Fréttablaðið - 19.11.2009, Qupperneq 60
40 19. nóvember 2009 FIMMTUDAGUR
menning@frettabladid.is
Það hefur farið lágt nema fyrir austan en
Rússíbanarnir hafa verið á túr. Í samstarfi við
tónlistarfélög fyrir austan hafa þeir félagar spilað
kvöld og daga fyrir Austfirðinga og Héraðsmenn:
Egilsstaðir, Reyðarfjörður, Þórshöfn og Vopna-
fjörður voru sóttir heim og á daginn spiluðu þeir
á tónleikum í grunnskólum í hinu merkilega
átaki mennta- og menningarmálaráðuneytisins
sem Jónas Ingimundarson hrinti af stað fyrir
mörgum árum.
Nú snúa þeir hingað í heimabæ sinn, Reykja-
vík, og slútta þessari törn með tónleikum í Nor-
ræna húsinu á sunnudag í tónleikaröðinni 15:15.
Rússíbanar hafa haft hægt um sig undanfarin
misseri en ferð þeirra austur og tónleikarnir í
Vatnsmýri eru kærkomið tækifæri aðdáendum
þeirra til að hitta bandið á endurfundum. Í
hópinn á sunnudag bætist harmónikusnillingur-
inn Tatu Kantomaa sem kominn er til landsins
og dvelur hérlendis í nokkra daga. Fyrir eru á
fleti þeir Guðni Franzson, Jón Skuggi, Kristinn H.
Árnason og Matthías M.D. Hemstock.
Rússíbanar leika blandaða dagskrá höfunda
á borð við Mozart, Brahms, Milhaud og fleiri
erlenda menn, heimstónlist frá Austur-Evrópu,
Asíu, Suður-Ameríku og víðar, ný tónverk eftir
íslensk tónskáld s.s. Hróðmar I. Sigurbjörnsson,
Hjálmar H. Ragnarsson, tónsmíðar sérstaklega
saman settar fyrir bandið og lög úr smiðju með-
lima hljómsveitarinnar. Talsvert af efninu hefur
áður komið út á geisladiskum en hluti er nýtt
efni og útsetningar hópsins.
Þetta verða einu tónleikar Rússíbananna hér á
höfuðborgarsvæðinu að þessu sinni.
Rússíbanar koma saman á ný
ath kl. 16.
Fimm þýðendur lesa upp úr verkum
sínum á Þýðingahlaðborði Banda-
lags þýðenda og túlka á Háskóla-
torgi í dag. Þýðendurnir eru Elísa
Björg Þorsteinsdóttir (Málavextir),
Jón Hallur Stefánsson (Chicago),
Kristján Árnason (Ummyndanir),
Sigrún Á. Eiríksdóttir (Leikur engils-
ins) og Sigurður Karlsson (Yfir hafið
og í steininn). Þýðendurnir ræða
jafnframt um verkin og þýðingar-
vinnuna sjálfa. Allir velkomnir.
Nýtt íslenskt verk verður
frumsýnt á Nýja sviði
Borgarleikhússins í kvöld á
vegum Leikfélags Reykja-
víkur. Höfundur verksins
er Heiðar Sumarliðason en
leikstjóri er Kristín Ey-
steinsdóttir.
Heiti leiksins kemur spánskt fyrir
sjónir, Rautt brennur fyrir sækir
titilinn í forna texta og segir Heið-
ar að það þýði að einhvers góðs sé
að vænta. Þetta er fyrsta verk
Heiðars sem kemur á svið en hann
er skólaður úr diplómanámi Lista-
háskólans, Fræði og framkvæmd,
og stundar nú nám í leikstjórn í
London.
Þótt titillinn sé forn að uppruna
er efni leiksins tekið úr samtíma
okkar: „María og Kristján eru á
yfirborðinu ósköp venjulegt ungt
par. Kristján telur sig hafa ráðið
leyndardóma mannskepnunnar
með kenningum sálfræðinga, en
eftir að ókunnugur maður brýst
inn hjá honum verður hann að tak-
ast á við þá staðreynd að heimur-
inn er ekki eins einfaldur og hann
hélt.
