Vikan - 17.12.1959, Side 5
nioursoðnum ávöxtum, samtals kr. 80,00R^æskujólum. Iíerti, sem sagt — kerti fyrir
og loks þurrkaðir ávextir fyrir kr. 30,00—'*fUm kr. 50 00.
40,00.
Jólabaksturinn fylgir þjóðlegu jóla-
haldi ekki síður en hangikjötið. Til dæmis
mun laufabrauðið enn vera bakað um
jólin sumstaðar á landinu. En þó við
sleppum nú laufabrauðinu i þessum út-
reikningum, mun allt efni i venjulegan
jólabakstur — miðað við fimm manna
fjölskyldu — nema allt að kr. 240,00, og
þó ekki mjög ríflega áætlað. Sé þar að
auki keypt terta, þegar kunningjarnir
koma í heimsókn, má gera ráð fyrir að
hún kosti um kr. 90,00. Séu keyptir tveir
lítrar af rjóma, verður sá kostnaður kr.
72,00. Og jólahreingerningin, ekki má
sleppa henni, en nauðsynlegt efni til
hennar mun kosta um kr. 40,00, og þurfi
að kaupa einliverja aðstoð, kostar hún sitt.
Jólatré og jólatrésskraut er svo sjálf-
sagt, að ekki þarf að fjölyrða um það
frekar, og er sá kostmitðarliður áætlaður
kr. 250,00 — pappírssknaut i stofur með-
talið. Og þótt flestir hafi rafljós á jóla-
trjám nú orðið, eru kerti lteypt engu að
síður, því að án kertaljósa væru engin
jól, að minnsta kosti ekki fyrir fullorðna
fólkið, sem man bjarma þeirra á sínum
Og einlivern munað verður maður að
leyfa sér um jólin. Ef húsbóndinn kaupir
eina lengju af vindlingum, má að vísu
gera ráð fyrir að hún endist eitthvað fram
yfir hátiðina, en hún mun kosta um kr.
300,00. Kaupi hann einn pakka af vindl-
um, lcostar hann kr. 35,00 — sæmilegasta
tegund, meira að segja. Svo er það eitt-
hvað af sælgæti, og væri ekki um mikið
magn að ræða, þótt keypt væri fyrir kr.
100,00, og loks gosdrykkir fyrir annað
eins, kr. 100,00. Margir, sem þó kaupa
annars vín, þótt ekki sé nema í hófi, sem
maður segir, munu hafa það fyrir fasta
venju að kaupa aldrei vín um jólin; en
svo eru til aðrir, sem fylgja þeirri þjóð-
legu venju að fá sér á jólapelann, og til
munu menn, sem kaupa vín fyrir jólin
til að gleðja kunningjana, enda þótt þeir
kaupi það yfirleitt ekki annars. Svona er
nú mannskepnan margbreytileg. Og svo
eru að sjálfsögðu þeir, sem hvorki kaupa
vín á jólum né endranær. Ef við gerum
ráð fyrir, að ein flaska af sæmilegu víni
sé keypt, kostar hún um kr. 240,00. Vera
má að sumir kaupi tvær. Og ef menn
Framh. á bls. 33.