Vikan


Vikan - 07.01.1960, Blaðsíða 5

Vikan - 07.01.1960, Blaðsíða 5
 eftir það siffldi kafbáturinn í kafi til íslands. — Það var ylsja úti fyrir Austfjörðum. Gnniiar iml ?Iag:nn§§ §kráði Þeir voru settir á land skammt frá Raufarhöfn. erindi sitt. Þeir voru teknir höndum af banda- riska hernum og hafðir i haldi fram yfir striðs- lok. Fimm dögum síðar, hinn 30. apríl 1944, setti þýzkur kafbátur þrjá menn á land í Selvogsnesi á Austfjörðum. Voru það tveir íslendingar og einn Þjóðverji, er hér hafði áður verið. Þeir höfðu með sér 2 senditæki. Var erindi þeirra hið sama og hinna, er fyrr voru komnir. Sá var þó munur á ferð þeirra og hinna, að Þjóðverj- inn átti að sjá um, að fyrirmælum og loforð- um yrði fylgt. íslendingarnir voru flæktir í lof- orð, en sögðu síðar svo frá, að þeir liefðu aldrei ætlað að senda skeyti frá Islandi, enda höfðu þeir skemmt tækið, áður en til þess kæmi, að það yrði notað i styrjaldarþjónustu. Um þessa menn myndaðist magnaðasta úti- legumannasaga, því að þeir leyndust til 5. inaí. Sú saga verður þó ekki rakin hér. Þeir voru einnig í lialdi hjá hernum fram á sumar 1945. Allir gátu íslendingar þessir varið framkomu sína i þessum efnum, þar eð þeir töldu örlög sin mjög iskyggileg, ef þeir tækju ekki þeim hoðum, er þeim voru veitt frá þýzkum hernaðar- yfirvöldum. Öllu alvarlegri atburður vofði yfir um svipað leyti, þegar farþegaskipið Esja var á siglingu fyrir Austfjörðum, en kafhátur elti hana og hafði hana í sjónpípu sinni, — á hverri stundu reiðubúinn að senda að henni tundurskeyti. Einn maður er til frásagnar um það, hvernig svo hroðalegum atburði varð afstýrt. Það var íslendingur, sem var um horð i kafbátnum. Fyrir 10 árum barst höfundi þessarar greinar frásögn af atburði þessum, en Islendingur sá, er var um borð i kafbátnum, ritaði þar um öll þau atvik. Kveðst hann hafa farið um borð i þýzkan kafbát í Björgvin i aprilmánuði 1944 i því skyni að fara til Islands og senda Þjóðverjum írásagnir um herstyrk Breta og Bandaríkjamanna á íslandi og um vopnasendingar til Rússa. Hefst frásögn sögumanns á þvi, er þeir sigldu frá Björgvin, en tvö þýzk hersMp fylgdu kafbátnum fyrst í stað og þrjár ílugvélar sveim- uöu yfir fyrst i stað í öryggisskyni. Kom ekkert markvert t'yrir, þar til komið var í námunda við Færeyjar. Þá varð loftskeytamaðurinn var við „á vissu mælitæki, að óvinirnir i landi liöfðu orðið hátsins varir og reyndu að miða stöðu kafbátsins". Var þá tilkynnt, að allir skyldu lara niður, þvi að „kafa átti tafarlaust“. Var ekki liöin nema minúta, frá því að skipunin var gefin, þar til kafbáturinn var kominn niður á 16 m dýpi. Sluppu þeir við frekari eftirgrennslan, og segir ekki af ferð þeirra, fyrr en þeir voru komnir fast upp að Aust- fjörðum. Akveðinn hafði verið staður, þar sem íslendingurinn skyldi settur á land, en þar var þá tundurduilabelti, svo að hverfa varð frá. Urðu þá nokkrar ráðagerðir um, livar liann yrði settur á land með sendi- tæki sitt. Voru nú gerðar tilraunir til að setja hann á land, en þær mistókust, þar sem talsverð ylgja var og ófært til lendingar. Var þá sigit rieðansjávar inn á fjörð einn, en þar lá þá brezkt lierskip við bryggju. Beindi kafbáturinn þá byssum sinum að herskipinu og hélt sem bráðast aftur út úr firðinum. Islendingurinn kvaðst hafa spurt kafbátsforingjann, hvers vegna hann hefði hlift herskipinu. „Ég vildi ekki vekja athygli á okkur. Það er þýðingarmeira, að þú komst á land, en að sökkva þessu skipi.“ Framnaid á bls. 29. 3

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.