Vikan


Vikan - 28.07.1960, Blaðsíða 16

Vikan - 28.07.1960, Blaðsíða 16
Dálítill pjásustíll segið þið og það má vel vera aS þið hafið rétt fyrir ykkur. En það er nú eitthvað frísklegt og glæsilegt við stúlkuna, þið eruð vonandi sam- mála því. Hvaðan skyldi hún svo vera. Það er stundum talað um sænskt útlit, italskt, spánskt eða typiskt franskt. iHvaðan munduð þið svo segja að þessi stúlka væri. — Jæja, en hún er nú fædd í París — og eklci fædd í gær, gæti maður haldið af lífsreyndum svipnum — og meira að segja hefur hún verið Parísardama alla sína ævi. fnnjbó eitt tækifærí um og Iáta vera að hneppa frá sér vestinu, þegar hann væri búinn að borða. . . . Ef hún Magga systir mín vildi nú einu sinni reyna að líta snyrtilega út, og ef hún vildi nú rétt stilla sig um að vera alltaf að gorta af, hvað hún gangi i augun á piltum. Ég gekk inn i stofuna, þar sem búið var að breiða á borð. Og mér fannst jafnvel silfur- borðbúnaðurinn gamall og fátæklegur. Ég var að laga einn gaffalinn — þá var dyrabjöll- unni hringt. Andartak fannst mér eins og siðasta stund min væri komin. Svo gekk ég rólega út i and- dyrið og Iauk upp. En þegar ég kom auga á Pál, er stóð úti fyrir og brosti til min, fór hjartað í mér að hoppa af gleði, eins og það gerði alltaf, þegar hann var nálægur. Ég gleymdi öllu sem i kring- um mig var, og hugsaði um það eitt, hvað hann var finn og hver heitt ég elskaði hann. En ég rankaði við mér þegar ég heyrði rödd hans: — Daginn, væna min. Hefurðu alls ekki hugsað þér að bjóða mér inn? —- Aðvitað, Páll, fyrirgefðu. Heyrðu nú til, lofaðu mér að taka frakkann þinn, flýtti ég mér að segja. —- Taktu þetta með þér, sagði hann og rétti mér stóran kassa með súkkulaði. — Það er' til móður þinnar. — En hvað það var indælt, sagði mamma, er kom i sðmu andrá út úr eldhúsinu. — Súkkulaði er blátt áfram það bezta sem ég þekki. Hún var eldrauð i framan af hitanum út úr ofninum og hafði misst sósu niður i svuntuna sina. En það leit ekki út fyrir að Páll tæki eftir því. Hann tók 1 hönd mömmu og heils- aði henni af eins mikilli virðingu og væri hún drottning. Hún bauð hann „hjartanlega velkominn" og hvarf svo inn i eldhúsið að nýju. — Við verðum að borða hér inni, sagði ég við Pál og gekk á undan honum inn i stofuna. — Það er ekki rúm fyrir borðstofu i þessari hðll. Við settumst, og Páll ætlaði að fara að svara, en hætti þvi við upuhrópun mikla innan úr svefnherbergi: — Karen, hvern þremilinn hefir þú gert af axlaböndunum minum? Hvern- ig á maðnr að fara að bvi að klæða sig, þegar buxurnr fara alltaf niður á hæla. Og svo kom pabbi á fleygiferð inn i stof- una, á nærtreyjunni og hélt buxunum uppi um sig á strengnum, af öllu afli. — En pabbi. Ég fann, að ég varð eldrauð i framan ég skammaðist mín svo mikið. — Góði, farðu inn og farðu i eitthvað. — Já, Anna litla, vertu nú róleg. Ég er viss um að vinur þinn hefir séð nærtreyju fyrr, — er sennilega svo búinn sjálfur eða hvað? Pabbi hló hjartanlega og ég óskaði þess, að ég sykki ofan i gólfið. Páll stóð upp og heilsaði pabba. — Ánægjulegt að heilsa upp á yður, herra Hólm, sagði hann og brosti. — Það kemur líka iðulega fyrir, að ég man ekki, hvar ég hefi Iátið axlaböndin mín. — Það er ekki ég, sem hef fleygt þeim frá mér, anzaði pabbi i mótmælatón. —• Min ágæta kona felur fötin mín og kallar það að taka til i húsinu. Það er brella, sem konur bregða fyrir sig til þess, að gera okkur upp á þær komnar. Gætið yðar fyrir öllum konum, dreng- ur minn. Páll hló og ég nísti tönnum. — Pabbi, sagði ég ákveðin. — Er ekki bezt fyrir þig að fara inn og koma þér í einhver föt? Maturinn er að verða tilbúinn. — Já, hann er það, sagði mamma og kom inn i stofuna með hraði. — Ég skal finna axlaböndin þín, pabbi gamli. Og Anna li . . . Anna — ef við eigum að fá okkur glas af sjerrí á undan matnum, ættir þú að koma því í kring sem fyrst. — Lofaðu mér að hjálpa þér, sagði Páll. •— Húsverkum er ég reyndar ekki vanur, en þetta ætti ég þó að geta. Ég tók eftir því, að hann leit í kringum sig, þegar við komum fram í eldhúsið, og vafalaust hefir hann komið auga á að glerung- urinn var brotinn á vaskinum og hola brennd á gólfið fyrir framan eldavélina. En hann sagði ekkert. Hugsanir minar snerust um það eitt að jjrauka þetta einhvern veginn, með- an á dagvcrðinum stæði, og komast yfir kvöld- ið svo fljótt sem unnt væri. Ég hafði hugboð um að það yrði enn verra en mig hafði órað fyrir. Páll bar bakkann inn meðan ég var að leita að ostkexinu. Þegar ég kom inn á eftir hon- um, heyrði ég mannamál og gat mér þess til, að hann væri að heilsa Margit systur minni. — Ég er litla systir, sagði hún. •— Og ég býst við að stóra systir hafi sagt þér frá mér. hrukku bæði við, hún og Páll. En ég gat — Margit, rödd mín var svo hvöss, að þau ómögulega að þvi gert. Þvi sat ekki Magga þarna, með höfuðið fullt af hárnálum. Hún hafði að vísu bundið klút um það til að hylja hið versta, en samt stóðu þær fram undan hér og þar. — Ég var svo fokvond, að ég liefði geetað barið hana. Framh. á bls. 31. 16 VIKAN

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.