Vikan


Vikan - 17.12.1959, Síða 20

Vikan - 17.12.1959, Síða 20
FRAMHALDSSAGA Hann hafði ekki getað varizt því að hlusta með allar taugar stríðþandar, en hann heyrði ekkert grunsamlegt ofan af loftinu og var þó naumast hægt að opna svo hurð þar, að marrhljóð bærist ekki niður i hinni algeru næturkyrrð. Og slíkt hljóð hlyti að magnast eins og bergmál fyrir ofnæmum hlustum hans. Þegar hann löngu seinna læddist inn í svefnherbergið var Áslaug búin að slökkva á kertinu og bærði ekki á sér, enda hafði hann ekki talað til hennar, þó að hann teldi víst að hún vekti. Svona var þá komið á miili þeirra á fyrsta hjúskaparárinu, svo skyndi- Iega hafði ský dregið fyrir sólu í hjónabandi þeirra, sem hann hafði talið svo óumræðilega far- sælt og traust allt fram að þeirri stundu, er hann hafði nefnt nafn þessa óhappamanns fyrir eyrum konu sinnar og séð hversu mjög henni brá. Síðan hafði hann fengið hverja sönnunina eftir aðra fyrir ást hennar til Olfars, og ef til vill hafði hún einmitt komið til hans i þeim tilgangi að segja honum hug sinn, er hann fór að vandræð- ast yfir ræðu sinni, alltaf sjálfum sér samkvæm- ur, altlaf vesalmenni, sem fór undan i flæmingi, hikaði og hopaði, þegar átti að bregðast við vel og vasklega og verja það, sem var honum sjálfum lífinu dýrmætara. — Olfar var þvílíkur maður, sem konur allra alda hafa dregist að viðnáms- laust, hann var þróttmikill bardagamaður og ó- fyrirleitið glæsimenni, hann léti ekki viðkvæmni né samvizkusemi vefjast fyrir sér, hann spyrði að leikslokum en ekki vopnaviðskiptum. Nei, Olfar var áreiðanlega ekki vandur að vopnum og þvi hafði það verið enn óafsakanlegri aumingjaskap- ur að hafa ekki borið hönd fyrir höfuð sér og hrundið ásökunum, sem á hann voru bornar og vekja ef til vill meðaumkvunarblandna fyrirlitn- ingu Áslaugar. Honum stóð það lifandi fyrir hug- arsjónum, hvernig svipur hennar hafði skyndilega harðnað, þegar hún staldraði við og hlustaði á kappræðurnar, en þó hafði hún látið sem ekkert væri, hagað sér eins og algerlega hlutlaus áheyr- andi eða húsmóðir, sem engu öðru gefur gaum, en að gleðja gesti sína og gera vel til þeirra og brosti jafnvel við þeim, sem lengst gengu í árás- um á hann Hafði hún fyrirorðið sig fyrir hanr —? Hafði Olfari tekizt að sanna henni það, sem hann ætlaði sér og leikurinn var til gerður, hvi- líkur munur væri á gáfum þeirra og baráttuþreki, hversu mjög hann væri manni hennar fremri? Nú sat hann á eintali við Áslaugu og beitti öllum hæfileikum sínum og glæsibrag til að vinna hana. Þau tvö saman ... sú hugsun kom aftur og aftur, og tók á sig mynd, sem var honum til óbærilegrar kvalar. Þau tvö ... . Ef Áslaug ynni Olfari meira, já annað var í rauninni óhugsandi, ne vildi þó ekki yfirgefa mann sinn vegna Þess að hún aumkvaði hann og vissi að honum yrði ofraun að missa hana, ætti hann þá að þiggja þá fórn? ' Nei, nei, Áslaug yrði að fá að lifa lífinu í sam- ræmi við tilfinningar sinar hvernig sem um hann 4. HLUTI færi Hann hvorki vildi né mátti skerða hamingju hennar né skyggja á hana með þrekleysi sinu. Og þó vissi hann, að missti hann Áslaugar, yrði hann minna en hálfur maður eftir. Hann hafði notið mikillar hamingju i hjónabandi sínu, það hafði bæði veikt hann og styrkt, yrði hann sviftur hamingjunni fylgdi