Vikan


Vikan - 14.01.1960, Blaðsíða 24

Vikan - 14.01.1960, Blaðsíða 24
SANDRA DEE, eftirlætisbaxn kvikmyndaborg- arinnar Hollywood, er aðeins 17 ára gömul. Samt á hún þegar margar kvikmyndir að baki, hefur auk þess komið fram í sjónvarps- þáttum og fengið háar fjárhæðir fyrir að sýna barna- og unglingaföt. Hún var satt að segja ekki nema fimmtán ára, þegar hún fékk greidda upphæð, seni svarar til hriggia inilli- óna íslenzkra króna, fyrir einnar viku sýn- ingarferð. Hvernig getur slíkt átt sér stað? Er hún fegursta kona heimsins eða leiklistarfundur aldarinnar? Foreldrar henn- ar skildu, hegar hún var 5—6 ára, og faðir hennar hefur að undanförnu l.ióstrað ýmsu upp um mæðgurnar. Hann hpfur sagt frá hví, að móðir Söndru hafi haft svo mikla áfiirnd á fallegum fötum, að fienfiið hafi sjúkdómi næst, ofi að Sandra hafi því verið klædd eins ofi Parísarmódel, allt frá bví að liún var f.iögra ára. Hún var alltaf nýbvegin, í nýstroknum fötum og fékk aklrei að leika sér með öðrum börnum í götunni, til þess að hún ataði sig ekki út eða ýfði hárið. Sandra var aðeins tólf ára, þegar hún byrjaði að sýna barnaföt hjá stóru tízkufyrii’tæki. Hin óþreytandi móðir hennar kom þessu í kring. Og þegar það kemur á daginn, að fimmtán ára var Sandra eftirsóttasta og liklega launa- hæsta sýningarstúlka Bandaríkjanna, gefur auga leið, að hún hefur ekki haft mikinn tíma til að leika sér með jafnöldrum eftir skólatíma. Loks kom að því, að hún var tekin úr skóla, og seinustu námsárin fékk hún einkatíma í kvikmyndaverinu milli upptakna. Þegar hún svo tók lokapróf, fékk hún leyfi til að vera með á lokahátíðinni i skólanum. En i veizlunni, sem haldin var á eftir i til- efni dagsins, voru þó engir skólafélagar hennar viðstadd- ir, en hins vegar komu Þar Rock Hudson, Doris Day, John Saxon og fleiri stjörnur á kvikmyndahimninum. Það virðist vera sérlegur grundvöllur fyrir unglinga- myndir um þessar mundir, og á það vafalaust sinn þátt í skjótum frama Söndru Dee. 1 öllum löndum eru vanda- mál unglinga ofarlega á baugi, en til að vega á móti hryllingsfréttum um glæpi unglinga i Bandaríkjunum stendur Sandra sem tákn hinnar óspilltu æsku. Hún full- nægir vafalaust þörf þessa tímabils fyrir „gyðju“ eða á- trúnaðargoð, sem fjöldinn getur tilbeðið. Stúlkan með ljósu lokkana og hreina yfirbragðið er í hugum Bandarikja- manna ímynd hinnar frísku og óspilltu æsku, er þá dreymir um. Hún hefur hlotið óhemjuhylli og fær langtum fleiri til- boð um að leika í kvikmyndum en hún getur sinnt. Nú ræða kvikmyndablöðin fjálglega um Söndru í hverju hefti, og enda þótt hún sé ekki nema sautján ára, reyna hau að grafa upp hvert smáatriði í samskiptum hennar við karlmenn og gera henni upp ástarævintýri. Þau birta greinar með yfirskriftunum: Ef þú værir unnusti Söndru Dee ..., Ég er tilbúin í reglulefit ástarævintýri, Kannski er það ást, Karlmannavandamálið o. s. frv., og skýra frá því i væmnum langlokum, hverjar hugrenningar móður hennar voru, þegar hún horfði á dóttur sína leika fyrstu ástarsenuna. Það má þvi búast við, að það taki blöðin ekki langan tíma í viðbót að trúlofa Söndru eða komast að einhverju hneyksli um hana þrátt fyrir allan yfirborðs- heilagleika og tal um óspillta æsku. — E'n ef til vill eru þessi skrif líka bara þáttur í auglýsingaáróðrinum fyrir hinni ungu leikkonu. ★ Hún er eftirlætisbarn kvikmyndaborgar- innar Hollywood og þykir vera tákn hinnar óspilltu æsku, — en leikarablöðin gera allt, hvað þau geta, til að koma henni í ástamakk í von um spennandi blaðamat . . . * Það er sagt, að Sandra Dee hafi fram að þessu verið allt of önnum kafin til að gefa sig að karl- mönnum, eða að minnsta kosti halda leikarablöð- in því fram, — en bæta við, að þetta hafi breytzt, þegar Sandra hitti Ed Byrnes, sem hún er með hér á myndinni. Honum mun hafa tekizt á skömmum tíma að koma henni á aðra skoðun.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.