Fréttablaðið - 19.11.2009, Page 33

Fréttablaðið - 19.11.2009, Page 33
Áskorun til stjórnvalda: Stöndum vörð um veika alkóhólista Kæru alþingismenn Þegar kreppir að þurfum við Íslendingar að standa vörð um það sem er nauðsynlegt og dýrmætt. Við verðum að huga sérstaklega að þeim sem eru vanmáttugir og eiga erfitt með að gæta réttar síns. Við skorum á ykkur að sýna dug og forgangsraða verkefnum með þetta í huga. Við skorum á ykkur að hætta við niðurskurð hjá SÁÁ. Við biðjum ykkur að vernda börn áfengis- og vímuefnasjúklinga og rétta mikið veikum og þurfandi sjúklingum hjálparhönd með því að tryggja þeim góða meðferð og betri framtíð. Við skorum á ykkur að huga sérstaklega að unga fólkinu sem þarf að komast á unglingadeildina á Vogi. Minnist þess að því fyrr sem veikt ungt fólk kemst til meðferðar því mun meiri eru batahorfurnar. Fyrirhugaður niðurskurður mun ekki lækka kostnað. Hann mun þvert á móti auka útgjöld ríkis og sveitarfélaga og íþyngja velferðarkerfinu. Niðurskurðurinn mun aðeins auka á kvöl og lífshættu áfengis- og vímuefnasjúklinga. Við skorum á ykkur að varðveita og styrkja starf SÁÁ og hjálpa með því alkóhólistum og fjölskyldum þeirra. 19. nóvember 2009 i l li Es. Þetta bréf til stjórnvalda markar upphaf undirskriftasöfnunar velunnara SÁÁ sem vilja standa vörð um óeigingjarna mannúðarstarfsemi sem stunduð er af samtökunum. Við hvetjum landsmenn til að leggja nafn sitt við þetta mikilvæga málefni með því að skrifa undir áskorunina. Þannig varðveitum við og styrkjum samfélagsstarf SÁÁ. Hægt er að skrá nafn sitt rafrænt á www.saa.is/pages/askorun Aðalsteinn Árni Baldursson formaður Framsýnar Reykjavík Agnes Bragadóttir blaðamaður Reykjavík Andrés Magnússon geðlæknir Kópavogi Andrés Skúlason oddviti Djúpavogshreppi Ásdís Finnbogadóttir hjúkrunarfræðingur Reykjavík Ásgerður Halldórsdóttir bæjarstjóri Seltjarnarnesi Axel Rúnar Guðmundsson bóndi Valdarási V-Húnavatnssýslu Benedikt Jónsson sendiherra London Berglind Eyjólfsdóttir rannsóknarlögreglukona Reykjavík Birgitta Pálsdóttir hjúkrunarfræðingur Sauðárkróki Björn Jónsson innheimtustjóri Siglufirði Bryndís Eiríksdóttir framkvæmdastjóri Reykjavík Davíð Þór Jónsson blaðamaður Reykjavík Eiður Svanberg Guðnason fyrrverandi sendiherra Reykjavík Einar Már Guðmundsson rithöfundur Reykjavík Eiríkur Jónsson formaður K.Í. Reykjavík Emilía Söebech lífeindafræðingur Kópavogi Erla Pálmadóttir forstöðumaður Fossvogskirkju Kópavogi Eydís Ósk Sigurðardóttir hjúkrunarforstjóri Vestmannaeyjum Friðrik Páll Jónsson yfirlæknir Eyjafjarðarsveit Georg Georgsson formaður Rafiðnaðarfél. Suðurnesja Reykjanesbæ Gísli Ragnarsson skólameistari FÁ Reykjavík Grétar Sigurðsson framkvæmdastjóri Kópavogi Guðlaugur Sveinsson forstöðumaður við Risið Reykjavík