styrkurinn með. Minningar um óhöpp og ósigra komu fram í huga hans, hörð og oft vonlítil barátta örsnauðs skólapilts riíjaðist upp fyrir honum. Hann hafði eftír Þórunni Elíu Magnúsdóttur stundum eftir að hann fékk embætti sagt nánum vinum frá fátækt sinni, jafnvel haft um hana hreystiyrði og brosað dálítið laundrjúgur, því að vissulega fann hann til metnaðar yfir þvi að hafa sigrast á erfiðleikunum og náð því takmarki, sem hann hafði sett sér. En þrátt fyrir það sat eftir í honum gömul beiskja, það var sem umkomu- leysi hans og auðmýkjandi fátækt, sem honum hafði ekki tekizt að leyna fyrir skólabræðrum sínum né öðrum, hversu mjög, sem hann reyndi til þess, hefði sett fingraför á sálu hans. Á öllum erfiðum stundum gerði þessi beiskja vart við sig, og hann spurði þá sjálfan sig þeirrar spurningar, hvort sigurinn væri baráttunnar verður? Nú þurftí hann ekki að spyrja, og þó ætlaði hann ekki að etja kappi við Olfar. Nei, Áslaug skyldi vera frjáls að því að velja sér þann mann, sem hún helzt kysi, sér til samfylgdar — og hann var ekki I neinum vafa um, hver hæfði henni bezt og gerði veg hennar mestan. Hvað var nú þetta? Hann kippti þéttingsfast becslistaumana. Fram undan honum byltist Laxá uppbólgin og dimmleit milli hvítra skara. Gráni hafði breytt stefnunni án þess að hann hefði veitt því nokkra athygli og valið þá leiðina, sem skemmri var og meira notuð að sumrinu, þegar áin var minnst og auðveldust yfirferðar. Hann sá traðk við ána, einhver hafði farið yfir hana fyrir skemmstu, ef til vill maðurinn, sem sótti hann til barnsnis. Prestur hlustaði eins og i leiðslu á þungan ár- niðinn og horfði út í dimman vatnsflauminn. Var ekki eins og hönd örlaganna hefði leitt hann á þennan stað? Ef hann legði í ána nokkru neðar en vaðið var mundi hann lenda í straumkastinu, sem áður hafði slitið mann af hesti og borið hann ofan í Banahyl. Allri kvöl og baráttu væri þar með lokið — og Ásalug yrði frjáls. Nei, nei, þannig mátti hann ekki hugsa, það var syndsamlegt og allri skynsemd fjarri. Eftir dauðann kemur dómurinn. Og Áslaug mundi þjást yfir þvi, ef til vill ævilangt, að hún bæri sök á dauða hans Prestur kippti í taumana og ætlaði að víkja Grána frá ánni, en hann reisti makkann og frýs- aði, það var engu líkara en hestinn fýsti að leggja út í vatnsfallið, presti varð skyndilega brugðið, það kom yfir hann ómótstæðileg löngun eftir að þreyta fangbrögð vði Laxá, þennan sí- kvika, undarlega óvætt, sem mörgum hafði I hel komið frá því sögur hófust. Því var likast sem glímuskjálfti færi um prest, með föstu taki, sem knúði hestinn til skilyrðislausrar hlýðni, kippti hann I taumana og sveigði skáhalt niður með Laxá. átti ekki margt vantalað við þennan mann, en þó það væri ekki margt varð það að segjast, sjálf- sagt mundi hann gera henni örðugt fyrir, en þá var að taka því. Hún brá við hart og ætlaði rak- leitt á fund hans, en þegar hún kom inn í stof- urnar, sem stóðu opnar með dúkuðum langborð- um, og sá hve stúlkurnar voru verkasmáar og. vandræðalegar við að bera fram varð henni Ijóst að ekkert mundi ganga undan nema með rögg- samlegri samvinnu hennar og öruggri forustu. Hún varð að leggja til útsjónina og skipuleggja vinnuna fyrir þær, og áður en varði var hún komin í óða kapp við að bera fram og ryðja