Vikan - 29.10.1959, Side 16
7
^di
&
&
HrútsmerkiÖ (21. marz—20. apríl):
Undanfarið hefur þér og kunningjum
þínum ekki komið verulega vel saman.
Nú eru líkur á því, að úr þessu rætist,
en ef svo á að verða, verður þú að
viðurkenna veikleika þína og biðjast afsökunar.
Þú skalt ekki ferðast mikið þessa viku, þótt úti-
vera sé þér samt holl. Heillatala 5.
Nautsmerkiö (21. apríl—21. maí): Nú
verður þú að taka á þig rögg og fara
að afhafast eitthvað. Þetta aðgerða-
leysi gengur ekki til lengdar. Þú verð-
ur að minnast þess, að þú lifir ekki
einungis fyrir sjálfan þig, heldur ert þú háður
umhverfi þínu.
Tviburamerkiö (22. maí—21. júní): Þú
virðist gera þér áhyggjur af engu. Að
minnsta kosti gerir þú úlfalda úr mý-
flugu. Það eiga allir sér smávægilegar
áhyggjur, en ekki dugir að láta þvilíka
smámuni gera sér lifið leitt. Þótt útlitið sé ekki
sem bezt eins og er, mun úr þessu rætast, fyrr
en varir.
Krabbamerkiö (22. júní—23. júlí):
Láttu fyrir alla muni ekki afbrýðisemi
eyðileggja fyrir þér framtíðaráætlanir
þínar. Stjörnurnar sýna það greinilega,
að einmitt í þessari viku ber þér að
reyna að ná sættum, ellegar getur það verið um
seinan. Allt bendir til þess, að talan sex verði
þér til nokkurs ama.
Ljónsmerkiö (24. júlí—23. ág.): Þér til
mikillar undrunar mun dálítið koma
fyrir þig í þessari viku, sem þú hefur
aldrei látið þig dreyma um, að gæti
komið fyrir. Vikan verður í alla staði
ákaflega skemmtileg og viðburðarík,
MeyjarmerkiÖ (24. ág.—23. sept.):
Stjörnurnar koma upp um það, að þú
hefur verið laglega að blekkja sjálfan
þig. Á þessu munt þú fá að kenna, og
þú átt það sannarlega skilið. Undan-
farnar vikur hefur eitthvað verið á seyði bak
vði tjöldin, en um helgina munt þú fá vitneskju
um það, en það kemur þér þægilega á óvart.
VogarmerkiÖ (24. sept.—23. okt.):
Þessa viku verður þú að íhuga allt
það, sem þú segir og skrifar, því að
annars getur þér orðið á glappaskot,
sem verður þér afar dýrkeypt. Minnstu
þess, að það eru ekki allir, sem þola að heyra
sannleikann..
Drekamerkiö (24. okt.—22. nóv.): Allt
bendir til þess, að þú kynnist manni
eða konu, sem þú verður um of upp-
tekinn af næstu daga. Ekki er einu
sinni víst, að þessi nýi kunningi þinn
sé vináttu þinnar verður. Stjörnurnar vara menn
mjög við fljótfærni.
BogmaÖurinn (23. nóv.—21. des.): Þú
verður að hætta að fara eins og kött-
ur S kringum heitan graut. Þetta mál,
sem þér er svo hjartfólgið, verður að
útkljá og það hið fyrsta. Stjörnurnar
benda eindregið á einhvers konar gróða, en ekki
er ljóst, hvers kyns. Heillatala 4 fyrir karlmenn,
en 9 fyrir kvenmenn.
Geitarmerkiö (22. des.—20. jan.): Ef
þú leitar hjálpar vinar þíns, mun það
verða ykkur báðum til góðs. Þú ættir
að gera Þér far um að kynnast þessum
kunningja þinum betur. Margt bendir
til þess, að þú iendir í einhverjum fjárkröggum
þessa viku, en úr þvi virðist rætast fyrr en varir.
