Vikan - 28.04.1960, Side 4
• •
IUBITEIER FERNINGARGJOFIN
Fæst hjá:
Focus
Gevafoto
Týli h.f.
Hans Petersen
og hjá
60
verzlunum
um land allt.
Einkaumboð á íslandi fyrir Rússneskar ljósmyndavörur:
EIRIKUR KETILSSON
Vesturveri 6. h.
Sími: 19155. BOX 1316.
RÚSSNESKAR LJÓSMYNDAVÉ LAR ERU SPÚTNIKAR í LJÓS-
MYNDAHEIMINUM.
♦ Hvenær má byrja jammið?
♦ ískyggilegt með ítalann.
♦ Öfgar móti öfgum.
SKILNINGUR GÓÐRA FORELDRA.
Kæra Vika.
Okkur langar til að vita hvaða skilning góðir
foreldrar leggja i það, hvenær dætur þeirra —
eða synir — hafi náð þeim aldri, að þau megi
eignast pilta — eða stúlkur — fyrir kunningja.
Bless.
Tvær, ekki gamlar.
E. s. Svar fljótlega.
Ja-jæja,‘ eitthvað liggur nú á, telpur mfnar.
Þið verðið þó að hafa nokkra þolinmæði, því
að svar fáið þið ekki fyrr en þið hafið greint
nánar frá því, hvaða skilning þið sjálfar
i leggið í orðið, „kunningjar".
KANNSKI KOMA ÞEIR ÍTÖLSKU AFTUR ...
Kæra Vika.
Víst getur þú nú ekki hjálpað mér í vand-
ræðum minum? Það stendur þannig á, að þegar
ítalska herskipið kom hingað í heimsókn, komst
ég í talsverð kynni við einn af yfirmönnunum;.
hann var mikið glæsimenni og ákaflega kurteis
og ákaflega ólíkur þeim karlmönnum, sem við
eigum yfirleitt að venjast. Hann gaf mér utaná-
skriftina sína, og við hétum að skrifa hvort
öðru, og ég hef skrifað, hvað eftir annað, en
alltaf fengið bréfin endursend. Ég skal j)ó aldrei
trú þvi, að hann hafi ekki-gefið mér rétta utaná-
skrift, hann var ekki þessháttar maður. En
Iivernig á ég að fara að því að hafa uppi á
honum? Af vissum ástæðum riður mér mikið
á að ná sambandi við hann, geturðu ekki gefið
mér einhver ráð? Ég mundi sannarlega verða
þér eilíflega þakklát fyrir.
Virðingarfyllst.
Ein í vandræðum.
Því miður veit ég ekki nein ráð, sem hugs-
anlegt væri að koma mættu að gagni þegar
svona er í pottinn búið. Ég geri ráð fyrir
að þú hafir einnig gcfið honum þína ut-
anáskrift, og hafirðu ekkert bréf fengið frá
honum samt, er annað hvort, að eitthvað
hefur komið fyrir hann, eða hann hefur ekki
mikinn áhuga á að halda sambandi við þig.
Hvort hann hefur sagt þér rangt til um nafn
eða heimilisfang eða hvoru tveggja — um
það þori ég vitanlega ekkert að segja, og
ekki vil ég verða til að hrófla við því trausti,
sem þú hefur fest á manninum, þótt kynni
ykkar geti varla hafa verið löng. Eins og á
stendur er víst ekki um annað að gera en
bíða — kannski þeir ftölsku komi aftur í
kurteisisheimsókn, og þú getir þá aflað þér
nánari upplýsinga.
SUMARSTARF Á FRAKKLANDI ...
Kæra Vika.
Við erum hérna tvær stöllur, sem langar
til að biðja þig bónar. Okkur langar nefnilega
svo mikið til að vera á Frakklandi einhvern
tlma, en höfiun ekki efni á þvi, nema við gætum
unnið fyrir okkur þar. Skyldi vera nokkur leið'
að komast þangað i einskonar kaupavinnu, við
eigum við það, að við gætum fengið að vinna
á einhverjum sveitabæ þar yfir sumarmánuðina,
þó ekki væri nema fyrir fæði og húsnæði? Við