Vikan - 17.12.1959, Side 34
TVÖFÖLD ÁNÆGJA
GUÐAVEIGAR I BÆHEIMSKUM KRISTAL
Þér getið valið um íjölbreytt-
ustu gerðir og stærðir, sem
fáanlegar eru á markaðmum
af þessari vöru.
BÆHEIMSKUR KRISTALL FULL-
NÆGIR VÖNDUÐUM SMEKK
Gleymið samt ekki þeirri
staðreynd, að bæheimskur
kristall er aðeins framleidd-
ur í Tékkóslóvakíu.
GLASSEXPORT
1 na—
GJALDÞROTA
Framh. af bls. 13.
I’arna stóð Martin fremst á brúninni. — Ég
verð að komast tii lians, áður en það er um
seinan, hugsaði hún og tók að hlaupa svo hratt
sem fæturnir gátu borið hana. Hún fann sáran
sting undir brjóstí, datt, en reis óðara á fætur
aítur, hljóp.
Martin stóö frammi á brúninni og hallaði -sér
i veðrið. Það var svo undursamlega hressandi að
finna napran vindinn leika um andlit sér og
hendur Stormurinn, snarbratt bergið, beljandi
brimið, — allt var þetta í svo nánu samræmi
vði það, sem inni fyrir bjó. Hann þurfti ekki
annars við en halla sér örlitið betur í veðrið, láta
sig falla í faðm þess, svífa viljavana fram af
brúninni . . .
Þá gerðist það, að hann var vafinn örmum,
vafinn sterkum örmum.
— Martin, Martin, kjökraði Karín og leiddi
hann frá bjargbrúninni. Ég þarfnast þin svo
óumræðilega. Ég get ekki án þín verið. Þú veröur
að vera hjá mér.
Og í fyrsta skipti, eftir að ósköpin höfðu dunið
yfir, strauk hann h'ir hennar biíðlega og hug-
hreysti haan. Og nú gat hann loks létt af sér
í sundurlausum setningum margra mánaða Þrúg-
andi fargi beizkju og kvíða. Hann mátti ekki
til þess hugsa að byrja á nýjan leik glímuna
við tölur, reikninga og höfuðbækur, vörur og
verzlun.
— Ég vildi umfram allt ekki verða þér til byrði,
hvíslaði hann. Þú tókst þessu öllu af svo miklu
þreki og varst svo djörf og sterk. Ég mátti ekki
til þess hugsa að verða þér eins konar dragbítur,
og ég mátti ekki heidur til Þess hugsa að taka
þátt í starfi þínu. Það var eitthvað, sem brast
hið innra með mér og ekki er enn gróið. Ég
gat ekki meira. Og þá ...
— Lofaðu mér Þvi að gefast ekki upp, sagði
hún. Henni hafði tekzit að ná aftur valdi yfir
tilfinningum sínum. — Vertu viss, ég finn einhver
ráð.
Ná var hún örugg aftur, viss um það, að hann
m.undi ekki freista þess oftar að flýja frá sjálfum
sér cða henni. En hún varð að hjálpa honum,
veita honum aftur trúna á sjálfan sig. En
hvernig?
UM NÓTTINA réð hún þessa þraut. Á meðan
þau voru bæði ung, áður en hann kom verzl-
uninni á stoín og réðst í útgerðina, hafði það
veriö mesta yndi hans að róa út á fjörðinn til
Lskjar. Vitanlega var þetta lausnin Hún hafði
gert allt of mildar kröfur til hans, er hún gerði
rúð fyrir því, að hann gæti farið að fást við
verzlunarstörfin aftur, á meðan svo skammt var
um liðið frá gjaldþrotinu. Hann varð að fá tíma
og tóm til að jafna sig, en um leið varð hann
að vera sér þess meðvitandi, að það væri hann,
sem ynni fvrir heimilinu.
Nokkrum dögum seinna hafði henni heppnazt
c.ö komast yfir bát. Og eins og fyrir hendingu
gokk hún með Martin niður í naustið. Báturinn
átti samstundis hug hans allan.
— Það væri gaman að róa út á fjörðinn og vita,
hvort maður yrði var, sagði hann. Og næstu dag-
aria á eftir var hann ekki mikið heima við. Þeir
Ivar og hann voru önnum kafnir við að þétta
bétinn, bika og mála
Og nú urðu þeir i plássinu undrandi, svo að um
raunaði. Kaupmaðurinn, sem hafði verið svo vold-
ugúr fyrir skemmstu, lagði nú að bryggju hjá
hinum keppinautum sínum og seldi þeim fisk^ er
hann hafði sjálfur aflað. Hann og strákurinn
lians sóttu sjóinn dag eftir dag, hvernig sem
viðraði, — en frúin sjálf stóð við búðarborðið
og seldi kaffi og kartöflur, mjöl og púðursykur
og baksaði með handvagninn I eftirdragi, þegar
hún sótti vörurnar, og sparaði sér þannig bíla-
kostnaðinn. Smám saman vann hún hylli pláss-
búa. Það var þröng í krambúðinni hjá henni,
og það var meira að segja til, að fólk kæmi langt
að úr plássinu til að verzla við hana, enda þótt
það ætti slcemmra að fara i krambúðirnar niðri
á bryggjunum.
Þegar hún hafði lokað búðinni á kvöldin, biðu
bær, hún og Marianne, Þess, að ,,þeir" kæmu af
sjónum, eirrauðir í andliti af seltu og sól, upp-
gefnir og kátir og höfðu frá mörgu að segja. Og
fiskdauninn lagði af þeim langar leiðir.
— Þetta er nú líf, sem vert er um að tala,
varð Ivari að orði.
— Og við náum lendingu aftur, sagði Martin
og hló við
Karín kyssti hann á ennið og gat vart stillt
sig ura að gráta af gleði.
— Ég er ekki viss um, að ég kjósi nokkra
breytingu, mælti hún kænskulega.
— Til hamingju Jón, þú ert
orðinn faðir.
— Allt í lagi — láttu krakk-
ann hafa eitthvað til að leika
sér að.
34
VIKAN