Guðmundur Gunnarsson verkfræðingur Reykjavík Guðmundur Sigurðsson framkvæmdastjóri Selfossi Guðrún Bachmann kynningastj. hjá HÍ Reykjavík Gunnar Gunnlaugsson fyrrverandi yfirlæknir Reykjavík Gunnar Jóhannsson framkvæmdastjóri Mývatnssveit Gunnar Smári Egilsson blaðamaður Reykjavík Gunnlaugur Stefánsson forseti sveitarstjórnar Norðurþingi Gyða Björnsdóttir hjúkrunarfræðingur Hafnarfirði Halldóra Geirharðsdóttir leikari Reykjavík Halldóra Ólafsdóttir yfirlæknir ferli- og bráðaþj. geðsviðs LSH Reykjavík Haraldur Þórarinsson form. Landssambands hestamannafélaga Flóahreppi Heiðar Jónsson snyrtir Reykjavík Herdís Pála Pálsdóttir mannauðsstjóri Reykjavík Hlöðver Sigurðsson veitingamaður Reykjavík Inda Björk Gunnarsdóttir leikskólakennari Akureyri Ingibjörg Benediktsdóttir hæstaréttardómari Reykjavík Ingveldur Ýr Jónsdóttir söngkona Reykjavík Jóhannes Jónsson kaupmaður í Bónusi Svalbarðsstrandahreppi Jón H.B. Snorrason aðstoðarlögreglustjóri og saksóknari Reykjavík Jón Stefánsson organisti og kórstjóri Reykjavík Kári Stefánsson forstjóri Í.E. Reykjavík Kristín Jónsdóttir sjúkraliði Akureyri Kristján Örn Frederiksen matreiðslumeistari Borgarbyggð Kristmundur Valberg stöðvarvörður, Blönduvirkjun Blönduósi Lára Björnsdóttir fyrrv. félagsmálastj. Rvk.borgar Reykjavík Linda Björk Helgadóttir kvennsjúkdómalæknir Noregi Linda Pétursdóttir eigandi Baðhússins Reykjavík Margrét Benediktsdóttir forstöðumaður Reykjavík Margrét Kr. Pétursdóttir leikari Reykjavík Mikael Torfason rithöfundur Reykjavík Ólafur Baldursson framkvæmdastjóri lækninga LSH Reykjavík Ólafur Helgi Kjartansson sýslumaður Selfossi Ólafur Ólafsson fyrrverandi landlæknir Reykjavík Örn Bárður Jónsson sóknarprestur Neskirkju Reykjavík Páll Biering hjúkrunarfræðingur Reykjavík Páll Óskar Hjálmtýsson tónlistarmaður Reykjavík Pálmi Matthíasson sóknarprestur Reykjavík Pétur S. Gunnarsson lyfjafræðingur Reykjavík Ragnar Bjarnason söngvari Reykjavík Sævar Hjaltason mjólkurbússtjóri Búðardal Sigmundur Sigmundsson forstöðumaður Fjallabyggð Sigurður Einar Sigurðsson yfirlæknir gjörgæsludeildar FSA Akureyri Sigurður Ólafsson umsjónarlæknir lifrarsjúkdóma LHS Reykjavík Smári Geirsson bæjarfulltrúi Fjarðabyggð Styrmir Gunnarsson fyrrverandi ritstjóri Reykjavík Tómas Guðbjartsson prófessor og yfirlæknir Reykjavík Þorgeir Ástvaldsson fjölmiðlamaður Reykjavík Þórgunnur Ársælsdóttir geðlæknir Reykjavík Þorsteinn G. Gunnarsson ráðgjafi KOM Reykjavík Þórunn Egilsdóttir verkefnisstjóri Vopnafirði Tómas Guðbjartsson prófessor og yfirlæknir Reykjavík Vigdís Finnbogadóttir fyrrverandi forseti Íslands Reykjavík SAMTÖK ÁHUGAFÓLKS UM ÁFENGIS- OG VÍMUEFNAVANDANN KO M a lm an na te ng sl / sv ar th ví tt

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.