Vikan


Vikan - 28.04.1960, Page 10

Vikan - 28.04.1960, Page 10
Ævar Kvaran: Sigurður Hreiðar Kjarnar og kaflar úr þjóðlegum fröðleik Þa8 hefur löngun andað köldu milli bindindismanna og brennni- vinsberserkja, a. m. k. hér á landi. Þeir, sem áfengis njóta, telja, a8 regla GóStemplara sé ekkert annað en skemmtiklúbbur manna, sem fyrirliti áfengi og vilji af þeim ástæðum meina öðrum að njóta þess (sbr. baráttu þeirra fyrir áfengisbanni o. fl.), sökum þess, a8 þeir sjálfir treysti sér ekki til þess að neyta áfengis i hófi, vilji þeir umfram allt svipta alla aðra þeirri ánægju. Rök templara byggjast hins vegar á þvi, að slika óhemjuógæfu megi rekja til ofnautnar áfengis, að það sé vitfirring að selja nokkrum manni „eitur“ þetta. Margar skemmtilegar sögur eru til af einkadeilum bindindis- manna og Bakkusarvina. Má hér t. d. minna á hið fyndna svar Árna heitins prófessors Pálssonar, er kunningi hans, heitur bindindismaður, var að lesa yfir hinum ölkæra gáfumenni um skaðsemi áfengis. Minnti bindindismaðurinn prófessorinn m. a. á það, að neyzla áfengis væri ekkert annað en flótti frá Iffinu og vandamálum þess. Að fengnum þessum upplýsingum hugsar Árni sig um drjúga stund og segir svo: „Þú segir nokkuð. En þess má þó einnig minnast, að margur hefur lika bjargað sér á flótta!" í þessum þætti miniim ætla ég til gamans að rifia upp skemmtilega sögu af slikum bindindismanni annars vegar og Bakkusarvini hins vegar. Saga þessi er úr handritum Sigmundar Matthiassonar Long, en hann var faðir Valdemars T.ong, bóksala i Hafnarfirði. Sigmundur fluttist 48 ára gamall til Vesturheims árið 1889, og hefur skrásett þar heilmikið af ýmis konar fróðleik, Sðguhetja okkar er séra Sigfús Finnsson, sem prestur var í Þingmúla 1811 til 1815 og siðar i Hofteigi frá 1815 til 1846. Kona hans var Ingveldur, dóttir séra Jóns Hallgrímssonar i Þingmúla. Ýmsar sagnir um séra Sigfús benda ótvirætt til þess, að hann hafi verið góðmenni, glensmikill i meira lagi af manni i hans stððu og léti sér ekki allt fyrir brjósti brenna. Töluvert var hann drykkfelldur, þótt ekki sé getið um sérstðk embættisafglöp hans, þvi að ekki er annars getið en hann væri vel þokkaður af sóknarbðrnum sinum. Og hér kemur sagan. Þegar séra Sigfús var prestur i Hofteigi, var séra Stefán, sonur Árna prófasts Þorsteinssonar i Kirkjubæ, prestur á Valþjófs- stað frá 1812 til 1857 og um hrið prófastur í Norðurmúla- prófastsdæmi. Sagt er. að hann væri framan af ævi allvinkær, en þegar hér er komið sðgu, orðinn ákafur bindindismaður, enda svo mikil bindindishreyfing á Fljótsdalshéraði um þær mundir, að skálar i brúðkaupum voru jafnvel drukknar i blávatni. Einkum var hreyfing þessi öflug i Fljótsdal og séra Stefán þar fremstur i flokki. Eins og nærri má geta, bárust honum til eyrna sögur af því, að séra Sigfús væri helzt um of drykkfelldur, og vildi hann gjarnan hnekkja þvi athæfi hans. ef unnt væri, og taldi mesta snjallræði, ef hægt væri að koma honum að óvörum, svo að hann gæti siður afsakað sig. Sjón er sögu ríkari. Hann gerir þvi Jökuldælingum viðvart, að tiltekinn sunnudag ætli hann að messa á Hofteigi, en svo var til ætlazt, að séra Sigfús skyldi engan pata fá að ferð hans. En flest lágmæli komast i hámæli. Einhver af sveitarmönnum varð til þess að skjóta þessu að séra Sigfúsi laugardaginn, er von var á séra Stefáni um kvöldið. Segir séra Sigfús við konu sína, maddömu Ingveldi: „Jæja, gæzkan mín, ég held þú ættir að sjóða þessi hðngnu bein, sem eftir voru i vor. Ég trúi, að blessaður prófasturinn ætli að koma hingað i kvöld og messa hér á morgun." Um kvöldið kemur séra Stefán. Tekur séra Sigfús honum forkunnarvel, lætur sem sig stórfurði á þvi, að hann skuli vera kominn. Er hann til stofu leiddur og innan litils tima fram borið heitt hangikjðt ásamt ððrum mat, og matast þeir þar báðir. Rúm var i stofunni. Skyldu þeir sofa þar, báðir prestarnir, og þjónaði prestskonan þeim til sængur. En áður en hún gengi burt, hvislaði séra Sigfús að henni, að hún skyldi læsa stofunni að utanveröu, og sagði um leið: „Ég hugsa, að við hðfum ekkert erindi út, hann séra S'tefán minn eða ég.