynningarfundur, Sögumiðstöðin, Grundarfirði Upplýsingar um ótímasetta viðburði má finna á heimasíðu Athafnavikunnar www.innovit.is Fimmtudagurinn 19. nóvember „Sú var tíðin að allt of margir fóru í gegnum svæðið án þess að stoppa. Á Norðurlandi vestra er margt að sjá,“ segir Þor- steinn Hilmarsson, upplýsinga- fulltrúi Landsvirkjunar, sem stendur fyrir samráðsfundi um umhverfisvænar áherslur í atvinnu- og menningar lífi á svæð- inu í samstarfi við Vaxtarsamn- ing Norðurlands vestra í dag. Blásið er til fundar ins í Blöndu- virkjun og stendur hann yfir í fjórar klukkustundir. Þorsteinn segir forsvarsmenn Alþjóðlegu athafnavikunnar hafa átt frumkvæðið að því að leita til Landsvirkjunar, sem setti sam- stundis höfuðið í bleyti. Niður- staðan hafi verið sú að leita sóknar færa á Norðurlandi vestra í samstarfi við íbúa svæðisins. Í fyrstu var hugmyndin að líkja eftir Þjóðfundinum í Reykjavík um síðustu helgi og kalla til fólk eftir úrtaki. Þeirri hugmynd var hins vegar kastað fyrir róða og ákveðið að boða á bilinu tuttugu til 25 manns af Norðurlandi vestra með brenn- andi áhuga á málinu til að ræða málin og leita leiða til að gera hug- myndir sínar að veruleika. Rætt verður um þau sóknar- færi sem felast í umhverfisvænum áherslum í atvinnu- og menningar- lífi í fjórðungnum. Þar á meðal er nýsköpun af ýmsu tagi, betri nýting afurða, náttúruvernd og aðgengi að náttúruperlum. Þorsteinn segir Landsvirkjun hafa verið að vinna að samfélags- legri stefnu fyrirtækisins enda vilji það marka sér stefnu á þeim stöð- um sem fyrirtækið er með starf- semi. Það vilji taka þátt í verkefn- um sem geti af sér jákvæða þróun. Fundurinn í dag er liður í því. Raun- ar sé undir heimamönnum komið að vinna úr þeim hugmyndum sem fram koma á fundinum í dag. Sé samhljómur um að halda áfram með ákveðin mál sé Landsvirkjun tilbúin til að styðja við það. „Ég lít á þetta sem lærdóm fyrir okkur. Við getum hugsað okkur að skoða önnur svæði þar sem við erum með starfstöð. Kannski skoð- um við þetta áfram á öðrum svæð- um landsins,“ segir Þorsteinn. jonab@frettabladid.is Landsvirkjun blæs til fundar um nýsköpun Á þriðja tug manna sækja samráðsfund í dag um sóknarfæri í atvinnu- og menningarlífi á Norðurlandi vestra. Landsvirkjun stendur fyrir viðburðinum. Á fundinum verður fjallað um nýsköpun af ýmsu tagi með áherslu á umhverfismál. FRÁ BLÖNDUÓSI Landsvirkjun stendur fyrir samráðsfundi í Blönduvirkjun um umhverfisvænar áherslur í atvinnu- og menningarlífi á Norðurlandi vestra. