Fréttablaðið - 19.11.2009, Síða 70

Fréttablaðið - 19.11.2009, Síða 70
50 19. nóvember 2009 FIMMTUDAGUR Ragnheiður Gröndal og Helgi Hrafn Jónsson eru á leiðinni í tónleikaferð um Austurríki, Þýskaland og Sviss dagana 24. til 29. nóvember. Ferðin er farin á vegum Norðursins, sem vinnur að því að kynna íslenska tónlist í Þýskalandi og nágrenni. Fyrstu tónleikarnir verða í Zürich en þeir síðustu í Admiralspalast í Berlín, þar sem Ragnheiður er einmitt búsett. Hún er væntanleg til Íslands í byrjun desember þar sem hún mun kynna sína sjöttu plötu, Tregagás, sem kom út fyrir skömmu. Fara saman í tónleikaferð RAGNHEIÐUR GRÖNDAL Ragnheiður og Helgi Hrafn eru á leiðinni í tónleikaferð um Austurríki, Þýskaland og Sviss. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR Leikkonan Reese Witherspoon mætti í viðtal til Conans O‘Bri- en fyrir stuttu og þar ræddi hún meðal annars eina undarlega áráttu sína. „Mér finnst gott að henda hlutum. Ég er heltekin af rusli. Daginn eftir hátíðisdaga eru ruslatunnur mínar yfirfullar af drasli og rusli. Stundum stelst ég til að gægjast í ruslatunnur nágrannana og þær eru alltaf tómar, það er eins og nágrann- ar mínir hendi engu,“ sagði leik- konan og bætti við að stundum stælist hún til að fleygja rusli í tunnur nágrannanna. Hún segist jafnframt klæðast sér- stökum stigvélum þegar ruslið er sérstaklega mikið og traðkar svo ötullega ofan á því svo meira pláss myndist. „Ég hoppa og traðka og þjappa ruslinu saman. Ég er eins og mennsk ruslaþjöppunarvél.“ Reese í rusli RUSLAKONA Reese Witherspoon segist heltekin af rusli. „Við gáfum fyrst út bókina Stattu með þér, sem eigin- maður minn, Gunnar Hrafn Birgisson, skrifaði árið 1998. Seinna gáfum við út spilið Skilaboð frá huldu- heimum auk bókarinnar Þín hjartans þrá sem kenn- ir mjög merkilega lífsspeki um það hvernig fólk geti unnið að draumum sínum. Ástæðan fyrir því að ég þýddi hana var sú að mér fannst þetta einum of gott efni til að halda þessu fyrir sjálfa mig,“ segir Hildur Halldóra Karlsdóttir, bókasafnsfræðingur og bóka- útgefandi, en hún og eiginmaður hennar stofnuðu bókaútgáfuna Upptök ehf. fyrir rúmum tíu árum. Hildur Halldóra, sem er móðir leikkonunnar Ísgerðar Elfu, lauk nýverið við að þýða þriðju bók- ina, sem ber titilinn Karlmenn, peningar og súkku- laði. „Þessi bók er ólík fyrri bókunum sem við höfum gefið út. Þetta er saga um konu sem er að fást við sitt daglega líf, bókin hefur farið sigurför um heiminn og er gefin út í nítján löndum,“ segir Hildur. Aðspurð segir hún ekki erfitt að starfa með eiginmanni sínum. „Maðurinn minn er sálfræðingur þannig að við deilum þessum áhuga á andlegum málefnum. Hann hefur verið duglegur að lesa yfir bækurnar og það er mikill stuðningur í því,“ segir Hildur að lokum. Karlmenn, peningar og súkkulaði kemur í verslanir í næstu viku og verður til sölu í Eymundsson, versluninni Betra líf, Ditto og Gjöf- um Jarðar auk annarra verslana. Einnig er hægt að nálgast upplýsingar um bókina á fésbókarsíðu Upp- taka. - sm Of gott til að sitja á þessu ein ANDLEG Hildur Halldóra Karlsdóttir gefur út bækur ásamt manni sínum. