Vikan


Vikan - 28.07.1960, Blaðsíða 14

Vikan - 28.07.1960, Blaðsíða 14
II **c rivao 'S&ggZiZ - '’fl - 7 \ rr |B S i itaÆL wLÉ& unv 'v jggkgjj ;# -1 1 i iWmmá JPu * Wjj&Ts--- • jg Óttinn er mannskepn- unni áskapaður. Þér óttist um afkomu yðar, heilsu- far os þér óttist jafnvel eitthvað ,sem þér vitið ekki hvað er. Franklin Roosevelt Bandaríkjafor- seti sagði eitt sinn: „Það eina sem þér þurfið að óttast er óttinn“. Imargþættu samfélagi voru eru allir haldnir ótta í einhverri mynd. Stöðugt finna vísindin ný.jar sóttkveikjur,, taugaveiklun - ríýjar ógnanir, sem vér óttumst. Frá líffræðilegu sjónarmiði veldur ótti framkvæmd. Óttinn skapar viðbrögði bæði hjá mönnum og dýrum, sem hjálpar Jjeirn til að verja sig, — annaðhvort snúast þeir til varnar eða flýja. Við vitum öll, að þegai' mikið liggur við, getum við knúið fram áður ómeðvitaðan kraft og liraða. Þessi duldu viðbrögð hjálpa okkur, er við stöndum andspænis skyndilegri liættu, en gagnvart óáþreifanlegum ógnunum eins og einmanakennd, óhamingju, krabbameinshræðslu eða kjarnorkusprengjunni erum við varnarlaus. Þá geta viðbrögð verið hættuleg. Óttinn er aðeins jákvæð- ur meðan við höfum vald yfir honum, Jicgar við géf- um honum lausan tauminn, getur hann eyðilagt bæði sál og líkaina. Er Jiætta steðjar að, koma viðbrögð líkamans strax í Ijós, við byrjum að skjálfa, licndurnar verða þvalar, munnurinn þornar upp og hjartsiátturinn eykst. Heilinn sendir samstundis lioð með taugunum til hjnna ýmsu líffæra, til lokuðu kritlanna og sumra viiðva. Hjartað slær hraðar og dælir bióði örar um æðarnar, svo að við höfum meiri möguleika á flótta eða mótspyrnu. Blóðþrýstingurinn eykst, og við drög- um anann tíðar og sjáum líkamanum fyrir nægu súrefni. Augnasteinarnir stækka, til þess að við get- um séð hættuna, er að okkur steðjar. Framleiðsla munnvatns minnkar, vegna þess að meltingarstarf- semin hægir á sér. Við förum að skjálfa, sökum þess að smáir vöðvar i húðinni dragast saman — við fáum gæsaliús. Við verðum stundura fyrir eins konar innra taugaáfalli, er æðarnar i Jiindinni dragast saman. Arenalínið í nýrunum berst út i blóðið og eykur starfsemi lijarlans og blóðþrýstinginn sam- kvæmt.því, sem vöðvar handleggja og fóta styrkjast. Lifrin framleiðir einnig sérstakt efni, sein veldur því, að idóðið ríorknar fyrr, ef við særumst. MikiJl ótti getur haft það í för með sér, að við deyjum af taugaáfalli. Þegar ekki er eins mikil alvara á ferðum, föllum við í yfirlið, missum minnið eða jafnvel sofnum. Þetta er svo algengt hjá íbúum Bali, að þeir hafa myndað sér sérstakt orð yfir það, sem þý,ir „óttasvefn". Stöðugur ótti, sem ekki fær útrás í framkvæmd,. yeldur þvi, að við erum alltaf yfirspennt. Þetta ástand slítur likamanum. Ef þessi yfirspenna stendur lengi, þannig að nýrun verða stöðugt að auka fram- leiðslu sina af adrenalíni, verða þau að lokum óstarf- hæf. Hið hárfína samstarf líkamans kemst Jiá úr jafnvægi. Viðnámsþrótturinn gegn hita, kulda og smitun minnkar og við vcrðum hvers konar sjúk- dómum auðveld bráð. Þekktur læknir sagði nýlega: — \ið höfum nú gert okkur Ijóst, að margir algengii" sjúkdómar eiga fremur rót sina að rekja lil sál’- rænna orsaka en eiturefna eða annarra ytri verkana. Það leiðir til taugaveiklunar, of hás blóðþrýstings, mgasárs, vissra gigtartegunda, ofnæmissjúkdóma svo og einnig er Jiessi skortur í aðlögunarhæfni orök lijarta- og nýrnasjúkdóma. Ótti barnsins. rum við þegar frá fæðingu hahlin vissri tegund ótta? Fyrir um það bil 30 árum komst þekktur sálfræðingur að þeirri niðurstöðu, að ungbarnið óttaðist aðeins tvennt, hávaða og fall. Aðrir vísinda- menn, sem haldið hafa rannsóknum áfram, halda því fram, að allir skyndilegir atburðir komi nýfæddu barni úr nokkru jafnvægi, t. d. hávaði, sterkt ljós og beizkt bragð, en þetta eigi fremur rót sína að rekja til undrunar en hræðslu. Það liða márgar vikur, áður en Jiað raunverulega skynjar hættu. Eru einstök börn næmari fyrir ótta en önnur? Nýjustu raiinsóknir fræða okkur um, að sum börn séu fædd með meiri „hæfileika“ til ótta en önnur og hið innhverfa barn vcrði fremur hrætt. Börn, sem eiga auðvelt með að láta tilfinningar sinar í ljós, 14. t V IK A N

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.