Vikan - 07.01.1960, Blaðsíða 12
Bráðmyndarleg ung hjón — og skemmtileg líka. Þannig á unghjóna-
klúbbur líka að vera — og þannig er hann.
Svona ástfangin geta ung hjón verið, þegar þau hafa fengið sér ögn
af kampavíni í Unghjónaklúbbnum.
Jón Gunnlaugsson afhendir nafnspjöld, sem félagar í klúbbnum næla
í barm sinn.
Xlnghjóna-
Merkilegt nýmæli í skemmtanalífinu. Ætlað-
ur til þess að ungt fólk úr öllum stéttum
kynnist og skemmti sér saman.
— Allt í einu var tiikynnt, að
herramaður sá, sem bæri fatanúmer
57, væri vinsamlegast beðinn að
koma til hljómsveitarinnar, taka
sér tónsproía í hönd og stjórna al-
mennum söng — hvað maðurinn
gerði við ágætar undirtektir.
Forvígismenn Unghjónaklúbbsins ásamt konum sínum. Frá vinstri:
Auður Steingrímsdóttir, Jónas Jónasson, Jón Gunnlaugsson og
Regína Birkis.