Vikan - 14.01.1960, Blaðsíða 2
Alls bárust 567 lausnir.
Jólasveinagetraunin
Jóíagetraun Vikunnar virðist hafa átt mildum
vinsældum að fagna eftir þátttökunni að dæma.
Alls bárust 567 lausnir og voru flestar réttar eða
rúmlega 400. Mega islenzkir leikarar vel við það
una, að svo margir hera kennsl á þá þrátt fyrir
nokkur torkenni, sem gerð voru, svo sem skegg
og jólasveinahúfu.
Það var dregið 20. desember og fengu hinir
úlvöldu vinninga sína samdægurs.
,•••••••••••••• ••••••••••••••»•••••••••...
M*M*M*M*M*:«M«M •••••••.•.••••••••••v.v.v.v.*. v • • • •.
1. verðlaun, eplakassa, ldaut
Baldvin Jónsson, 12 ára, Sól-
heimum 35. 2. verðlaun, skó -—
og í þessu tilfelli auðvitað kven-
skó — hlaut Margrét Guð-
mundsdóttir, Hjarðarhaga 32.
3. verðlaun: Sjálfsævisögu
Kristmanns, hlaut Halldóra
Einarsdóttir, Efstasundi 6 og
4. verðlaun: Kassa með þrem
spilum, hlaut Jóna Ingvarsdótt-
ir, Hringbraut 34 í Hafnarfiiði.
Sem sagt, kvenfólkið hlaut
mikinn yfirburðarsigur i þess-
ari getraun og skal ósagt látið,
hvort það muni fyrir áhuga á
leikurum eða afburðagáfur yf-
irleitt. En nú vilja þeir, sem
ekki voru vissir, fá að vita hina
réttu lausn og þeim skal sagt,
að nöfnin eru frá vinstri:
1. Emilía Jónasdóttir.
2. Róbert Arnfinnsson.
3. Kristbjörg Kjeld.
4. Guðbjörg Þorbjarnardóttir.
5. Haraldur Björnsson.
6. Valur Gíslason.
7. Klemcns Jónsson.
8. Bessi Bjarnason.
9. Gunnar Eyjólfsson.
10. Gestur Pálsson.
11. Guðmundur Jónsson.
12. Jón Aðils.
13. Kristinn Hallsson.
I
I
m
slonavr
Landbúnaðarvélar
Flestar stærðir
MAR5 TRADING COMPANY H.F.
Klapparstíg 20 — Sírni 1-73-73
í
1
%
%
1
1
1
%
» m m m •« ••••••••••
í
í
l
í
t
1
1
1
1
I
t
í
I
I
★ Afmæli Elvis & Co.
★ Strætisvagnarnir enn.
★ Hvers á kvenfóikið
að gjalda?
ir Rokkskóli?
VILTU MEÐ MÉR . . .
Kæra Vika.
Ekki vænti ég að þú getir gert mér greiða?
Pað er kvæði, sem ég hef heyrt sungið á
grammófónplötu, og byrjar svona: „Viltu með
mér vaka, er blómin sofa“, en þar eru hara
sungnar tvær vísur og ég hef heyrt að kvæðið
sé lengra. Getur þú annaðhvort birt það allt
fyrir mig, eða sagt mér hvar ég get fundið það.
Móðir mín segist hafa kunnað það allt, og að
það sé mjög fallegt, en hún er búin að gleyma
þvi.
Með beztu kveðjum.
Lína.
Því miður er kvseðið of langt til þess að
við getam birt það í heild, þótt það sé
annars ekki of langt, því að það er hverju
orði sannara að þetta er hugljúft og fallegt
kvæði, encia góður að þvi nauturinn, þar
sem það er eftir Guðmund heitinn Guð-
mundsson, sem eldri kynslóðin — eða eig-
um við að segja „elzta kynslóðin“ — man
bezt undir nafninu, „Guðmundur skóla-
skáld“. lívæðið getur þú fundið í Ijóða-
bókum hans, og eins birtist það i heild í
„íslenzk söngbók“ á sínum tíma, en sú
bók mun torgæt orðin.
AOSTOPAR ÓSKAÐ.
Kæra Vika
Mig langar til að spyrja þig hvenær hann
Elvís Presley á afmæli, og hvaða ár hann er
fæddur, hvar heimilisfangið er og hvernig
á að setja það á umslag. — Þökk fyrir svarið.
Ransý.
Þetta er aðeins eitt af þeim fjöldamörgu
bréfum, sem Vikunni berast, með fyrir-
spurnum um aldur, og þó sér i lagi heimil-
isfang kvikmyndaleikara og dægurlaga-
söngvara erlendra. Nú er því þannig hátt-
að, að cg er næsta ófróður i þeim efnum,
veit ekki hvar slikar upplýsingar er að
finna og hef ekki tíma til að gegnleita ein-
hver ósköp af blöðum i von um að finna
kannski eina utanáskrift. Vill nú ekki ein-
hver mér fróðari senda Póstinum upplýs-
ingar, sem svo skal eklci standa á mér að
koma á framfœri?
IíJÚKRUNARSKÓLI ÍSLANDS?
Kæra Vika.
Getur það átt sér stað, að þú fáir ekki öll
bréf, scm þér eru skrifuð? Ég skrifaði fyrir
nokkrum mánuðum, en hef ekki fengið svar,
svo ég tek mig til og reyni aftur. Svo er mál
með vcxti, að ég hef fyrir ári síðan lokið
námi i iðngrein, og þar með námi í Iðnskólan-
um í Reykjavík. En nú hef ég fengið mikla
löngun til að læra hjúkrun, og nii langar mig
til að vita hvort iðnskólaprófið nægir sem
inngöngupróf i Hjúkrunarskóla íslands, eða
neyðist ég til að þreyta gagnfræðapróf?
Vonast eftir svári sem fyrst.
Einn mjög áhugasamur.
Jig geri ráð fyrir að okknr berist flest
þau bréf, sem okkur eru skrifuð, en þar sem