Vikan


Vikan - 17.12.1959, Side 3

Vikan - 17.12.1959, Side 3
JOLAGJAFIR Til jólagjafa Kven- og karlmannsúr, stofu- klukkur, eldhúsklukkur, vekjara- klukkur, skákldukkur. Nivada Nivada Tissot Roamer Alpina Terval Kienzle Junghans Mauthe Smiths Urval af gjafavörum hentugum til jólagjafa URVIDGtRDIR fljótt og vel af hendi leystar Póstsendum um allt land Magnús E. Baldvinsson úra og skartgripaverzlun Laugavegi 12 - Sími 2 28 04 © Guðleysi eða — © Messur í útvarpi # Heitið rassskellingu © Feiminn við þá útvöldu Hlédrægur og feiminn. Iíæra Vika. Blessuð reyruhi að hjálpa mér í vandræðum mínum. Svo er mál með vexti, að ég er hrifinn af stúlku, sem ég þekki litillega. Við heilsumst alltaf, þegar við hittumst, og ég dansa alltaf við liana, þegar ég fer á dansleiki. En ég er að eðlis- fari hlédrægur og feiminn og get þvi aldrei byrj- að að tala við hana að fyrra bragði. Nú treysti ég á þig, Vika mín kær, að þú gefir mér góð ráð. Um hvað á ég eiginlega að tala við stúlkuna? Með fyrir fram þakklæti. Örvæntingarfullur. Ef til vill er þetta meira vandamál en þú sjálfur gerir þér ljóst — og sá vandi á upp- tök sín í minniniáttarkennd þinni. Tækist þér aðeins að sigrast á henni, mundi þig áreiðanlega ekki skorta umræðuefni. Lakast er þó, ef stúlkan þjáist h'ka af minnimáttar- kennd, því að annars gæti hún átt frumkvæði að því að brjóta ísinn. En ef þú reynir að gera þér ljóst, hvílíkur sannleikur felst í svari því, sem Þorgerður Egilsdóttir, Skallagrímssonar, veitti Ólafi pá forðum: „Þú munt þykjast hafa gert meiri þoranraun en tala við konur“, þá er það strax skref í áttina. En gættu þess fyrst og fremst, að enginn sigrast á slíkum örðugleikum ineð atbeina vínsins, þótt margur láti glepjast af slíkri blekkingu. Hvernig á ég að að fara? Kæra Vika. Ég er nemandi í einum af skólum bæjarins, en ekki skiptir neinu máli í þessu sambandi, hvaða skóli það er. Einn af kennurum minum hjó fyrir nokkrum árum í næsta húsi við mig, og þá hef ég víst verið liálfgerður villingur, eins og það er kallað. Svo var ég einu sinni í feluleik með öðrum stelpum og strákum, og þá laumaðist ég inn í garðinn hans og ætlaði að fela mig þar, en liann sá til min og misskildi þetta, hélt, að ég ætlaði að stela blómunum, og kallaði til mín, ógurlega byrstur, að hann skyldi rassskella mig, ef ég léti ekki blómin hans í friði. Ég varð svö hrædd — þetta var í fyrsta skiptið, sem mér var hótað flengingu, og sem betur fer, líka í hið síðasta, — að ég gat ekki lireyft mig fyrst, en svo stökk ég heim, þorði ekki að segja neinum frá þessu, og léngi á eftir ætlaði ég aldrei að sofna á kvöldin, þvi að mig tók svo sárt, að hann skyldi halda, að ég ætlaði að stela. Svo var ég víst búin að gleyma þessu, cn nú er hann kennari minn, og þá rifjast þetta upp og með þeim afleiðingnm, að mér er lífsins ómögulegt að kunna hjá hon- um, þvi að mér finnst alltaf, ]ió að ég viti það ekki, að hann þekki mig og haldi enn, að ég hafi ætlað að stela í garðinum lians, og i hvert skipti, sem hann beinir orðum sinum