Fréttablaðið - 19.11.2009, Blaðsíða 86
66 19. nóvember 2009 FIMMTUDAGUR
1
6 7 8
10
13
119
12
15
16
18
21
20
17
14
19
2 3 4 5
MORGUNMATURINN
LÁRÉTT
2. egna, 6. 999, 8. vandlega, 9. fugl,
11. guð, 12. miklu, 14. þrætur, 16.
tímabil, 17. af, 18. röð, 20. persónu-
fornafn, 21. etja.
LÓÐRÉTT
1. kvenflík, 3. átt, 4. ávaxtaré, 5.
fóstra, 7. andstaða, 10. svörður, 13.
rangl, 15. rótartauga, 16. tímabils, 19.
skóli.
LAUSN
LÁRÉTT: 2. espa, 6. im, 8. vel, 9. lóm,
11. ra, 12. stóru, 14. þrátt, 16. ár, 17.
frá, 18. róf, 20. ég, 21. siga.
LÓÐRÉTT: 1. pils, 3. sv, 4. perutré, 5.
ala, 7. mótþrói, 10. mór, 13. ráf, 15.
tága, 16. árs, 19. fg.
VEISTU SVARIÐ?
Svör við spurningum á síðu 8
1 1919.
2 Björk.
3 Transparency International.
„Ég er ekki mikið fyrir morgun-
mat, en fæ mér alltaf búst í
World Class eftir æfingu á
morgnana, einn Vöðvasmell og
svo te.“
Alan Jones söngvari.
„Þetta er stærsta tískuvika í
heimi og ég komst að. Ég trúi
þessu varla,“ segir fyrirsætan
og fegurðar drottningin Ingibjörg
Ragnheiður Egilsdóttir, sem hefur
dvalið í New York síðustu mánuði
og komið sér á framfæri.
Ingibjörg sýnir á tískuvikunni í
New York í febrúar á næsta ári, en
allir helstu hönnuðir heims kynna
þar haustlínu ársins 2010. Hún
býst við annasamri viku. „Ég fór
í prufu og maðurinn sem ég tal-
aði við vill koma mér að hjá sem
flestum hönnuðum,“ segir Ingi-
björg. „Hann vill að ég sýni fyrir
hvern hönnuð í klukkutíma í senn.
Sem þýðir að ég tek spretthlaup á
milli sýningarpalla.“
Viðbrögðin sem Ingibjörg fékk
í prufunni komu henni í opna
skjöldu. „Ég bjóst ekki við að fá
jákvætt svar um leið og ég mætti
inn. Það var þannig,“ segir hún.
Fjölmargar fyrirsætur sóttust
eftir að komast að og ljóst er að
færri komast að en vilja. Ingibjörg
verður vafalaust í góðum félags-
skap þar sem fyrirsætur á borð
við Gisele Bündchen, Kate Moss
og Heidi Klum hafa sýnt á tísku-
vikunni og stjörnur eins og Vict-
oria Beckham, Rihanna og Nicole
Ritchie hafa setið á fremstu bekkj-
um við pallana. - afb
Ingibjörg sýnir á tískuvikunni í New York
GLÆSILEG Ingibjörg Ragnheiður
sýnir haustískuna fyrir árið 2010 á
tískuvikunni í New York.
„Þetta kostar aukapening en við
höfum fengið það góð og jákvæð
viðbrögð við myndinni að við töld-
um raunhæft að herja sérstaklega
á þennan hóp,“ segir Sigurjón Sig-
hvatsson, kvikmyndaframleiðandi
í Hollywood. Kvikmyndin Broth-
ers, sem Sigurjón framleiðir, fer
í svokallaða Óskarsverðlauna-
herferð. Það þýðir að hún verður
markaðssett sérstaklega fyrir þá
sem hafa atkvæðisrétt á Óskars-
verðlaununum, svokallaða Aka-
demíu, og annað áhrifamikið fólk
innan kvikmyndabransans. Grein-
ar og viðtöl verða birt í fagtíma-
ritum um myndina og forsýning-
ar haldnar þar sem þessum hópi
verður boðið sérstaklega.
Að sögn Sigurjóns kostar herferð
á borð við þessa þrjár milljónir
dollara, eða tæplega fjögur hundr-
uð milljónir íslenskra króna. „Við
verðum því með tvær herferðir í
gangi, annars vegar fyrir almenn-
ing og hins vegar fyrir þennan
faghóp. Markaðsherferðin í heild
sinni mun því ekki kosta undir 23
milljónum dollara,“ útskýrir Sigur-
jón en það gerir litla þrjá milljarða
íslenskra króna.
Sigurjón segir óvanalegt að jafn
alvarlegri mynd og Brothers sé
dreift í almenn kvikmyndahús en
myndin verður frumsýnd í átján
hundruð bíósölum víðs vegar um
Ameríku í byrjun desember. „Við
erum auðvitað að taka áhættu með
þessu, venjulega er bara takmark-
aður hópur sem vill sjá svona mynd-
ir.“ Sigurjón útskýrir að auglýs-
ingaherferðin einblíni nú aðallega
á þann ástarþríhyrning sem sé fyr-
irferðarmikill í myndinni en minna
á stríðið í Afganistan en það hefur
þó mikil áhrif á líf aðal persónanna.
Með helstu hlutverk fara þau
Natalie Portman, Jake Gyllenhaal
og Tobey Maguire en leikstjóri er
Jim Sheridan. U2 semur síðan sér-
stakt titillag myndarinnar.
