Vikan - 07.01.1960, Blaðsíða 2
VIK A N
Útgefandi: VIKAN H.F.
Ritstjóri:
Gísli Sigurðsson (ábm.)
Auglýsingastjóri:
Ásbjörn Magnússson
F ramkvæmdast j óri:
Hilmar A. Kristjánsson
Verð í lausasölu kr. 10. Áskriftarverð kr.
216.00 fyrir hálft árið, greiðist fyrirfram.
Ritstjórn og auglýsingar:
Skipholti 33.
Símar: 35320, 35321, 35322.
Pósthólf 149.
Afgreiðsla og dreifing:
Blaðadreifing, Miklubraut 15, sími 15017
Prentun: Ililmir h.f.
Myndamót: Myndamót h.f.
FORSfÐAN.
Nú er hlátur nývakinn
nú er grátur tregur,
nú er ég kátur
nafni minn
nú er ég mátulegur.
ViS heilsum nýju
ári og áratug meö
þessum hressilegu öp-
um. Vonandi, aö sem
flestir veröi svona
geögóöir á árinu, sem
er aö byrja.
Hvað verður af bókunum?
Kæra Vika.
Eitt er það, sem mig langar að biðja þig að
koma á framfæri til athugunar.
Undanfarin ár hefur megnið af öllum ut-
komubókum ársins komið á markaðinn síðustu
vikur fyrir jól. Nú er því þannig farið af
skiljanlegum ástæðum, að þeir, sem eitthvað
kaupa af bókum til að eiga, hinir svokölluðu
bókamenn •— ég á ekki við bókasafnara —
eiga örðugast með að kaupa þær um jólin og
næstu mánuði eftir nýár eða á meðan verið
er að jafna sig eftir jólaeyðsluna og skatt-
greiðsluna og annað þessháttar. Það er fyrst
jiegar fram á kemur, að þeir geta leyft sér þann
luxus að kaupa eitthvað af bókum.
En þá kemur bara þetta einkennilega í Ijós,
að bækur, sem gefnar voru út fyrir einu eða
tveimur árum og seldust alls ekki upp, jafnvel
bækur, sem gefnar voru út fyrir siðustu jól og
þannig er ústatt um, eru ekki á boðstólum í
bókaverzlunum. Svarið er, að útgefandanum
hafi verið sendur afgangurinn, það sé ekki
nokkur leið að koma öllum þessum bókum
fyrir í verzlunum, og svo framvegis. En
kannski sé hægt að útvega bókina; kannski
ekki, því útgefandinn sé kannski búinn að selja
upplagið.
Þetta er slæmt, þvi að margt þessara bóka
eru eigulegar og góðar bækur, og svo fást þær
ekki fyrr en löngu seinna, þegar einhver „forn-
bóksali" telur tíma til kominn. Og hvernig
stendur eiginlega á þeim kjánalega sið, að ekki
má yfirleitt gefa i jólagjöf bók, nema hún hafi
komið út einmitt um þau sömu jól, enda þótt
margt ágætra bóka frá fyrri jólum hafi ekki
selzt upp, en horfið af markaðinum, vegna
liess að enginn vill kaupa bók frá fyrri jólum?
Er ekki hægt að breyta þessu? Eða er bóksalan
háð sömu lögmálum og kvenfatatízkan?
Virðingarfyllst.
Bókabéus.
Þetta ef ólag mesta, satt er það. Þó hefur
það orðið til hagræðis, að bóksalar hafa oft
efnt til svokallaðra bókamarkaða að tindan-
förnu, þar sem fengizt hafa eldri útgáfu-
bækur. Ilitt væri þó mun þægilegra, að geta
gengið inn i bókaverzlun, og fengið þar
liverja þá bók, sem út hefur komið síðustu
árin og ekki setzt upp. En vandi bókaverzl-
ananna er líka auðskilinn á meðan bóka-
útgáfa á ári hverju er jafn gífurleg og nú.
Það er líka satt að það er hinn mesti kjána-
skapur að miða val jólagjafabóka eingöngu
við útgáfubœkur vikurnar fyrir jól, — að
listaverkabókum og íslendingasagnaútgáfum
ef til vill undanteknum. En svona er það
— bóksalan virðist, því miður, háð svipuðu
lögmáli og kvenfatatizkan, eins og bréfritari
segir.
Ef þú hefðir mink þér til aðstoðar ...
Vika mín sæl.
Mörg er mannraunin, það má nú segja. Ég
bý hér i einu úthverfinu og hef búið þar um
skeið í litlu einbýlishúsi, gömlu að vísu, en
þó fer vel um mig ú allan liátt, — ef ekki væri
fyrir liorngrýtis hanann. Svo er nefnilega mál
með vexti, að kerling ein, leið og ljót, hefur
komið sér upp hænsnaskúr ú blettinum, alveg
utan við girðinguna á bak við hús mitt. Og
hún á þann raddmesta hana í víðri veröld,
RAFGEISLAHITUN H.F. EINHOLTI 2 - SIMAR 14284 - 18600 - 18601