Fréttablaðið - 19.11.2009, Page 50

Fréttablaðið - 19.11.2009, Page 50
 19. NÓVEMBER 2009 FIMMTUDAGUR4 ● fréttablaðið ● fyrirtækjagjafi r „Jú, jú, ég hef fengið ýmsar jóla- gjafir frá þeim fyrirtækjum sem ég hef unnið hjá, en líklega þótti mér vænst um jólagjöfina sem ég fékk frá Bylgjunni árið 1986 þegar hún var nokkurra mánaða gömul,“ rifjar Hermann Gunnarsson fjöl- miðlamaður upp. „Þá fengum við 25.000 króna hlutabréf í stöðinni sem síðan áttu eftir að margfaldast. Svo var þetta sameinað Stöð 2 og ég man ekki hvort þau fjórfölduðust eða fimm- földuðust í verði á einni nóttu. Mér finnst að fyrirtæki ættu að gera meira af þessu, að gefa starfsfólk- inu nokkur prósent í fyrirtækjunum svo það leggi sig meira fram.“ Þá segist Hermann hafa fengið alls kyns hangikjötslæri í gegnum tíðina. „Eftir að kreppan skall á fékk ég flíspeysu frá núverandi vinnuveitendum. Hana hef ég ekki enn notað. Hún er lítið spennandi og svo var hún of lítil á mig.“ - nrg BESTA OG VERSTA GJÖFIN Hermann Gunnarsson Ánægður með hlutabréfin „Það eru svo sem engin fyrir- tæki sem ég hef verið að vinna fyrir nema leikhúsin og ég man ekki eftir nein- um jólagjöfum þar. Þar er bara meira haldið partí. Jólamatur og eitthvað dúll- erí og það kemur í staðinn fyrir gjafir,“ segir Helga Braga Jónsdóttir leikkona. „Fyrir mér eru íslenskar bækur bestu jólagjafirnar, til dæmis bæk- urnar hennar Kristínar Marju Baldursdóttur. Það eru dásamlegar stundir um jólin að liggja uppi í rúmi og lesa.“ Hún hugsar sig um. „Kerti, jólaseríur og lesa góða bók, það er toppurinn skilurðu.“ Ekki segist Helga mun eftir slæmri jólagjöf. „Því miður; ég vildi ég gæti hjálpað þér en ég man bara ekki eftir neinni.“ - nrg Best að fá bók Helga Braga Jónsdóttir „Já, góð spurning. Ég er nú ekki í neinum vafa að flísteppið frá Kaupþingi var versta gjöfin; það var ekkert spes. Þegar allt fór í vaskinn í „dott- komm“ hérna um árið, þá sendu þeir flís- teppi á kúnn- ana sem fengu ekkert sérstak- ar viðtökur. Þau voru ljót og hafa alltaf verið notuð sem hundateppi á mínu heimili,“ segir Sveinn Andri Sveinsson lögfræðingur og hlær. „Ætli besta gjöfin sé ekki eitthvað sem lögfræðistofan hefur gefið okkur hérna. Ég held að það séu bara vínflöskurnar sem við gefum sjálfum okkur. Þetta er ekki mjög frumlegt svar en svar þó,“ segir Sveinn. - nrg Hundurinn fékk flísteppið Sveinn Andri Sveinsson ● GÓÐAR HUGMYNDIR Sérsniðnir gjafapakkar og heimsending er meðal þess sem gjafavörufyrirtækið Valfoss býður upp á fyrir þessi jól; sem dæmi um gjafir má nefna matarkassa og ýmsa erlenda og inn- lenda gjafavöru, svo sem sérstakan jólaóróa, jólakött á rauðu bandi. Hluti söluandvirðisins af honum renn- ur til Mæðrastyrksnefndar. Þá hefur Valfoss gefið út sérstakan bækling með hugsanlegum gjafasamsetning- um sem gaman getur verið að blaða í til þess að fá góðar hug- myndir.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.