Vatnsberinn (21. jan.—19. febr.): Ein-
hver úr fjölskyldunni mun skyndilega
fara að skipta sér af þínum málefnum
án nokkurs tilefnis, og þú verður að
beita allri kænsku þinni til þess að
banda honum frá þér án þess að móðga hann
(hana). Þú virðist ekki standa vi.ð loforð Þín.
FiskamerkiÖ (20. febr.—20. marz): Þú
verður að gæta tungu þinnar þessa
viku (sem endranær). því að annars
getur það orðið til þess, að góðkunn-
ingi þinn snúi við Þér baki, þótt orð
þín hafi verið aigerlega græskulaus. Margt bendir
til þess, að nú verði innileg ósk þin loks uppfyllt
og það á nokkuð einkennilegan hátt.
• •
•3
©
iMSSÍ
Vestan við Laugaveg 17ti er svolitil' eyða niilli
stórbygginganna. Neðan við götuna eru að risa
tvö niu hæða ibúðarliús, uppi á hæðinni gnæfir
Sjómannaskólinn, og ýmiss konar iðnaðarhús-
næði þýtur upp úr berangurslegu holtinu.
Á miðri eyðunni er heldur óhrjálegur hænsna-
kofi, og hænsnin eru varla nokkurs staðar ó-
huit fyrir umferð. Um hádegisbil kemur gömul
kona með matinn handa þeim, og þá ganga þau
þétt á eftir benni upp að kofanum.
Hænsnarækt
í hálía öld
Sæl vertu, þú ert að gefa þeim liádegis-
inatinn.
O-já.
Att þú hænsnin sjálf?
— Já, ég á þau greyin. — Ég er nú orðin
fyrir með þau, — þeir eru búnir að segja mér
að fara, en ég sagði þeim, að ég færi ekki fet.
fyrr en ég hefði fengið skika undir annan kofa.
Ertu búin að vera lengi með hænsnin bér?
— Ekki svo mjög lengi liér, — lengst af ann-
ars staðar. En ég er búin að hafa bænsni i 50
ár, komst hæst upp i 200 stykki. en nú eru þær
kringum 100.
Heldurðu nú, að þú fáir skika?
—- Já, ég hef von um það. Kofinu er garmur.
ég lief ekkert viljað Ieggja i hann á þessum
stað. Það var rifinn niður ágætur kofi, þar sem
ég var áður með þau.
— ()g þær verpa.
— Prýðilega. Það þykir gott að fá 50 egg á
dag úr 100 pútum, en ég fæ þetta 75—80. Svo
er ég með endur. — Fjórar þeirra eru danskar,
og þær halda sig sér. íslenzlui endurnar eru
líka út af fyrir sig, en þó er samkomulagið
ágætt, •— ekkert rifrildi. En það er gott að vera
með endur. Reyndar var ég með fleiri, en það
var stolið 8 stykkjum frá mér í fyrra.
— Verður ekki þessi fiðurfénaður þinn fyr-
ir bilum á götunum hérna?
— Það kemur varla fyrir. Hitt skeður oft:
að strákar eru að henda i þau- grjóti og skaða
þær.
Við birtum þessa mynd til „skræk og advarsel",
eins og Danskurinn mundi segja. En viðvaranir
í þessu efni virðast annars hafa lítil áhrif. 1
hverri viku birta blöðin myndir al klesstum
bílum og fregnir um limlest fólk eftir bifreiðar-
slys. Samt er ekki að sjá, að nokkur aki gæti-
legar en ella. Það flýtur, á meðan ekki sekkur.
Um að gera að „taka sjansinn“ og komast fram
úr, þótt líf og limir sé lagt í hættu. Þaðl græð-
ast þó alltaf 5—10 sekúndur, ef það tekst. En
stundum tekst það ekki, eins og til dæmis á
myndinni hér. Fólksvagninn varð undir vöru-
bíl með rnarga vagna aftan í. Þeir fóru allir
á hvolf, og þið sjáið sjálf, hvernig muni hafa
farið fyrir þeim, sem óku í Fólksvagninum. —
Myndin er frá Svíþjóð.