Fréttablaðið - 19.11.2009, Síða 62
19. nóvember 2009 FIMMTUDAGUR
Brýn bók fyrir alla foreldra ungra barna
og þá sem annast lítil börn.
„Sæunn hefur djúpan skilning á efninu
og skrifar fallegan texta af mikilli hlýju
og alúð. Þessi bók á erindi til allra.“
Valgerður Baldursdóttir,
barna- og unglingageðlæknir
2. prentun
Bókmenntir ★★★★
Karlsvagninn
skáldsaga eftir Kristínu Marju Baldursdóttur
Tvær konur á flandri
Eftir tvær stórar skáldsögur um listakonu á síðustu
öld, uppeldi hennar og örlög, vendir Kristín Marja
Baldursdóttir kvæði sínu í kross í stuttri samtíma-
sögu, Karlsvagninum. Hún er samt ekki fjarri eldri
högum: Gunnur er sálfræðingur komin yfir miðjan
aldur og situr ein eftir í búi sínu, börnin eru farin
og hún er komin á þann aldur að endurlitið er óhjá-
kvæmilegt. Þegar á hana er plaserað unglingsstúlku
fær hún óvænt áheyranda sem hún er til í að miðla
upprifjun á æsku sinni, forfeðrum, foreldrum og
fortíð. Krakkinn er dæmigerður íslenskur unglingur
og milli þessara tveggja kvenna rís spenna sem sú eldri reynir að leysa með
elskusemi, þótt gildi og hugarástand reynist þar erfiðir hjallar.
Gunnur er hin dæmigerða íslenska miðstéttar- og menntakona okkar
daga. Hún gengur óhrædd á móti upplifun sinni í bernsku, kryfur af kulda og
takmörkuðum skilningi þátt móður sinnar, rétt eins og henni er áfátt og nán-
ast ómögulegt að skilja unglinginn sem hún hefur fangað og vill spegla sig í.
Það er vanþóknun í textanum, hvort sem hún er innlögð af slægð skálds-
ins eða óhjákvæmilegur fylgifiskur hins miðaldra hugar skaparans: Gunnur,
sögumaðurinn, skáldið sannar á sjálfri sér nánast sama fyrirhyggju-forræð-
ishugsunarháttinn og brann á henni sjálfri, þó röddin klæði sig skilningnum
og umhyggjusláin sé kirfilega sett á herðarnar.
Þetta er afbragðsvel samin saga þó lesandi fái í pirrurnar yfir máttsterku
fjasi um lífsstíl unglinga, andúð á nútímaþægindum eins og gemsum,
tölvunotkun og öðru sem hægt er að amast við. Kristín hefur sterk tök á
stíl sínum og byggir samskiptin upp af næmi fyrir stígandi, hléum og nýrri
spennusúlu. Það er þó eins og í fyrri verkum hennar sterk tilhneiging til að
rómantísera í fjarlægð fyrri tíð þótt tilgangurinn virðist vera að fjalla um þá
tíma af gagnrýni og rannsóknarvilja kryfjandans. Það hefði verið fróðlegt að
sjá hana spegla alveg sögumanninn og segja okkur sömu sögu frá sjónar-
hóli stúlkunnar. Hvað ætli sú aðför hefði leitt í ljós?
Páll Baldvin Baldvinsson
Niðurstaða: Athyglisverð og vel skrifuð saga um aðskilda heima.
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
Fimmtudagur 19. nóvember 2009
➜ Tónleikar
19.00 Styrktartónleikar fyrir stofn-
frumumeðferð Ellu Dísar verða haldnir
á Skemmtistaðnum Spot við Bæjarlind
í Kópavogi. Meðal þeirra sem fram
koma eru: Alan Jones, Edgar Smári, Thin
Jim and the Castaways, Bermuda og 3
raddir.
20.00 Hljómsveitin BOBA kemur fram
á Fimmtudagsforleik Hins hússins við
Pósthússtræti (gengið inn í kjallara frá
Austurstræti). Allir eldri en 16 ára og
allsgáðir velkomnir. Enginn aðgangs-
eyrir.
