Fréttablaðið - 19.11.2009, Síða 37
FIMMTUDAGUR 19. nóvember 2009 3
Fyrir nokkrum árum fengu markaðshugsuð-ir sænsku verslunar-keðjunnar Hennes &
Mauritz þá snilldarhugmynd
að fá heimsþekktan tískuhönn-
uð í gestahlutverk við hönnun-
ina. Þetta er nú orðinn árlegur
viðburður og kemur gestalínan
á markað um miðjan nóvember
ár hvert. Hugmyndin sló í gegn
í fyrstu tilraun enda enginn
annar en Karl Lagerfeld sem
reið á vaðið á sínum tíma. Bið-
raðir mynduðust við verslanir
H&M hér í París og lá við slags-
málum þegar salan hófst. Þar á
eftir fylgdu svo Stella McCartn-
ey, Victor & Rolf og Comme
des Garçons svo nokkrir séu
nefndir.
Það var sama stemningin
á laugardag þegar tískulína
Jimmy Choo kom í búðir. Þetta
er eitt heitasta skómerkið í dag
og klukkan 4 um morguninn
byrjuðu spenntir viðskiptavin-
ir (aðallega kvenkyns) að bíða
fyrir utan búðirnar. Þegar inn
var komið hafði Jimmy Choo-
vörunum verið komið fyrir
á afgirtu VIP-svæði og fékk
hver viðskiptavinur armband
sem veitti aðgang að svæðinu
en þeim var síðan hleypt inn
í hópum og hver þeirra fékk
aðeins 15 mínútur til að velja úr
varningnum og svo var næsta
hópi hleypt að. Skemmst er
frá því að segja að allt hvarf
á augabragði og margar voru
þær sem fóru burt án þess svo
mikið sem máta eitt einasta skó-
par og ekki laust við að gremja
réði ríkjum í hópi vonsvikinna
viðskiptavina. Jimmy Choo er
einn af uppáhaldshönnuðum
Söru Jessicu Parker úr Sex and
the City framhaldsþáttunum
og átti hún reyndar stóran hlut
í því að koma Jimmy Choo á
kortið þegar lúxusskór eru ann-
ars vegar og notaði þá við flest
tækifæri.
Að vanda eru hælarnir háir,
mikið um semelíusteina og
sterka liti þó einnig sjáist slétt-
botna skór í línunni. Skórnir
eru því kannski heppilegri við
síða kjóla á rauðum dreglum.
Sama má segja um beltin sem
ekki eru beinlínis til þess fallin
að vera látlaus. Nokkrar gerðir
af herraskóm eru einnig í boði
sem ekki eru síður spennandi en
kvenlínan.
Það sem er þó er öðruvísi en
var í upphafi þegar H&M bauð
upp á hönnun Karl Lagerfelds
er að verðið er ekki eins lágt og
það var í fyrstu. Nú er skópar-
ið á um 130 evrur (um 24.000
íslenskar krónur), aðeins brot af
verði á skóm frá Jimmy Choo en
þó nokkuð hærra en verð á skóm
frá vinsælum verslunarkeðjum.
Hjá ódýrari skómerkjum er skó-
parið oft á um 60-100 evrur.
Í ár lætur H&M sér þó ekki
duga að fá einn frægasta fylgi-
hlutahönnuðinn til samstarfs
heldur kemur á markað í byrjun
desember barnafatalína, kvenn-
ærföt og fatnaður frá Soniu
Rykiel en sú nýbreytni verður
þá tekin upp að tískuhús Soniu
Rykiel mun einnig selja tísku-
línurnar sem eru framleiddar
í samstarfi við H&M. Líklegt
að enn og aftur verði verslanir
H&M í umsátursástandi.