Undir sléttu yfirborðinu leynast
ógnvænlegir hlutir, fólk er ekki allt
eins og það er séð og líf bláókunn-
ugs fólks getur skarast með ófyr-
irsjáanlegum afleiðingum,“ segir í
útlistun leikhússins um efni þess.
Heiðar dregur enga dul á að hann
sækir efnið í nánasta umhverfi sitt,
fréttir í dagblöðum, samtöl í partí-
um, lífsgildi: „En það sem verkið í
raun og veru fjallar um og er við-
bragð við, er þessi „aspartame“-
kynslóð sem ég sá að var að koma
upp og ég var hluti af. Hundrað
prósent upplifun, engar afleiðingar.
Verkið fjallar um að það eru alltaf
afleiðingar, en að fólk má þó ekki
gleyma fyrirgefningunni, við erum
öll mannleg og okkur verða öllum á
mistök,“ segir Heiðar.
Finnur Arnar gerir leikmynd og
heldur áfram að vinna með hug-
mynd sína um útlínur húsnæðis,
teikninguna af hýbýlum eins og
myndin sýnir með greininni. Leik-
endur eru þau Jörundur Ragnars-
son, Þorbjörg Helga Þorgils dóttir,
Sveinn Ólafur Gunnarsson og
Dóra Jóhannsdóttir.
Heiðar er fæddur 1979 í Garða-
bænum og þvældist inn og út úr
námi og deildum þar til hann
fann fjölina sína í fræðum og
framkvæmd. Nú er spurningin
hvernig krufning hans á sinni
kynslóð, sínum samtíma, hittir í
hjörtu áhorfenda. Sem fyrr er gert
ráð fyrir snörpum sýningartíma á
verkinu á Nýja sviði svo þeir sem
vilja fylgjast með verða að drífa
sig.
pbb@frettabladid.is
RAUTT BRENNUR FYRIR
LEIKLIST Rautt brennur fyrir eftir Heiðar Sumarliðason verður frumsýnt í kvöld í
Borgar leikhúsinu. Myndin sýnir leikendur og leikmynd og er tekin á æfingu.
MYND/LR/GRÍMUR BJARNASON
Hin árlega
Tónlistar-
veisla í
skamm-
deginu
á vegum
menn-
ingar-
og safna-
nefndar
Garðabæjar
verður hald-
in í kvöld kl.
21.00 í göngu-
götunni á
Garðatorginu í
Garðabæ.
Í tónlistarveislu
ársins er það hljóm-
sveitin Baggalútur
sem treður upp á torginu. Að venju verður
reynt að skapa skemmtilega kaffihúsa-
stemningu, borðum og stólum raðað upp á
torginu og gestir geta keypt sér veitingar.
Tónleikarnir standa í um eina og hálfa
klukkustund.
Hópur myndlistarmanna úr Garðabæ
ætlar að sýna verk sín á torginu þetta
kvöld og gera má ráð fyrir því að einstaka
verslanir verði með opið hús.
Baggalútur er rótgróið framleiðslu-
fyrirtæki í íslenskum menningar- og
afþreyingar geira, sem sérhæfir sig í heild-
arlausnum á sviði þjóðlegrar hámenningar
og alþýðlegrar skemmtunar. Félagið starf-
rækir m.a. sívinsæla hljómsveit og þjóð-
þekkt vefsvæði.
Hljóðverkadeild Baggalúts hefur sent
frá sér hljómskífurnar Pabbi þarf að
vinna, Aparnir í Eden, Jól & blíða, Nýjasta
nýtt og nú síðast Sólskinið í Dakota. Hljóm-
sveitin sjálf, sem skipuð er mörgum valin-
kunnustu listamönnum þjóðarinnar, nýtur
almennrar hylli, faglegrar virðingar og
viðurkenningar alþjóðasamfélagsins.
