Vikan


Vikan - 28.07.1960, Blaðsíða 11

Vikan - 28.07.1960, Blaðsíða 11
ona&óon 2>, taó <> Verður hjónaskilnaður tízka ? misskilning eða slysni. Þa'ð þekkir þvi ekki þá till'inningu, seni tcngir maka ævilangt. Því finnst hjónabandið vera l'jötur, sem það Yill geta losnað úr ámælislaust. 1 augum þess nýtur hjóna- bandið óverðskuldaðra forréttinda fram yiii- önnur samlifsl'orm. Lauslætisdrósin, sem skiptir um menn örar en káputízkan breyt- ist, vili ekki sætta sig við minni virðngu í samfélaginu en eigin- konan nýtur, sem er mann sínum trú og fórnar sé i uppeldi barna sinna. Sterkan joátl í þessu upplatisnarverki eiga skilnaðarsögur kvik- myndaleikara, sem auglýstar eru öllu mannkyni sem mikilvægar lieimsfréttir. Fjöidi unglinga dáir stíkl fólk í blindni og er þvi sefnæmur fyrir lífsskoðun þess og bátterni. Hins vegar brestur unglinga skilning á þvi, að persónulegt líf manna getur verið spillt og rotið, þó að þeir taki sig vel út á leiksviði. Skilnaðar áróðurinn smýgur þvi óbrotinn inn i hug æskunnar, og margt ungmenni er íarið að telja skilnað eðlileg þáttaskil í bjónaböndum. áður en alvarleg ást vaknar í brjósti þess sjálfs. Ijegar ungt fótk kemst fyrst í raunverulega snertingu við þetta siðgæði, getur það stundum verið á báðum áttum, hvort það finnur til stolts eða blygðunar. Ung og glaísileg kona svaraði, þegar vinur hennar óskaði benni til Jiamingju með nýstofnað lijónaband hennar. „Ég er nú bara þriðja frú! Hann er tvískilinn." SÍGILT SKILNAÐARVANDAJVIÁL. Hann skildi ekki aðeins við konur sínar, beldur einnig börn. Skilnaður foreldra setur börnin jal'nan i mikinn vanda, sem hinn brottborfni faðir hefir enga aðstöðu til að leysa. Og þó að margri fráskilinni móður séu börnin hjartfólgin og bún vilji annast þau sem bezt, þá neyða atvinnusjónarmið iiana oftast lil að yfirgefa þau að einhverju eða öllu leyti. Annars skortir mikið á það, að bverri konu, sem skilur við mann sinn, séu börnin hjartl'ólgin. Ráðstöfun á börnum úr sunium upplausnarlijóna- böndum verður varla líkt við annað en uppboð á skepnum úr jtrotabúi. Sum eru gel'in, öðrum skipt af liandaliófi og send á flæking meðal kunningja og l'jarskyldra ættingja. Ég þekki börn úr slikum ástæðum, sem á 2—3 fyrstu æviárunum liafa dvalizt á 9 mismunandi bráðabirgðabeimilum, bvergi Hengur en bálfl ár í senn. Á jjessum vesalings börnum eru öll mannréttindi þver- brotni, nema þau eru ekki seld fyrir peninga út í bönd. II m þennan ráðstöfunarétt snúast venjulega síðustu viðskipti foreldra, sem slíta hjónabandi. Og sjaldan lika úrslitin báð- um vel. lláðstöfun bvors um sig á börnunum gefur tilefni tit áframbaldandi misklíðar, sem oft er ekki sprottin al' umhyggju fyrir barninu, en bitnar bins vegar á því og gerir aðstöðu þess enn erfiðari en áður var. 1 slíkum deilum falla bitur orð og e. t. v. beizk tár einnig, svo að óþarft er að afmynda binar marglátu þokkadisir kvikmyndanna til þess að kynna íslending- um slíkt. Sáryrði og tár kunna að verða okkur léttbærari, ef við vitum, að svipað sjónarspil hafi gerzt á stjörnuhimni kvikmynd- anna. En börnunum okkar er ekki borgið að beldur. VIK A N

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.