burtu borðum og stólum, sem höfðu verið settir inn vegna gestkomunnar. Þegar allt var komið I lag i stofunum lét hún bera tJlfari kvöldverð einum saman, án þess að afsaka fjarvist sina á nokkurn hátt, en hugsaði þó með sjálfri sér: for- lögunum fresta má, en fyrir þau komast eigi. Þannig var með hana og Úlfar, það var hægt að fresta því frá einni stundu til annarrar að þau gerðu upp sakir sínar, en hjá því varð ekki komizt, og bezt yrði að ljúka því af áður en Páll kæmi heim. Hún fór upp í svefnherbergið sitt til Þess að snyrta sig ögn til og brosti þó meinlega að sjálfri sér, því að hún fann, að hvort heldur var fyrir fordildar sakir eða annað þá mundi hún einna sízt vilja að Úlfar sæi misbrest á útliti hennar eða snyrtingu. Úlfar hagræddi sér makindalega í hægindastól prestsins og gaf inniskónum hans hýrt auga, en stóðst þó freistinguna að setja þá á sig, því að frúnni mundi þá sennilega finnast hann gera sig full heimakominn. Já, frúin á Hrauni sýndist vera ráðin í að taka þessa nýju stöðu sína í fullri al- vöru og ætla að verða honum þung i skauti. En ef til vill átti það ekki hvað minnstan þáttinn i því að honum hafði aldrei fundizt hún jafn eftrisóknarverð og nú, aldrei fundizt jafn mikið til vinnandi að fá hennar. „Áslaug min, Áslaug Bergsson," hugsaði hann upphátt. Slíkar konur sem hún voru sannarlega fágætar, hún var gimsteinn, sem leiftrandi ljóma lagði af og alltof mikil atgjörfis- og glæsikona til þess að vera maddama pokaprests í miðlungs- prestakalli. Hún var aðeins fullsæmd af hefðar- kjörum og mundi skipa hvaða tignarstöðu, sem væri með fullum heiðri. Það var mikill vegsauki að hafa slíka konu sér við hlið Glópur var hann, að hafa ekki skilið þetta fyrr til hlítar, þurfti hann að sjá hana sem húsfreyju annars manns til þess að vita, hvað hann vildi og hafði raunar alltaf viljað? Voru það töfrarnir. spm henni hafðl tekizt að varpa yfir þetta þægincfcasnauða sveita- VII. Þegar frú Áslaug kom ein heim frá þvi að fylgja manni sínum úr hlaði var hið seinasta af kaup- staðarfólkinu búið til heimferðar og beið þess eins að geta kvatt hana. Úlfar var úti við, en á honum var ekkert fararsnið. „Ætlar þú að sleppa svo góðri samfylgd, Úlfar?" spurði hún stundarhátt. „Já, ég læt mig hafa Það. Hver yeit nema mér takizt að fá betri samfylgd seinna,“ gegndi hann að bragði og brosti við, og Áslaug sá að gest- irnir, sem á heyrðu tóku vel eftir og lögðu áreið- anlega alveg sérstaka merkingu í orð hans, enda voru þau Þannig sögð að eftir þeim skyldi tekið. Hvað er það eiginlega, sem hann er að koma fólki til að halda? hugsaði hún, en gafst Þó ekki tóm til að ihuga það nánar. Hún hafði ætlast til þess að Úlf-ar færi, og vikið að því við hann fyrr um daginn, að hann fengi skemmtilegt föru- neyti í bakaleiðinni, fyrst kaupstaðarfólkið hefði svo óvænt sótt kirkju að Hrauni. Úlfar hafði fáu til svarað, en brosað í kampinn íbygginn á svip og hlakkandi eins og hann byggi yfir skemmtilegu ráðabruggi, sem ekki væri tímabært að gera upp- skátt. Er síðbúnustu gestirnir héldu á brott sneri Áslaug sér við til að yrða á Úlfar, en hann hafði þá tekið þann kostinn að hverfa inn í ofnhitann. Stundarkorn stóð hún tvíráð og beit á vör. Hún 20 VIK A N

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.