Fréttablaðið - 19.11.2009, Side 88
DREIFING: dreifing@posthusid.is
EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN OG SKIPTIBORÐ: 512 5000
Mest lesið
VISIR.IS
Ritstjórn: 512 5313, Fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja
Gripin í jólaheimsókninni?
Rétt eftir hádegið í gær stóð til
að þingfesta fyrir Héraðsdómi
Reykjavíkur opinbert mál á hendur
Sophiu Hansen, sem landsþekkt
er fyrir baráttu sína við barnsföður
sinn Halim Al um forræði yfir
dætrum þeirra. Sophia er sökuð
um fjársvik, en málið tengist fyrri
deilum hennar og Sigurðar Péturs
Harðar sonar, áður náins samstarfs-
manns Sophiu, sem enduðu fyrir
dómi fyrr á þessu ári. Fyrsta tilraun
til þingfestingar var í septem ber
og önnur í októ ber. Sophia
mætti ekki þá fremur en
nú, en hún er sögð
dvelja úti i Tyrk landi.
Næst verður reynt
21. desember
og kemur þá
væntanlega
í ljós hvort
Sophia
kemur heim
í jólaheim-
sókn.
Ellý Ármanns snýr aftur
Ellý Ármannsdóttir hefur lengi
verið á meðal umdeildustu penna
landsins. Hún var langvinsælasti
bloggarinn í árdaga Moggabloggs-
ins og þóttu færslurnar stundum
fara að strikinu og jafnvel yfir það. Í
dag eru ekki allir sáttir við fréttirnar
hennar af fræga fólkinu á Vísir.
is, sem klífa þó á topp leslistanna
dag eftir dag. Nú er Ellý byrjuð að
blogga aftur á vefsíðunni elly-
armanns.blogspot.com og byrjar á
sannri, nærbuxnalausri ástarsögu
sem hefst á orðunum: „Þetta er
búið. Kláraðist á sama tíma og
bankakerfið hrundi.
Þetta er allt þessari
elsku að kenna.
Hann lét sér
ekki nægja að
hverfa úr mínu
lífi heldur gerði
hann þjóðina
gjaldþrota á
sama tíma.“
- afb
Svansmerkt
prentverk
1 Lögreglan varar fólk við að
skilja bíla eftir bensínlausa
2 Viltu sofa hjá pabba?
3 Hrædd um börnin á leiðinni í
bótaviðtöl
4 Þungt haldinn eftir fall
5 Fjögurra daga fæðing tvíbura
6 Ásmundur ætlar að gera
Samfylkingunni lífið leitt
FRÉTTIR AF FÓLKI