Sigurjón segir að ef allt gangi að
óskum og herferðin heppnist vel
geti þau ef til vill uppskorið fimm
til sex tilnefningar. Slík uppskera
krefjist þess hins vegar að lukku-
dísirnar séu á þeirra bandi. „Það
er margt sem vinnur með okkur,
umræðan um stríðið í Afganistan,
þrír ungir leikarar sem njóta mik-
illar hylli og svo leikstjóri sem
hefur verið tilnefndur sex sinn-
um til þessara verðlauna en aldrei
fengið. Ég er þó búinn að vera nógu
lengi í þessum kvikmyndabransa
til að vita að það getur brugðið til
beggja vona.“ freyrgigja@frettabladid.is
SIGURJÓN SIGHVATSSON: BROTHERS FENGIÐ JÁKVÆÐ VIÐBRÖGÐ
Fjögur hundruð milljónum
varið í Óskarsherferð
MARKAÐSSETT
FYRIR ÓSKARINN
Aðstandendur kvikmyndarinnar
Brothers hafa tröllatrú á henni
og hafa hleypt af stokkunum
sérstakri Óskarsherferð. Sigur-
jón Sighvatsson er einn
framleiðenda myndar-
innar en með helstu
hlutverk fara þau
Natalie Portman,
Jake Gyllenhaal og
Tobey Maguire. U2
semur síðan titillag
myndarinnar.
„Það kom inn pöntun um lag frá Unicef, reyndar
fyrsta pöntunin sem við fáum. Nú hljóta Nova og
Kringlan að fylgja í kjölfarið,“ segir Oddur Bjarni,
meðlimur Ljótu hálfvitanna, um nýtt lag með hljóm-
sveitinni. Lagið er lag dags rauða nefsins, sem Unicef
stendur fyrir 4. desember. Hálfvitarnir fengu lausan
tauminn við að semja lagið, þó með því skilyrði að
það tengdist hugmyndinni að baki degi rauða nefsins,
sem er að virkja gleðina til góðra hluta. „Það var vita-
skuld mikil áskorun fyrir okkur því við erum frekar
tregablandið batterí,“ segir Oddur. „Við settum því
þunglyndissjúklinginn í bandinu í málið, Snæbjörn
„Bibba“ Ragnarsson, og hann tæklaði þetta með
glans.“
Niðurstaðan er lag sem heitir „Hættu þessu væli“.
„Það er um gaur sem er að kvarta undan lúxusvanda-
málum. Laginu er beint til þjóðarinnar og hún hvött
til að hætta að nöldra og hafa bara gaman af þessu.“
Unicef hélt síðast upp á dag rauða nefsins fyrir
þremur árum. Af því tilefni gerði Baggalútur lagið
„Brostu“. Lagið með Ljótu hálfvitunum verður sett í
spilun um leið og það verður tilbúið, líklega á morgun.
Bandið tekur lagið svo auðvitað á sjálfum degi rauða
nefsins í mikilli dagskrá sem Stöð 2 sýnir. Eftir fjöl-
skyldutónleika í Salnum í Kópavogi hinn 6. desember
ætla Hálfvitarnir svo að fara í jólafrí. „Við eigum
reyndar einhver jólalög á lager en það eru bara svo
harðir jólalaga-andstæðingar í bandinu að við förum
líklega aldrei í þann bransa,“ segir Oddur Bjarni. - drg
Hálfvitar sjá um gleðina
Skopmyndasnillingurinn
Halldór Baldursson
hefur í nógu að
snúast eins og
endranær. Ásamt
því að teikna dag-
lega mynd í Mogg-
ann teiknar hann
andlitsmyndir af
bloggurum á
Eyjan.is, en
þar virðast
nýir bætast í hópinn nær daglega.
Þá myndskreytti hann barnabók
Guðmundar Steingrímssonar sem
nefnist Svínið Pétur og hefur hlotið
mikið lof fyrir. Loks teiknar Halldór
myndir í væntanlegri heimildar-
mynd leikstjórans Gunnars Sigurðs-
sonar um hrunið, sem verður
frumsýnd í janúar.
Stikla úr kvikmynd Friðriks Þórs
Friðrikssonar, Mamma Gógó,
er komin á netið og má meðal
annars sjá á heimasíðunni logs.
is. Í stiklunni kennir margra grasa
og má meðal annars sjá forseta
Íslands, Ólaf Ragnar Grímsson,
á frumsýningu nýrrar kvikmyndar
leikstjórans, aðalpersónu
myndarinnar, en það er
Hilmir Snær sem leikur
hann. Myndin sem
þarna er frumsýnd heitir
Börn náttúrunnar en hún
nýtur ekki alveg
sömu vin-
sælda og
nafna sín og
fær meðal
annars aðal-
verðlaunin á
kvikmynda-
hátíð á
Benidorm.
- fgg, afb
FRÉTTIR AF FÓLKI
RAUÐA NEFIN KOMIN UPP Ljótu hálfvitarnir með Axel Axels-
syni, sem tók lagið upp, Unicef að kostnaðarlausu.
GLÆNÝ LÍNUÝSA
STÓRLÚÐA PLOKKFISKUR
MARINERAÐUR FISKUR
FISKIBOLLUR
TILBOÐ Í VEITINGASAL
Súpa fi skur og kaffi 990