Vikan - 14.01.1960, Side 12
# w
T
'<a,
&
■>&
Fiskamerkið (20. feb.—20 marz): Mik-
il hf'iðríkja yfir vikunni, og yfirleitt
lofa stjörnurnar ánœgjuríkri viku, þótt
öllu sé samt stillt í hóf. Amor verður
talsvert á ferðinni, en ekki munu örvar hans samt
risia djúpt. Opinber starfsmaður mun heimsækja
þig og leita hjá þér ráða. Heillatala 7.
IIrútsmerkið (21. marz—20. apr.): Vik-
an verður þér dálítið erfið, þótt allt
bendi til þess að þér verði mikið úr
verki. Þú munt ræða við einhvern í
fjölskyidunni um alvarlegt mál, og úr
því verður einnig skorið í vikunni. Föstudagur og
laugardagur verða konum til heilla.
Nauts nerkiÖ (21. apr.— 21. maí): Mik-
ið gengur nú á. Kunningi þinn vill fús-
lega hjálpa þér að vinna að hugðar-
efni þínu, en samt bend’r allt til þess
að að þessu e’gir bú einmitt að vinna í
einrúmi. Þú skah forðast allt óhóf í vikunni,
e'nkum eftir helgina.
Tvíbu. a nerlciö (22. maí--21. júni>:
Þessi vika verður trúlofuðum og ný-
giftum t l mikilla heilla. Vegna i>rá-
______kelkni náungans kemst Þú í mestu
vandræði, sem eign ef tii vill eftir
að draga nokkurn dllk á eft'r sér. Kómantíkin
siciptir annars mestu í vikunni
KrabbanierkiO (22. júni—23. júli): Þú
mætir talsverðri andspyrnu í vikunni,
en með þolinmæði og háttvisi munt þú
fyrr en varir geta hrósað sigri i þess-
ariviðureign. Þú skalt sinna heimili
þinu mest í vikunni, því að nú er talsverð breyt-
ing að verða á heimilisástæðum.
Ljónsmerkið (24. júlí—23. ág.): Þú
verður að skipuleggja vel allt sem þú
gerir í vikunni, því að örlítill misbrest-
ur getur orðið til þess að kollvarpa öll-
um áætlunum þínum. Einhvern daginn
mun koma til þín harla óvenjulegur gestur. Þú
ert dálítið uppstökkur og getur hæglega bætt úr
því. Heillatala 4.
Meyjarmerkið (24. ág.—23. sept.):
Gamall kunningi þinn verður ef til vill
til þess að hjálpa þér í sambandi við
vinnu, eða eitthvert föndur, sem mun
gefa af sér góðan arð. Peningalega
verður vikan þér ákaflega heilladrjúg. Um helg-
ina gerist dálítið, sem mun koma þér í gott skap,
það sem eftir er vikunnar.
Vogarmerkiö (24. sept—23. okt.): Þú
lendir i einhverju smáklandri á vinnu-
stað, og hætt er við að einn vinnu-
félagi þinn geri meira veður út af
þessu en ástæða er til. Á heimilinji rík-
ir mikil gleði vegna stórviðburðar í fjölskyldunni.
Vertu sem mest heima við í vikunni.
Drekamerkið (24. okt.—22. nóv.): Þessi
vika er mjög hentug til þess að taka
mikilvægar ákvarðanir, og litlar líkur
eru til þess að sú ákvörðun, sem tekin
verður í vikunni, fari út um þúfur ef
þú þaulhugsar fyrst málið. I sambandi við bréf
eða skeyti kemst þú í klandur.
Bog.naðurinn (23. nóv.—21. des.): Vik-
WSjM an verður fremur tilbreytingalaus, en
PjjBB þó verður föstudagurinn dagur mikilla
CLuHÍ anna og ef til vill mjög ánægjulegur.
Hins vegar verður helgin fremur öm-
urleg, nema þú gerir gagngerar ráðstafanir á
föstudag.
Geitarmerkiö (22. des.—20. jan.): Þér
mun bæði mæta mikið andstreymi og
á hinn bóginn mun lánið leika við þig
í vikunni — sem sagt vika mikilla öfga.
Láttu bara ekki andstreymið verða til
þess að kasta skugga á gleði þína, því að að viku
liðinni verður það allt gleymt. Heillalitur blátt.
VatnsberamerkiÖ (21. jan.—19. feb.):
Þú munt sinna mikið öllum félagssförf-
um i vikunni, og ef þú heldur vel á
spöðunum, munu vinsæidir þínar auk-
ast til muna. Laugardagurinn verður
bæði viðburðarríkur og skemmtiiegur. Á mánu-
daginn mun mikið ganga á.
Þvílíkur maður, hann
Jón Gunnlaugsson! Hann
er svo óhugnanlega
skemmtilegur, að menn
gleyma auðveldlega tíma
og rúmi í návist hans. Jón
er góðvinur Vikunnar, það
megið þið vita. Hann
bregður sér ekki í allra
kvikinda líki fyrir hvern,
sem er. En að hugsa sér,
að slíkir hæfileikar skuli
láinir svo til ónotaðir.
Auðvitað eru Samvinnu-
tryggingar alls góðs mak-
legar og vel þess verðug-
ar að njóta frábærra
starfskrafta Jóns. Engu að
síöur er grátlegt til þess
að vita, að maðurinn skuli
ekki frekar standa á leik-
sviði Þjóðleikhússins og
skemmta þjóðinni. Já,
þjóðin á beinlínis heimt-
ingu á því, að Jón standi
þar og ekki annars stað-
ar. En nóg um það. Nú
gefum við Jóni orðið:
Ónotaðir
hæfileikar
— Hver segir,
að maðurinn sé
ekki kominn af
öpum? Við I)ar-
win höfum alltaf
verið sammála um
þetta atriði, en
mér hefur gengið
miklu betur að
sanna það. Sjáið
þið bara, — þess-
ir bræður okkar í
frumskógum Af-
ríku eru sannar-
lega ekki neinir
fjarskyldir ætt
ingjar.
— Því miður, herra banka-
stjóri Mér er algerlega ókleift að
borga þennan víxil upp í dag. Jú,
jú, ég veit það, ég var búinn að
lofa að greiða hann upp fyrir
áramót, — en, en jólin voru, —
ja, sjáið þér til, — ákaflega dýr,
og áramótin, — það kostaði nú
bara tvö þúsund krónur miðinn
í Lidó á nýársskemmtunina hjá
Ljónaklúbbnum. Nei, nei, auð-
vitað kemur yður það ekki við,
afsakið, — ééé-g er alveg viss um,
að ég greiði víxilinn upp um
mánaðamótin, ef-------