Vikan - 17.12.1959, Síða 24
AÐALHLUTVERK
Farþegaskipið Ile de France
öslar yíir Atlantshaí áleiðis tii
Frakklands. Bandaríski gaman-
leikarinn Bob Hunter (Bob
Hope) er farþegi á skipinu.
Hann er að fara til Parísar til
að kaupa nýjasta handrit rit-
höíundarins Serge Vitry. Með-
al farþega eru einnig hinn
franski starfsbróður Bobs,
Frenydel (Fernandel), og fal-
leg stúlka, Ann McCall (Martha
Hyer), sem starfar við banda-
ríska sendiráðið í París. Bob
Hunter fellur kylliflatur fyrir
stúlkunni, og með aðstoð
Fernydels tekst honum að ná
nokkrum árangri í viðleitni
sinni til að sigra hana. En í
þessari paradís er auðvitað
eiturslanga. Hún heitir Zara
(Anita Ekberg), og kemur í
ljós, að hún gefur Mötu Hari
ekkert eftir. Hlutverk Zöru
þarna um borð er að koma í
veg fyrir, að Bob Hunter takist
að kaupa handritið, sem hann
er á hnotskóg eftir, og hring-
urinn, sem hún starfar fyrir,
liefur falið henni að stela hand-
ritinu frá Bob. Það tekst ekki
um borð af þeirri einföldu
ástæðu, að Bob var þá auð-
vitað ekki búinn að komast yfir
handritið.
Ákvörðunarstaðnum er náð,
og Bob heldur þegar á fund rit-
höfundarins. Þeir hittast, en
skyndilega er rithöfundurinn
kallaður í síma. „Ég kem strax
aftur,“ segir hann, áður en
hann fer fram. En úr því verð-
ur ekki. Bob bíður tímunum
saman, en verður (oks að fara
an þess að hafa lokið ætlunar-
verki sínu.
Nú fer að koma ýmislegt
undarlegt fyrir bandaríska
skopleikarann, en glæpahring-
urinn heldur, að hann lumi
á mikilvægum upplýsingum.
Lyfta, sem Bob stígur upp í,
fellur niður margar hæðir. Síð-
an stígur Bob upp i leigubíl,
en bílstjórinn stekkur út á
ferð, og vesalings Bob ekur
eftir bugðóttum götum í höfuð-
stað Frakklands i ekilslausum
bíl. Auðvitað lifir hann þetta
allt af, en þegar hann kemur
heim á gistihúsið aftur, bíður
hans dularfullur náungi, sem
segist vera kominn á vegum
franska utanríkisráðuneytisins.
Hann skipar Bob að hverfa úr
landi þegar í stað Bob gerir
það ekki þegar í stað, en þegar
honum virðist ekki lengur vært
í París fyrir alls kyns óáran,
ákveður hann þó að hverfa á
brott. Hann sendir skeyti til
elskunnar sinnar, Ann, og
kveðst halda heimleiðis, til þess
að þau megi bæði vera lífs,
þegar brúðkaupið fer fram.
Glæpahringurinn hefur skip-
að Zöru að myrða Bob. En
þess í stað kemur hún því í
kring, að hann er settur á geð-
veikrahæli, og þar verður hann
að dveljast, þar til sendiráð
Bandaríkjanna blandar sér í
málið. En áður en Bob sleppur
út, verður hann að þola langa
yfirheyrslu og sanna þar, að
hann sé með réttu ráði. I því
efni mistekst honum algerlega,
sérstaklega vegna þess, sem
þær Ann og Zara hafa til máls-
ins að leggja. og einnig af því,
hve Fernydel reynist slappur i
enskunni.
En gæfuríkur endir nálgast.
Fernydel, sem aldrei deyr ráða-
laus, kemur fljúgandi i þyrlu
og bjargar Bob. Hangandi í
stiga neðan úr þyrlunni tekst
Bob á síðasta andartaki að
frelsa Ann, sem er í þann veg-
inn að falla í hendur glæpa-
mannanna ásamt hinu dýrmæta
handriti. Bob er orðinn hetja.
Handritið, sem hefur að geyma
sögu af starfsemi glæpahrings-
ins, er afhent lögreglunni. Þau
Ann og Bob fallast í faðma, og
allt leikur í lyndi. ... +