Vikan


Vikan - 29.10.1959, Blaðsíða 2

Vikan - 29.10.1959, Blaðsíða 2
Hýjor gerðir svefnherbergishúsgagna fjónr tegundir Boröstofuhúsgögn úr teak, eik, mahogny. Dagstofuhúsgögn í úrvali. Russustólar o. m. fl. Svefnsófar svefnstólar og svefnbekkir með svampdýnu. Skrifborð tvær stærðir. Leðurstóllinn hinn fullkomni hægindastóll, alger nýjung á markaðnum. I 1 1 I || Kvenfólk til tunglsins Kort yfir strætisvagnaleiðir. Kæra Vika. I»ótt ég sé gamall Reykvíkingur, er ég ókunn- ugur „borginni", enda þótt ég rataði um „bæ- inn“ í ,dcntíð‘ og rati reyndar sæmilega um bann enn. Ég licf nefnilega dvalizt langdvölum erlendis, og á meðan fiefur risið stórborg um- hverfis gamla bæinn, þar sem áður voru holt, hæðir, melar og mýrar, og um þá stórborg rata ég ekki. Eitt af því, sem ég lærði erlendis, — góðu heilli, — var það að nota sporvagna og strætis- Hagkvæmir greiðsluskilmálar. — Sendum gegn póstkröfu um land allt. Húsgagnavenl. Axels Eyjólfssonar i Skipholti 7, Reykjavík. — Símar 10117 — 18742. ^ . . . og hefur ekki hugmynd um, hvaða strætis- vagnar ganga þangað . . . vagna, en laka ekki bíla á leigu, nema bein nauðsyn krefði. Þar gat maður fengið kort yfir borgina við vægu verði, en á þau voru dregn- ar allar leiðir strætisvagna og stöðvar þeirra. Slík kort finnst mér vanta hér bagalega, að minnsta kosti hef ég livergi fengið þau, þar sem ég hef spurt eftir þeim. MaðUr ætlar til dæmis að skreppa til fólks, sem býr i einhverju úthverfinu, veit götu og húsnúmer og afstöðuna svona nokkurn veginn, en hefur ekki hugmynd uin, hvaða strætisvagnar ganga þangað eða livort þeir stanza þar einhvcres staðar í nánd. Að vísu getur maður spurzt fyrir, en það tekur sinn tíma, og upplýsingarnar koma oft að tak- iniirkuðu gagni, þólt greinilegar séu, þegar mað- ur er öllum staðháttum ókunnugur. Ég er viss uin, að útgáfa sliks korts mundi borga sig, þvi að áreiðanlega yrðu margir til að kaupa þau. Finnst mér það eiginlega standa næst þeim aðilum, sem annast rekstur strætis- vagnanna, að liafa útgáfu þess með höndum, enda víst, að þetta yrði til þess, að vagnarnir yrðu enn mcira notaðir. Hins vegar er vitan- lega ekki heldur neitt því til fyrirstöðu, að eitt- hvert einkafyrirtæki liefði þarna forgöngu. Ég er viss uin, að margur yrði þeim þakklátur, sem tæki sig fram um þetta. Eða hafið þið orðið þess varir, að slíkt korl sé einlivers staðar fá- anlegt? Gamall „bæjarbúi‘. Nei, ég hef ekki orðið þcss var, en oft hef ég óskað þess, að ég hefði slíkt kort í vai- anum. Það eru fleiri en þeir, sem nýkomn- ir eru í okkar nýju borg, sem eru ókunnugir í úthverfunum, — nema þá því, sem þeir búa sjálfir í, og vita fátt um leiðir og stöðvar strætisvagna þar. Ég tck undir það við gaml- an bæjarbúa", að útgáfa slíks korts sé nauð-

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.