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR Þrír nemar úr Háskólanum í Reykjavík, tveir úr rafmagns- tæknifræði og einn úr véla- og orkutæknifræði hafa unnið að því hörðum höndum frá því í haust að breyta bensínknúnum bíl í raf- magnsbíl. Verkið er lokaverkefni þeirra frá skólanum og á morgun gefst fólki tækifæri til að kynna sér vinnu þeirra í Lagnakerfis- miðstöð Íslands í Kelduhverfi. „Upphaflega var ætlunin að breyta bíl, en síðan hefur þetta í rauninni þróast út í það að við erum að smíða heilan bíl,“ segir Hrafn Leó Guðjónsson, sem vinn- ur að verkefninu ásamt Guðjóni Hugberg Björnssyni og Hirti Má Gestssyni. Verkið hafi reynst flókið, og þeir hafi til dæmis þurft að breyta bílnum úr framhjóla- drifnum í aftur hjóladrifinn. Fátt sé eftir af upprunalega bílnum. Áætlað er að smíðinni verði lokið í janúar, en tilgangur verkefnisins er meðal annars að þróa mælitæki fyrir skólann sem mælir orkunotk- un rafbíla á Íslandi. Hrafn er vongóður um að verk- efnið nýtist skólanum og nemend- um hans vel í framtíðinni. Verk sem þetta er nokkuð dýrt, þótt atvinnumenn á þessu sviði geti unnið það mun hraðar en nemarnir, enda var öll hönnunar- vinna inni í verkinu hjá þeim auk þess sem þeir sinna öðrum verkum samhliða. - sh Þrír nemendur við HR sýna lokaverkefni sitt: Breyta bensínbíl í rafbíl UPPTEKNIR Hér sjást Hjörtur Már Gestsson og Hrafn Leó Guðjónsson niðursokknir í verkefni sitt. MYND/HRAFN LEÓ GUÐJÓNSSON ATHAFNAVIKA: Samráðsfundur um umhverfisvænar áherslur í atvinnu- og menningarlífi MÁLÞING UM NÁTTÚRUVERND FÖSTUDAGINN 20. NÓVEMBER KL. 13:00 – 16:30 Í RÚGBRAUÐSGERÐINNI Ísland býr yfi r sérstöðu á sviði jarðfræðilegrar fj ölbreytni og landslags. Töluvert hefur ver ið gengið á þessa náttúruauðlind á undan förn um áratugum, meðal annars vegna fram kvæmda og aukins fj ölda ferðamanna. Umræða um verndar gildi landslags og jarð minja er lýðræðisleg forsenda sáttar um náttúru vernd og nýtingu. DAGSKRÁ | JARÐFRÆÐILEG FJÖLBREYTNI OG LANDSLAG: VERNDARGILDI OG SÉRSTAÐA ÍSLANDS 13.00 - 13.10 Opnun – Hjalti J. Guðmundsson, sviðsstjóri sviðs náttúruauðlinda, Umhverfi sstofnun 13.10 - 13.30 Ingvar Atli Sigurðsson, forstöðumaður Náttúrustofu Suðurlands – Verndaðar jarðminjar 13.30 - 13.50 Þóra Ellen Þórhallsdóttir, prófessor við Háskóla Íslands – Verndargildi landslags 13.50 - 14.10 Sigmundur Einarsson, jarðfræðingur hjá Náttúrufræðistofnun Íslands – Verndargildi jarðhitasvæða 14.10 - 14.30 Ari Trausti Guðmundsson, jarðeðlisfræðingur – Frá Galapagos til Kamsjatka - á Íslandi. Verndargildi eldstöðva og eldstöðvakerfa 14.30 - 15.00 Kaffi 15.00 - 15.20 Hreggviður Norðdahl, fræðimaður við Jarðvísindastofnun Háskóla Íslands – Verndargildi lausra jarðlaga 15.20 - 15.40 Kristján Jónasson og Sveinn Jakobsson, jarðfræðingar hjá Náttúrufræðistofnun Íslands – Verndargildi steina á Íslandi: Fágætar steindir og berg 15.40 - 16.00 Lovísa Ásbjörnsdóttir, sérfræðingur hjá Umhverfi sstofnun – Heimsminjar UNESCO og jarðminjagarður (Geopark) 16:00 - 16:30 Samantekt og umræður AÐGANGUR ÓKEYPIS OG ALLIR VELKOMNIR Akureyri – Egilsstaðir – Ísafj örður - Mývatn Reykjavík - Snæfellsnes - Vestmannaeyjar
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.