Vikan - 17.12.1959, Síða 33
POSTURINN
Framhald af bls. 2.
á það, er fólk hér á landi „mokaði“ baðstofu-
flórinn aðeins einu sinni á ári, eða fyrir
jólin, en lét það svo ógert aðra tíma ársins.
Spillir útvarpið kirkjusókn um jólin?
Kæra Vika.
Skyldi ég vera ein um það að þykja helzt til
mikill messuflutningur í útvarpinu um jólin?
Vitanlega er ekki nema sjálfsagt, að þar séu flutt-
ar jólamessur, en þó finnst mér, að þar beri að
gæta hófs. Ég held nefnilega, að þessi sífelldi
messuflutningur um hátíðina verði til þess, að
fólk sæki siður kirkju. En það geta allir séð,
sem eitthvað vilja sjá, að það er allt annað að
vera viðstaddur hátiðlega guðsþjónustu i kirkju
en hlusta heima hjá sér og oftast við misjðfn
skilyrði, því að næðið er misjafnt, ekki hvað
sizt á barnmörgum heimilum. Já, og það er ein-
mitt i sambandi við börnin, sem þetta getur
orðið nokkurt vandamál. Þau vilja leilca sér,
en ef þeim er bannað það, af því að það er
messa í útvarpinu, þá geta þau fengið ósjálfrátt
andúð á messnm. Hins vegar þykir flestum börn-
um afar liátiðlegt að koma i kirkju og verða
þar oft fyrir sterkum áhrifum, en fullorðna
fólkið, sem oft er þreytt eftir jólaundirbúning-
inn, er, að ég held helzt, of oft fegið þvi að
geta afsakað sig með þvi, að það sé alltaf verið
að messa i útvarpinu, svo að ekki þurfi að fara
með þau i kirkju.
Barnakona.
Talsvert hefur verið um þetta rætt á und-
anförnum árnm. otr sýnist sitt hverium eins
og gencrur. Útvarn’ð svarar því yfirleitt til,
að maður geti skrúfað fyrir. ef manni finn-
ist, messuflutnincurinn úr hófi fram. eða yfir-
leitt ef mnnni finn«t ástæða til að finna eitt-
hvað að dagskrárti'högun þess og dagskrár-
samsetningu — og þnr með virðist bað Inust
við aBa ábvreð. En hvað messuflutning bess
snertir. bæði á ióhim og endranær, há kemur
mér oft f hug það, sem hnft er eftir bónda
nokkrum austur á Rnngárvö'lum. Hnnn
hnfði feno''ð sér útvnrnstnnki o<r f«nnst mikið
til nm. ekki hvð sízt bnð að hnrfa nú ekki
t,il kirkju að heyra messu. Sagði hann um
það:
„Skal þnð vera munur að g°tn nú htustnð
á m»ssu steinsofnodi unni í rúmi eða húka
hundkaldur og hálfsofandi í Oddakirkju!“
Cummins dieselvélin er
öruggasti
afIgj afinn
Cummins dieselvélarnar eru æ meira notaðar
í hverskonar tæki um viða veröld. Yfir 140
framleiðendur nota þær að staðaldri í fram-
leiðslu sína.
Cummins dieselvélar fást í stærðunum 60—
600 hestöfl.
Cummins PT olíukerfið er einfaldasta olíukerf-
ið í notkun í dieselvélum.
Cummins dieselvélarnar eru sparneytnar.
Sími 17450.
Hvað kosta jólin?
Framhald af bls. 5.
þurfa að skreppa eitthvað, heim-
sækja kunningja, sem búa í öðru
bæjarhverfi til dæmis má gera ráð
fyrir nokkrum bílakostnaði — ef
viðkomandi á þá ekki sjálfur bil —
ekki livað sízt ef eitlhvað er að
veðri, sem alltaf má búast við um
þetta leyti árs. Mun ekki um neitt
ólióf að ræða i jivi sambandi, þótt
áællað sé að bílakostnaður um liá-
tíðirnar nemi kr. 100,00.
Og þá er komið að þeim kostnað-
arlið, sem örðugast verður að áætla
— það eru jólagjafirnar og jóla-
kortin. Um jólagjafasiðvenjur okk-
ar má svo margt segja, að hyggi
legast er að segja sem minnst. Við
skulum gera ráð fyrir að jólagjafa-
kostnaður innan fjölskyldunnar
nemi kr. 1500,00; kann sumum að
finnast það of hátt áætlað — en
öðrum of lágt. Jólagjafir til aðila
utan fjölskyldunnar, fara að sjálf-
sögðu eftir þvi hve frændlið og
kunningjalið er fjölmennt, — og
svo líka, eins og jólagjafir innan
fjölskyldunnar, eftir því hvað hver
og einn er stórtækur til þeirra hluta.
Og hverju nemur þá kostnaðurinn
við sæmilegt jólahald fimm manna
fjölskyldu, sem hefur meðaltekjur
og hagar sér samkvæmt þvi?
Eitthvað í kringum fimm þúsund
krónur, séu föt ekki reiknuð með;
annars því sem næst sjö þúsund og
fimm hundruð krónum.
Og þegar jólahátíðin er hjá liðin,
strengir húsbóndinn þess heit, að
hann skuli læra af reynslunni og
gæta betur hófs á næstu jólum.
En — jólin eru ekki nema einu
sinni á ári, og þegar maður hefur
þrælað og sparað fyrir sjálfan sig,
fjölskyldu sína — og hið opinbcra
— þá á maður það i rauninni fylli-
lega skilið að gera sér einu sinni
dagamun ...
Þú og barnið þitt
Framh. af bls. 8.
sem Erasmus taldi mikilvægast skilyrði fyrir framför í
námi: ást og trúnaður.
Likamshegningar vanstilltra og geðtruflaðra kennara
bitna oft á börnum, sem sjálf eiga við innri vandkvæði að
etja, svo sem taugaveiklun, erfiðar lieimilisástæður, sjúk-
lega vanmetakennd o. s. frv. Sú tilfinning, sem hegningin
vekur hjá barninu, eykur mjög á erfiðleika þess. Hið
erfiða barn þarfnast aukinnar umönnunar, ástúðar og
nærgætni, en þolir ekki hörku né líkamlegt ofbeldi. Hið
síðara á raunar við um öll börn. Sá kennari er á rangri
leið, sem vill aga nemendur sina til ótta. Ef hann sér eng-
in betri ráð til þess að ná tökum á þeim, þá skortir hann
greinilega þá hugkvæmni, sem kennara er nauðsynleg, og
ælti að grípa fyrsta tækifæri til þess að komast i annað
starf.
íslenzkri kennarastétt er nokkur vandi á höndum i þessu
efni. En þó að hann kunni að vera torleystur, má hún
ekki þola, að nokkrir óhæfir menn felli skugga á hana og
starf hennar*
VIKAN
33