Vikan


Vikan - 29.10.1959, Side 3

Vikan - 29.10.1959, Side 3
Að virða vegfarandann syn, — og hafi það þegar verið gefið út, þá sé að minnsta kosti nauðsyn að auglýsa þá útgáfu betur. „Þeir sletta forinni, sem ...“ Kæra Vika. Ég skrifa þér af því, að ég er svo reið, að ég get ekki orða bundizt, — ekki við þig, þvi að þú átt ekkert nema gott skilið, en miklir aga- legir dónar geta þeir verið, sumir þessir bíl- stjórar. Þeir aka fram hjá manni á fullri ferð, þótt forarstraumurinn renni um göturnar, og sletta mann allan út, eins og það er líka huggu- legt eða liitt þó heldur að fá þetta í fötin sín og sokkana. Ég segi það satt, að ég gæti stundum lúbarið þá, ef ég næði til þeirra; eins og til dæinis þann, sem ók fram hjá svona í dag. — Þið ættuð bara að sjá kápuna mína og sokkana eftir þær trakteringar, sem ég fékk. Mega þeir þetta? Hvernig væri, að maður tæki núm- erin og fengi eitthvert blað til að birta þau, svo að þeir fengju þó að minnsta kosti að skammast sín? Þessi var ekki i leigubil, en það er alveg sama, hvorir cru. Ég verð þó lika að taka fram, að ég hef séð bíla hægja á sér, þeg- ar þeir óku í polla, ef einhver var á gangi rétt hjá. En slik hugsunarsemi er fátíð, það verð ég að segja. Éin bálreið. Nei, — þeir mega þetta ekki. Og sem betur fer, eru margir bílstjórar svo tillitsamir, að þcir gera þetta ekki, þótt hinir fyrirfinnist líka. Ég hef ekki neina trú á, að það bætti úr, þótt númer af bíl hins seka eða hinna seku yrðu birt. Hins vegar væri ekki úr vegi, að þeir eða þær, sem verða óþægilega fyrir foraraustri þeirra, færu aðra leið og kærðu þá — og krefðust þess, að þeir greiddu hreins- unina á fötunum, sem þcir sletta út. „Tunglfarþegar, athugið. Næsta eldflaug leggur af stað eftir...“ Iíæra Vika. Ég tek það fram, að ég hef aldrei skrifað þér fyrr eða spurt neins, svo að ekki verður sagt, að ég sé með sífellda rellu. En nú langar mig til að fá upplýsingar um ákaflega merkilegt mál, og af því ég hef ekki hugmynd um, hvert skal snúa sér, skrifa ég þér, ef vera mætti, að þú gætir ráðlagt mér eitthvað. Ég hef ákaflega mikinn áhuga á tunglferðum og öllu þess háttar. Og nú hef ég lesið það í blöðunum, að ákveðið sé að senda stúlkur til tunglsins, þegar þar að kemur. Ég hef lika lesið, að í Bandaríkjunum hafi verið valið úr karl- mönnum til þess að fara væntanlega tunglferð og þeir, sem fyrir valinu urðu, séu síðan i stöðugri þjálfun Og nú er ég komin að efninu: Ætli það verði auglýst eftir stúlkum sem sjálf- boðaliðum til tunglsins? Og ef það verður, ætli það verði þá eingöngu bandariskar stúlkur, ^ sem koma til þeirra? Ætli þær verði að vera af einhverri sérstakri stærð og þyngd? Hvert skyldi maður geta snúið sér til að fá nauðsyn- legar upplýsingar? Seytján ára mánaskvísa. Ég þakka .þér tilskrifið, mánaskvfsa. Það er sannarlega gaman að vita til þess, að ís- tenzk æska skuli þegar hafa fengið svdi mikinn áhuga á tunglferðum, og sannar Framh. á bls. 3Jf. ¥ lk \\ Útgefandi: VIKAN H.F. Ritstjóri: Gísli Sigurðsson (ábm.) Auglýsingast j óri: Ásbjörn Magnússson F ramkvæmdast j óri: Hilmar A. Kristjánsson Verð i lausasölu kr. 10. Áskriftarverð kr. 216.00 fyrir hálft árið, greiðist fyrirfram. Ritstjórn og auglýsingar: Skipholti 33. Símar: 35320, 35321, 35322. Pósthólf 149. Afgreiðsla og dreifing: Blaðadreifing, Miklubraut 15, simi 15017 Prentun: Prentsmiðjan Hilmir h.f. Myndamót: Myndamót h.f. ------------------------------------------I FORSÍÐAN: Þiö sjáiö aö þaö er kosningahugur í mönnurn á forsíöumyndinni, þótt kosningarnar séu liönar. Flokkarnir hafa sent út þessa einstaklega viröu- legu fulltrúa, sem eiga aö ná til kjósenda á staur- um og giröingum. Menn eiga aö skipta um póli- tíska trú — daginn fyrir kosningarnar — viö þaö eitt aö sjá litsterka miöa á staurum — já, þaö er viröing, sem háttvirtum kjósendum er sýnd. Hinir gáfuöu og viröulegu fulltrúar flokkanna umbera illa hvor annan og kringum staurana eru pappírsflekkir aö kosningahríöinni lokinni. ÞaÖ má ekki á milli sjá, liver má sín betur, Æ-listinn, Y-listinn eöa Z-listinn. En kjósendurnir, sem eiga leiö framhjá, eru grafalvarlegir, því þeir geta aö vonum tæplega áttaö sig á því, hvern þeir eigi aö kjósa, meöan þeir sjá ekki greinilega, hver á fallegastan miöa og hver sigrar í stauraslagnum. SINDRA- húsgögnin vekja hvarvetna athygli: Á sýningu Norðurlandanna „Formes Scandinaves“ í París og nú síðast á „Svenska Massan í Gautaborg hlutu þau góða dóma. Eldús Borðkróka Borðstofur Setustofur Biðstofur Skrifstofur Fundarsali Veitingastofur Félagsheimili Gistihús Borðin eru fáanleg með Teak eða Plast-plötu. Stólar, borðfætur og grindur eru úr gljábrenndu stáli. SINDRASMIÐJAN H.F. HVERFISGÖTU 42. Sölustaðir: Reykjavík: Sindrasmiðjan h.f., Hverfisgötu 42. Húsgagnaverzl. Austurbæjar Skólavörðustíg 16. Helgi Magnússon & Co. h.f., Hafnarstræti 19. Akranesi: Benedikt Hermannsson. Stykkishólmi: Sigurður Ágústsson. ísafirði: Valbjörk. Sauðárkróki: Steingrimur Arason. Siglufirði: Haukur Jónasson. Akureyri: Bólstruð Húsgögn. Egilsstöðum: Sigurbjörn Brynjólfsson. Vestmannaeyjum. Marinó Guðmundsson. | Kefiavík: Gunnar Sigurfinnsson.

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.