“ Þegar þeir vom háttaðir, langaði prófastinn, sem var dasaður eftir ferðalagið, til að sofna, en séra Sigfús hafði svo margt að segja, að prófasti var með öllu ómögulegt að festa blund. Nú sem timinn leið, fer prófastur að kvarta um þorsta, Framhald á bls. 28. — Nei, komið þér sælir, ungi maður. Það var sannarlega mál til komið, að þér færuð að verða annað og meira, eigum við að segja persónulegri, en þessi snotri bíll í náttmyrkri. Við hjónin vor- um farin að brenna af löngun eftir því að sjá eitthvað meira en bara kollinn á bílnum. Svona, nú þýða engar mótbárur. Þér, — ja, eigum við ekki heldur að vera dús, ég heiti Halldór ðar- aldsson. Fg veit vel, hvað þú heitir. Það er ekki svo lítið, sem maður hefur heyrt um þig. Nú kemur þú bara inn og borðar! — Ja, ég þakka, en eiginlega ... — Hér er ekkert, sem heitir eiginlega. Þessi litla hnátintáta er nú einu sinni dóttir mín, og það er ekki langt síðan við hjónin vorum önnum kafin við það allan sólarhringinn að skipta á henni. Nú þykist hún vera orðin stór, en hún er samt ekki stærri en svo, að við viljum gjarna- sjá eitthvað meira af piltinum, sem hún er með, en bara toppinn á bílnum hans. Og hún mamma hennar hefur fengið orð fyrir að gera allsæmi- legan mat, að minnsta kosti vel frambærilegan á venjulegu verkamannsheimili. Svona, skríddu út úr járnhðlkinum, gamli félagi, og dragðu þig i bæinn. Saltfiskurinn má ekki kólna. — Ja, eiginlega ... — Komdu bara inn, Siggi. Mamma gerir ágæt- an mat, þaö er alveg satt. Það var litla ..hnátin- tátan", sem gekk þarna í lið með föður sínum. Ég leit á hana. Skildi hún ekki, hvað pabbi hennar var að fara? Jú, í bláum augunum og kímnu brosinu var glettinn glampi, sem sýndi, svo að ekki varð um villzt, að hún var með á nótunum. Gott og vel. Ég var ekkert farinn að borða um daginn og var vægast sagt svangur. Og heimagerður matur er alltaf betri en sjoppu- snarl. Ég „sló til", og „dró mig út úr járnhólk- inum". Verst, hvað ég var druslulega til fara. Hefði ég átt von á þessu, hefði ég farið í hreinar gallabuxur, en ekki þessar olíumettuðu druslur. stagbættar og snjáðar, — sennilega líka þvegið mér um hendurnar. En hvað um það, stoltir feður dætra sinna hugsa meira um hiartað og nýrun en buxur og hreinar hendur. Halldór Har- aldsson hafði líka látið mig skilja það ótvírætt, að hans heimili væri verkamannsheimili, og þar voru óhreinindi sennilega ekki með öllu óþekkt. Halldór Haraldsson lagði höndina föðurlega á öxl mér og stjakaði mér á undan sér upp tröpp- urnar. Á meðan lét hann dæluna ganga: — Blessaður vertu, Sigurður. Þið, þetta unga fólk, hafið allt of mikla sektarmeðvitund, þegar þið eruð að draga ykkur saman. Ha, ha, ha. Það er líklega af því, að þið vitið upp á ykkur þá skömm að stela hvert öðru frá foreldrunum. Ætli maður þekki þetta ekki! Þetta er lífið. Allt saman henni Evu gömlu að kenna, af því að hún álpaðist til að bíta i eplið. En guði sé lof, að hún gerði það, því að annars hefði sko «aldrei verið neitt gaman að lifa. — Hérna, sko, Jóna, — sérðu, hvað ég veiddi ? Þetta er nú ekki í soðið, ekki að minnsta kosti í hraðsuðupottinn, ha, ha, ha. Þetta er nú þessi dásamlegi Siggi. Hvernig lizt þér á? — Þú hefðir nú ekki þurft að koma með hann hingað fram í eldhús, Halldór. Hér er allt i rusli. Komdu sæll, Sigurður, og velkominn. — Komdu sæl. Ég ætlaði ekki að fara að troða mér í mat, en Halldór vildi það endilega. — Þú ert alltaf velkominn á okkar heimili. Við þekkjum þig orðið talsvert, þótt við höfum

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.