Vikan - 29.09.1960, Blaðsíða 16
Lgtftfaust ftndlit
getur skemmxt
ftf bóium 09
fílftpensum
Bólur orsakast af offram-
leiðslu i fitukirtlum húðar-
innar. Einkum ungt fólk á
gelgjuskeiði líður af þess-
ari offramleiðslu og berst
við bæði bólur og fílapensa.
Mikið er hægt að hjálpa
upp á með því að passa að
meltingin sé I lagi, forðast
feitmeti og mikið kryddað-
an mat, halda sér frá áíengi,
kaffi og sígarettum, og sið-
ast en ekki sízt með því að
hreyfa sig nóg og fara oft
baðinu þurrkið þið ykkur vel með grófu handklæði. * b&ð' muni®’ a® a eítir
Á sumrin er gott að fara í sjóinn og sólbað á eftir, en háfjallasól er lika ágæt
þar sem hun_ er bakteríudrepandi og þurrkar húðina að nokkru leyti. Munið að hafa
gleraugu í háfjallasól og fara ekki nær lampanum en svona metra. Byrjið með þrem
mmutum við daglega, þangað til kominn er hálftími. Án þess að tala við lækni má ekki
fara í háfjallasól, nema þið séuð alveg hraustar.
Meðal fegurðarlyfja er til brennisteinssalvi, sem nota má á kvöldin, en rétt væri að
setja yfir hann grimu úr þunnu efni, vegna sængurfatnaðarins. Einnig er gott að
þvo sér með brennisteinssápu. Svo er líka hægt að strjúka staðina með baðmullarhnoðra
vættum í hoffmannsdropum, það þurrkar, og er þar að auki mjög ódýrt.
Sé aðeins um einn fílapensa að ræða i svo til bólulausu andliti, er hægt að þrýstla
honum varlega út með baðmull á milli tveggja fingra. Munið að skola á eftir með
emhverju sótthreinsandi. Svo er líka hægt, ef mikið er um bólurnar að fá sér ger
til að. taka inn. Það er keypt í apótekum sem smákorn, og af því borðið þið nokkrar
teskeiðar á dag. Þannig ger er fullt af B-vítamíni, en það eykur mótstöðu blóðsins
gegn smitunum, og er þannig árangursríkt í bardaganum gegn bólunum.
Borgor sig — borgor sig ekki
Það er ekkert réttlæti í þessu. önnu og Láru
var boðið til Gunnu um daginn, boð, sem allar
stelpur í þeirra bekk öfunduðu þær af vegna
eldri bróður Gunnu. Hann hét Ásgeir og liktist
einna mest filmstjörnu. Lára hófst þegar handa,
tók alla sina sparipeninga til að kaupa hatt, sem
færi vel við nýju dragtina hennar, og gerði hana
reglulega glæsílega. Því að hún vissi eins og all-
ur bekkurinn, að þessi yfirnáttúrlega vera var
nýkominn heim frá Italíu þar sem stúlkurnar
voru alveg sérstaklega fallegar og það voru hörð
kjör fyrir venjulega íslenzka stúlku að þurfa að
taka .upp samkeppnina, en það var um að gera
að spjara sig eins og hægt var. Hún laumaðist
þess vegna líka inn í snyrtivöruverzlun og keypti
dálítið af bláum augnskugga á augnalokin til að
gera þau þung og „interessant", og hún fékk sér
einnig nýjan varalit, sem henni fannst flottari
^en sá sem hún átti. Á meðan hafði Anna verið
í hjólatúr og hafði villzt. Hún kom því of seint
heim og hafði alls ekki tíma til að snyrta sig áður
en hún fór af stað. Hún greip í flýtinum eina
hreiria kjólinn sem hún fann, gulan léreftskjól,
og til þess að verða ekki úfin á leiðinni tók hún
gamla gula hettu af tekatli og setti á höfuðið
og lét taglið út um gatið fyrir hankann, svo þaut
hún af stað og þreif um leið hvíta golftreyju.
Og þið getið rétt ímyndað ykkur. Eftir að þær
voru farnar spurði Ásgeir: — Hefur hún síma?
— Hver, Anna eða Lára, svaraði systir hans.
— Þessi litla gula auðvitað, heldurðu ekki að
hún sé með i bíó eitthvert kvöldið. Mér liður svo
prýðilega með stúlku, sem lítur vel út, en virðist
ekki hafa hugmynd um það.
16 VIKAN
Brúðnrkjólnr
Það kemur óhjákvæmilega öðru hverju fyrir, að einliver giftir sig, svo
það er ekki úr vegi að sýna ykkur nýjustu tízku í þeim efnum, ef ein-
liver ykkar skyldi vera næst. Kjólarnir liér að neðan eru allir livítir,
en sá litur virðist einn lialda velli, að minnsta kosti á ekta brúðarkjólum.
Svo er silki ekki eingöngu notað heldur einnig mikið af blúnduefnum.
<] Hátíölegur brúðarkjóll úr ekta silki. Slöriö
er hálfsítt og kransinn úr livítum myrtu-
sveigum.
Nýtízkulegur brúöarkjóll úr
satíni. Jakki niöur í mitti og
langt brúöarslör tekiö saman
meö einni rós.
<j Fallegur og hentugur kjóll, sem hægt er
aö breyta, þannig aö blúndan er tekin af,
þá er hann fleginn og hlíralaus.
Fallegur brúöarkjóll úr hvítu
satíni. Neöst er hvít blúndu-
■pifa saumuö í bogadregnar
tungur. Slaufan er úr tvöföldu
satíni, hálfermar.
Sérkennilegur kjóll, satín,
pils úr fjórum pífum og
blúndujakki meö kvarterm-
uvi, hnepptur aö aftan. Slör-
ið úr rykktu tylli.
O Heppilegur brúöarkjóll fyr-
ir unga brúöi, stuttur úr
hvítri blúndu, pilsið ein-
göngu úr blúndupífum, tekn-
um saman aö framan meö
satínróswn. Slöriö úr þunnu
tylli.
.
sokan 17