bergb75@free.fr
Sex and the City hjá H&M
Hefur þú einhvern tíma lent í því að
vakna allt of seint með skítugt hár
sem enginn tími er til að þvo? Þá er
þurrsjampó lausnin. Þurrsjampó virk-
ar þannig að það dregur í sig óhrein-
indi og fitu sem fær hárið til að virð-
ast skítugt. Þurrsjampói er ekki ætlað
að koma algerlega í staðinn fyrir
venjulegan hárþvott en er frábær val-
kostur þegar þannig ber undir. Þurr-
sjampó er til frá ýmsum framleið-
endum og þá yfirleitt í úðaformi en
það þarf ekki að vera dýrt og í óum-
hverfisvænum umbúðum, nóg er að
eiga til dæmis gróft salt, malað hafra-
mjöl eða talkúm og stundum er gott
að blanda einhverju tvennu saman
og jafnvel setja nokkra dropa af ilm-
kjarnaolíu saman við. Þessari blöndu
er svo sáldrað yfir hárið og beðið í tíu
mínútur. Greiðið svo hárið eða burst-
ið … og sjá! Hárið virðist hreint og
enginn veit hvort þú svafst yfir þig
eða ekki.
Þurrsjampó
fyrir þreytt hár
ÞURRSJAMPÓ DREGUR Í SIG ÓHREIN-
INDI OG FITU OG VIRKAR VEL ÞEGAR
LÍTILL TÍMI ER FYRIR HÁRÞVOTT OG
STURTU.
Þurrsjampó getur gert kraftaverk.
Tískan fer í hringi, spírala, bylgjur og upp
og niður. Þetta á sérstaklega við um skó-
tískuna sem ýmist er í hæstu hæðum eða
nánast niðri á jafnsléttu, samanber pinna-
hælana og skylmingaþrælasandalana sem
áttu saman sviðið hér ekki alls fyrir löngu.
Fylltu hælarnir sem áttu verðskuldaða end-
urkomu í sumar ætla þó að verða langlíf-
ari en mörg tískubylgjan enda einstaklega
þægileg leið til að hækka um nokkra senti-
metra án þess að þurfa að fórna þægind-
unum og jafnvægisskyninu. Fylltu hælana
má finna á alls kyns skófatnaði, allt frá
háum stígvélum og niður í galopna sand-
ala með viðkomu í strigaskóm og ökkla-
stígvélum. Þannig að allir ættu að geta
fylkt sér um fyllta hæla og spígsporað af
fullkomnu öryggi.
Fylltir hælar í flest mál
FYLLTU HÆLARNIR SEM URÐU VINSÆLIR Á
NÝ Í SUMAR ÆTLA AÐ VERÐA LANGLÍFARI EN
MARGAR AÐRAR TÍSKUBYLGJUR.
Fylltir hælar tröllríða nú tískusýn-
ingarpöllunum.
ÚR HÁBORG TÍSKUNNAR
Bergþór Bjarnason skrifar frá París
Eva Longoria er mannvinur árs-
ins að mati Hollywood Reporter.
Leikkonan íðilfagra, Eva Long-
oria, var valin mannvinur árs-
ins af Hollywood Reporter tíma-
ritinu á dögunum og mætti til
veislu þar sem henni voru afhent
verðlaunin.
Longoria þykir hafa borið af
á liðnu ári fyrir starf sitt í þágu
bágstaddra barna. Áður en Long-
oriu var afhent viðurkenningin
fór útgefandinn fögrum orðum um
hana. „Ég hef aldrei áður hitt sam-
viskusamari og félagslega meðvit-
aðri unga stjörnu. Viðleitni Evu er
mikil. Hún eyðir stórum hluta frí-
tíma síns og orku í að safna millj-
ónum dollara fyrir góð málefni
sem breyta miklu fyrir rómanska
samfélagið og aðrar góðgerða-
stofnanir.“
Longoria er
mannvinur
Eva Longoria hefur unnið mikið starf í
þágu góðgerðamála. NORDICPHOTOS/GETTY
OPIÐ FIMMTUDAG TIL KL. 21.00
20%
afsláttur af öllum
vörum í dag.
Opið til kl 21.
Léttar veitingar
18-21
Hæðasmári 4 (í sama húsi og bílaapótekið)
Sími 553 7355 • Opið virka daga 11-18, laugard. 11-15
AÐHALDSUNDIRFÖT