til mfn, hrekk ég við, því að mér finnst, að liann sé að hóta mér flenginu. Vika mín — hvernig á ég að að fara? Fjórtán ára skólaskvisa. Merkilegt bréf, skólaskvisa mín. Hvernig þú átt að að fara — það er ofur einfalt, enda þótt þér finnist kannski ekki alls kostar auð- velt að framkvæma það. Gakktu á fund við- komandi kennara og segðu honum upp alla söguna, eins og þú segir hana í bréfinu, og hann mun áreiðanlega skilja vandræði þín. Þegar þú hefur komið þessu í verk, muntu vafalaust komast að raun um, að allt fellur í ljúfa löð. Að nokkrum árum liðnum hefurðu þarna efni í prýðisgóða smásögu, hvort sem þú nú skrifar hana cða segir börnum þín- um. Taktu í þig kjark, og það sem fyrst ... Útgefandi: VIKAN H.F. RITSTJÓRI: Gísli Sigurðsson (ábm.) AUGLÝSING ASTJÓRI: Ásbjörn Magnússon FRAMKVÆMDASTJÓRI: Hilmar A. Kristjánsson Verð í lausasölu kr. 10. Áskriftarverð kr. 216.00 fyrir liálft árið, greiðist fyrirfram. Ritstjórn og auglýsingar: Skipholt 33. Símar: 35320, 35321, 35322. Pósthólf 149. Afgreiðsla og dreifing: Blaðadreifing, Miklubraut 15, sfmi 15017 Prentun: Hilmir h.f. Myndamót: Myndamót h.f. Ekki guðleysi .. . Kæra Vika. Ég þakka þér margt, sem þú hefur birt, en annars skrifa ég þér þetta bréf, ef bréf skyldi kalla, til að minnast ofurlílið á það, sem þú hefur ekki birt og mér finnst nokkur ljóður á ráði þínu. Hvernig stendur á því, að þú, ég held helzt ein allra blaða, fluttir ekki neina krislilega hugvekju í jólablaði þínu? Mér finnst það eiganlega ekkert jólablað vera, sem ekki flytur jólahugvekju eftir einhvern kunnan prest eða kennimann. Ég er ekki beinlinis að saka þig um guðleysi, öllu fremur hirðuleysi, sem mér finnst ekki afsakanlegt gagnvart lesendun- um; vpna samt, að þú móðgist ekki, en hafir i huga liið fornkveðna, að sá er vinur, er til vamms segir. Með beztu kveðjum. Hreinskilinn. Satt er þrð, Vikan flutti ekki neina kristi- lega hugvekju í jólablaði sínu. Ekki gekk henni þar þó beinlínis guðleysi til, öllu fremur hið gagnstæða. Okkur finnst jólahá- tíðinni satt að segja ekki sérlega mikil virð- ing sýnd með því, að hvert blað og blaðsnep- ill kaupi „einhvern kunnan prest eða kenni- mn.nn“ til að endursegja þar um hver jól þá jólahugleiðingu, sem hann var keyptur til að endursegja annaðhvort í því sama blaði á jólum í fyrra, hitteðfyrra og árinu þar áð- ur og hvorki hann né viðkomandi blað virðist gera ráð fyrir að nokkur lesi — að minnsta kosti ekki, að nokkur muni þær hugvekjur frá ári til árs. Auk þess á almenn- ingur völ á svo miklu guðsorði f sambandi við jólin, bæði í útvarpi og f kirkjum, að óþarft er að kvarta um nokkurn skort á því — og enda þótt máltækið segi, að sjaldan sé góð visa of oft kveðin, þá er mála sannast, að svo mjög má staglast á því efni, sem í sjálfu sér er fagurt og hátíðlegt, að það verði hvimleitt og hversdagslegt, og satt bezt að segja, þá finnst mér þessi jólahugvekju- flutningur blaðanna minna að verulegu leyti Framh. á bls. 33. VIKAN 3

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.