Vikan - 14.01.1960, Blaðsíða 11
ÉtF«
Hf
Hér birtíit
cmi ein grem
dr. Hatíhíasar
tfonasisonar
I flokknnm
VANDRÆÐABORN
BÖRN fVANDA
ogr ncfnir
liöfundnr
þc§§a grrcin
mmm
Þú og
barnið þitt
Það er engin ástæða til
að ætla, að drengurinn sé
efni í afbrotamann, þótt
hann nappi sér epli hjá
kaupmanninum, þegar
hann er ellefu ára.
spilaði hann sig upp fyrir
þeim og var móður sinni sér-
staklega erfiður.
Þegar Gústi var 9 ára, kom
reiðarslagið yfir móður hans:
Hann var farinn að stela.
Hann liyrjaði i smáum stíl,
með aura fyrir sælgæti og
bíómiða, sýnilega mcst i því
skyni að kaupa sér félagsskap
annarra. En smám saman
vakti vaninn upp nýja þörf,
og drengurinn gerðist djarf-
tækari.
* ÓTÍMABÆR
TENGSLAROF.
Börnum, sem eru ekki tengd
foreldrum sínum eðlilegum og
ótrufluðum tilfinningabönd-
um, hættir öðrum fremur til
að lenda á glapstigum. Að-
Við þá stefnu höfðu eldri systkinin fellt sig
árekstralaust. Þar með var skapað fordæmi, sem
var óyggjandi í augum foreldranna. Sérlyndi
og brestir Jójó litlu urðu tilefni til að hrósa
eldri börnunum. Hún var stöðugt borin saman
við eldri systur sína, og sá samanburður varð
ekki glæsilegur fyrir Jójó. Hún tók hann lika
sem ranglæti og útskúfun. „inga gerir allt eins
og pabbi og mamma vilja, og þeim jjykir bara
vænt um hana.“ Niu ára gömul byrjaði Jójó
að stela. Foreldrarnir féilu 1 stafi af undrun og
hneykslun. Út í þetta hlytu spillt börn að hafa
leitt telpuna; svona lagað hefði aldrei komið
fyrir i þeirra ættum. Eldri systirin til dæmis . . .
Það reyndist auðvelt að bjarga Jójó út úr
þjóínaðinum. Hún var svo auðsveip, þegar hún
fann skilning og fölskvalaust traust. Hinir góðu
hæfileikar hennar léttu henni afturhvarfið. Hún
varð duglcg við námið, og með sanngirni var
ekki margt að henni að finna. Foreldrarnir
gleymdu samt ekki biturri reynslu sinni og létu
tortryggni sína i ljós með ýmsu móti. Þess vegna
fór Jójó á mis við þann stuðning, sem felst í
sönnum trúnaði, þegar lnin komst á hið órólega
gelgjuskeið. Þá hófust erfiðleikarnir að nýju,
Framhald á bls. 32.
„Við höfum aldrei orðið varar við það fyrr.
Mig grunaði ekki heldur neitt, þegar mér fannst
smápeningar hafa horfið úr eldhússkápnum;
ég hélt mig hefði misminnt. Svo fór að hverfa
úr veskinu mínu, og núna fyrir jólin þetta með
sparibókina. Þá vissi ég, að það gat enginn
verið nema hann. Og nú spyr ég: Af hverju
gerir drengurinn þetta? Er barnið mitt að
verða þjófur?“
Ef við dæmum aðeins eftir verknaðinum, þá
kallast þetta þjófnaður. Slík orð ætti þó að nota
varlega við börn. Hitt skiptir meira máli: Af
hverju fer barnið að stela? Algengasta ástæðan
ER BARNIÐ MITT ÞJÓFUR?
til þess, að börn stela, er sú, að þeim hefur
vaknað óeðlileg þörf eða ástriða, sem þau geta
ekki fullnægt á heiðarlegan hátt. En oft er hér
um eins konar gerviástríðu að ræða, uppbót
fyrir djúpa og rótheila kennd, sem fær ekki
eðlilega framrás eða fullnægju.
Þannig reyndist þessu farið um Gústa litla.
Hann var óskilgetinn, hafði engin kynni af föð-
ur sínum, en ólst upp hjá móður sinni og
ömmu. Móðirin hafði fasta vinnu utan heim-
ilis og gat þvi ekki sinnt Gústa mikið, en amma
hans var lasburða, fór lítið út og vildi hafa
Gústa sem mest inni. Hann var viðkvæmur
og grátgjarn og rellinn við móður sína. í barna-
hópnum á götunni og í skólanum var hann dá-
lítið einangraður og átti sér engan fastan fé-
laga eða vin. Þegar gestir voru á heimilinu,
stæðurnar eru þó margvíslegar. Hjá Gústa er
það hinn innri tómleiki, sem fjarvistir móður-
innar valda. Upp af bældum söknuði hans
sprettur dulvituð Viðleitni að draga að sér at-
hygli móðurinnar að nýju. Tilfinningajafnvæg-
ið er rofið. Móðirin tekur aðrar skyldur fram
yfir hann, faðirinn verður óljós ævintýramynd
i huga hans, en lasburða amman sterkasti að-
ilinn að uppeldinu. Þessi sundrun í nánasta
umhverfi rænir drenginn þeirri öryggiskennd,
sem leiðir til sterkrar skapgerðar. Hann verð-
ur áhrifagjarn og veikur fyrir freistingum.
Tilfinningatengsl geta brostið, þó að faðir og
móðir standi á sínum stað. Átakanlegt dæmi
þess er Jójó litla, gáfuð og bráðþroska telpa,
en kvik og - óstöðug. Strangur rétttrúnaður
foreldranna mótar heimilisandann og uppeldið.