Garðbæingar hafa undanfarin ár fjöl-
mennt á torgið til að gera sér glaða
kvöldstund og hlusta á skemmtilega tón-
list. Það er menningar- og safnanefnd
Garðabæjar sem býður til þessarar tón-
listarveislu. Aðgangur er ókeypis og allir
eru velkomnir á Garðatorgið. Tónleikarnir
hefjast kl. 21. - pbb
Baggalútur á Garðatorgi
TÓNLIST Rússíbanar á blússi.
> Ekki missa af
Í kvöld heldur hljómsveitin
Árstíðir tónleika á Café Rosen-
berg. Þetta eru fyrstu tónleikar
sveitarinnar þar í nokkurn tíma
en hún hefur verið tíður gestur
þar frá því hún hóf að koma
fram. Meðlimir hafa legið
undir feldi að undanförnu og
mun nýtt efni líta dagsins ljós
á tónleikunum sem hefjast kl.
22.00.
Milli tónskáldanna Roberts Schu-
mann og Johannesar Brahms ríkti
djúp vinátta þótt kynni þeirra yrðu
ekki langvinn. Þeir áttu samleið
um tíma og hefur verkefnanefnd
Sinfóníunnar notað tækifærið og
sett þá í samlokugerð sem gest-
ir hennar munu njóta fram undir
vor 2011. Svo er líka nægt tilefni
að 8. júní 2010 eru 200 ár liðin frá
fæðingu Schumanns. Í þessari röð
verða sinfóníur þeirra og einleiks-
konsertar fyrir ýmis hljóðfæri á
dagskrá.
Á fyrstu tónleikunum í kvöld
hljómar hinn geysivinsæli píanó-
konsert Schumanns, glóðheit ást-
arjátning hans til Clöru eiginkonu
sinnar. Clara Schumann var líka
sú fyrsta sem Brahms leyfði að
heyra fjórðu sinfóníu sína tæpri
hálfri öld síðar. Í sinfóníunni mæt-
ast nútíð og fortíð á áhrifamikinn
hátt; tónlistin er tilfinningaþrung-
in og rómantísk en í síðasta kafla
lítur aldna tónskáldið um öxl og
byggir á kantötukafla eftir Johann
Sebastian Bach.
Hjómsveitarstjórn er í höndum
Evu Ollikainen sem er ekki nema
27 ára gömul en hefur þegar vakið
verðskuldaða athygli víða um
heim. Hún vakti mikla aðdáun
þegar hún stýrði Sinfóníuhljóm-
sveit Íslands í 4. sinfóníu Niel-
sens haustið 2007 og bæði hljóm-
sveit og áheyrendur létu í ljós ósk
um að hún kæmi fljótt aftur. Nú
er komið að því og það er gaman
að geta þess að þau Siirala voru
samtíða í Sibeliusar-akademíunni
í Helsinki. Þar léku þau stundum
saman píanókonserta fjórhent en
þetta verður í fyrsta sinn síðan
þau luku námi sem þau koma fram
á sömu tónleikum.
Einleikari á tónleikunum er
finnski píanóleikarinn Antti
Siirala sem skaust upp á stjörnu-
himininn þegar hann bar sigur úr
býtum í Beethoven-píanókeppn-
inni í Vínarborg 1997 og festi sig
í sessi þegar hann endurtók leik-
inn í píanókeppninni í Leeds 2003.
Þessi einstaklega hæfileikaríki
píanisti er á algjörum heimavelli
í píanókonserti Schumanns, enda
hefur hann fengið mikið lof heim-
spressunnar fyrir flutning sinn á
rómantískri tónlist.
Tónleikarnir verða sendir út á
rás 1 Ríkisútvarpsins og fyrir þá
verður Árni Heimir Ingólfsson
með kynningu á verkunum á efnis-
skránni í safnaðarheimili Nes-
kirkju.
pbb@frettabladid.is
Brahms og Schumann
STJÓRNANDINN Eva Ollikainen vann
hjörtu gesta hér fyrir tveimur árum og er
snúin aftur. MYND/SÍ/JUKKA RITOLA
TÓNLIST Baggalútur hittir Garð-
bæinga í kvöld. MYND/BAGGALÚTUR