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Bradley Cooper hefur verið að hitta leikkonuna Renée Zellweg- er frá því í byrjun sumars og virðast þau hafa notið selskaps hvort annars hingað til. Nú eru þó á lofti sögur um að Cooper hafi ekki verið við eina fjölina felldur síðastliðna mánuði held- ur hafi hann einnig verið að hitta fyrrverandi kærustu sína á laun. „Bradley átti í sjóðheitu sam- bandi við Isabellu Brewster í heilt ár og þau hafa ekki getað slitið sig frá hvort öðru þrátt fyrir að sambandinu sé lokið og Bradley sé að hitta Renée. Bradley hefur hitt Isabellu á laun í allt sumar og henni finnst ekk- ert mál að vera „hin konan“. Bradley hefur engan áhuga á að festa ráð sitt heldur vill hann leika lausum hala um hríð nú þegar hann er orðinn frægur,“ var haft eftir heimildarmanni sem bætir við að Zellweger sé algjörlega grunlaus. „Renée telur sig hafa fund- ið hinn full- komna mann í Bradley og hefur jafnvel verið að tala um brúðkaup.“ Leikur lausum hala Ummæli fyrirsætunnar Kate Moss í nýlegu viðtali hafa vakið harða gagnrýni meðal almenn- ings, en í viðtalinu er Moss spurð hvort hún eigi sér lífsmottó og því svarar fyrirsætan: „Ekkert bragðast eins vel og vellíðanin sem fylgir því að vera mjór.“ Í viðtalinu segir hún það vera persónuleika sínum að þakka hversu langt hún hefur náð í starfi sínu sem fyrir- sæta. „Það þýðir ekkert að vera bara fallegt and- lit, því ef þú hefur ekki góðan persónu- leika líka þá nærðu ekki langt. Ég er ekki með hefðbundið útlit en ætli fólk kunni ekki ágætlega við mig,“ segir Moss. Ekki bara fallegt andlit GOTT AÐ VERA GRÖNN Ummæli Kate Moss í nýlegu viðtali hafa vakið harða gagnrýni. FRJÁLSAR ÁSTIR Bradley Cooper vill ekki festa ráð sitt nú þegar hann hefur öðlast frægð. Ævisagan Vigdís – Kona verður forseti er komin út. Af því tilefni var haldið útgáfuhóf í Iðnó þar sem Vigdís Finnbogadóttir tók á móti hverjum gestinum á fætur öðrum. Útgáfustjór- inn Páll Valsson ritaði þessa ævisögu Vigdísar sem margir hafa beðið spenntir eftir. Þar ber margt á góma sem hefur ekki farið hátt í gegnum tíðina, bæði er varðar einkalíf og opinber störf Vigdísar sem forseta Íslands. VIGDÍS TÓK Á MÓTI GESTUM Vigdís Finnbogadóttir spjallar við Ólaf Ólafsson, fyrrverandi landlækni, og konu hans, Ingu Ólafsson. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Ómar Ragnarsson óskar Vigdísi til ham- ingju með ævisöguna. Evald Krog og Guðjón Sigurðsson, for- maður MND-félagsins, mættu í Iðnó. Blaðamaðurinn Kolbrún Bergþórsdóttir ásamt markaðs- stjóranum Heiðari Inga Svanssyni og útgefandanum Agli Erni Jóhannssyni. Jón Þórisson leikmyndahönnuður ásamt konu sinni Ragnheiði Steindórsdóttur og foreldrum hennar, leikurunum Steindóri Hjörleifssyni og Margréti Ólafsdóttur. Bryndís Schram og Jón Baldvin Hanni- balsson fögnuðu ævisögu Vigdísar. • Mál og menning og Súfistinn Laugavegi prjónakaffi, þrjár raddir syngja kl. 17. • Hannyrðaverlsunin Mólý Kópavogi. • Verslunin Esar Húsavík, heitt á könnunni. • Skrínan Selfossi. • Framtíðin Vestmannaeyjum. • Hannyrðabúðin Sunnumörk Hveragerði, kertaljós, jólaöl og pipakökur. • Laufskálinn Neskaupsstað, hnallþórur og kaffi. • Ævintýrakistan Akranesi. • Heitt á prjónunum Ísafirði, prjónað til góðs. • Landamót Seyðisfirði. • Sælukjallarinn Patreksfirði prjónakaffi, kertaljós og smákökur. • Sunnlenska bókakaffið Selfossi góðgerðaprjón. Prjónablaðið BJÖRK Nóvember 2009 - 1. tbl. 1. árg. Bjarkarhóll Bjarkarhóll Prjónablaðið Björk kemur út 20. nóvember NÝTT PRJÓNABLAÐ Blaðið verður kynnt sérstaklega á eftirtöldum stöðum 20. nóv kl. 16-18
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.