20.30 Bubbi Morthens heldur tón-
leika í Félagsheimilinu Hlégarði við
Háholt í Mosfellsbæ. Á efnisskránni
verða ný lög í bland við eldra efni.
21.00 Hljómsveitin Baggalútur
kemur fram á hinni árlegu tónlistar-
veislu Menningar- og safnanefndar
Garðabæjar sem fram fer í göngugöt-
unni á Garðatogi. Enginn aðgangseyrir.
21.00 Sextett Reynis Sigurðssonar
heldur tónleika í jazzkjallaranum á Cafe
Cultura við Hverfisgötu 18.
21.00 Dúndurfréttir flytja helstu stór-
virki Pink Floyd á tónleikum á Græna
hattinum við Hafnarstræti á Akureyri.
22.00 Andrea Gylfa og Eddi Lár halda
tónleika á Gallery – Bar 46 við Hverfis-
götu 46.
22.00 Hljómsveitin Árstíðir heldur
tónleika á Café Rosenberg við Klappar-
stíg.
➜ Sýningar
Hjá Íslenskri grafík við Tryggvagötu 17
(hafnarmegin) hefur verið opnuð sýn-
ing sem varpar ljósi á sögu grafíklistar
á Íslandi í máli og myndum. Opið fim.-
sun. kl. 14-18.
➜ Kvikmyndir
20.00 Heimildarmynd um ferð nokk-
urra Íslendinga til Tsjúkotka-sýslu í Síb-
eríu eftir Ara Trausta Guðmundsson og
Valdimar Leifsson verður sýnd hjá MÍR
við Hverfisgötu 105.
➜ Bókakynningar
16.00 Bandalag þýðenda og túlka
stendur fyrir kynningu á þýddum verk-
um á Háskólatorgi HÍ við Sæmundar-
götu 4. Nánari upplýsingar á www.
thot.is.
➜ Pub Quiz
20.00 Fótbolta-quiz Sammarans fer
fram á Enska barnum við Austurstræti.
Enginn aðgangseyrir og vegleg verðlaun.
Nánari upplýsingar á www.sammarinn.
com.
➜ Fyrirlestrar
12.10 Deborah Saunt heldur fyrirlestur
um arkitektúr og borgarskipulag í Opna
Listaháskólanum að Skipholti 1 (st.
113). Nánari upplýsingar á www.lhi.is.
Bóksölu er nú tekið að herða. Á nýjum sölulistum Eymundsson Penn-
ans fyrir liðna viku getur að líta hverjir seljast mest og verður fróð-
legt að sjá hvað lesendur sækja í verslanir þessa dagana: Svörtuloft
Arnalds eru söluhæst en Kristín Marja Bald-
ursdóttir sækir fast á. Í þriðja sæti er ævi-
saga Óskars Guðmundssonar um frægasta
Íslending allra tíma, Snorra Sturluson,
þá kemur Brauð og kökubók Jóa Fel
sem Hagkaup gefa út. Í fimmta sæti
er hin margauglýsta ævisaga Vil-
hjálms Vilhjálmssonar söngvara
eftir Jón Ólafsson. Í sjötta sæti er
Jólasveinasaga Brians Pilkington, þá
er umdeild skáldsaga Böðvars Guð-
mundssonar, Enn er morgun. Áttunda
sætið skipar Matur og drykkur Helgu
Sigurðardóttur. Níunda sætið vermir
eini erlendi höfundurinn, Francesca
Simon með nýja sögu í röðinni um
skálkinn Skúla skelfi, og Rósa Guð-
bjartsdóttir rekur lestina í tíunda
sætinu með nýja uppskriftabók
sína, Eldað af lífi og sál.
Bóksala herðist
BÆKUR Kristín Marja sækir á
Arnald á sölulistum.
MYND/FRÉTTABLAÐIÐ