Vikan


Vikan - 29.09.1960, Blaðsíða 10

Vikan - 29.09.1960, Blaðsíða 10
RRUGÐIÐ ÍEIK Nokkrir reisuþættir úr Norðurlandaferð sem sýna hvernig landinn lifir, lætur og skemmtir sér á orlofsferðum Eftir Óskar * ✓ Aðalstein Á SIGLINGU — OG ÆVINTÝR í BJÖRGVIN. Nokkru áður en é£ held til skips fer ég í rakarastofu. Rakarinn er kornungur maður og kann sitt fag eins og bezt verður á kosið. Á mér fremur hann allar kúnstir iðngreinar sinnar. Að lokum setur hann eilífðar- bylgjur í hárið á mér. Ég er líka sallafínn þegar ég kem um borð í skipið, og flýti mér að taka ofan hatt- inn, svo allir viðstaddir geti séð ei- lífðarbylgjurnar. Skipið er yfirfullt af farþegum. Hér er fjöldinn allur af fólki, sem ætlar „hringinn", og hér eru margir Færeyingar á leið heim úr vepinu. Ég lít inn í klefann minn. Þar er einn maður fyrir, Fær- eyingur, viðræðuglaður náungi með stórkostlegar eilífðarbylgjur í hárinu, enda rakarsveinn að atvinnu heima í Færeyjum. Hann hefur verið að heiman í þrjá mánuði og þénað um átta hundruð krónur danskar: — Hugsa sér annað eins og þetta, frændi, segir hann. — Þetta er ævin- týri líkast. Annars fá aðeins sárafáir okkar slik kostakjör núorðið. Það er búið að setja undir lekann. — Jú, bjargráðin, þetta nýja póli- tiska patent, anza ég. — Já, frændi, nú á að fara að spara i Islandi, segir rakarasveinninn bros- leitur. — J-æ-j-a, er sagt frammi við dyr. Þar er kominn hressilegur maður með skopglampa í augum, dökkhærð- ur og sléttkembdur (Sá hefur ekki verið að kasta peningum í eilifðar- bylgjur). — Jæja, segir hann aftur. Svo rikisstjórnin okkar er allt í einu orðin sparsöm, það eru gleðileg tíð- indi. Ég segi: — Við biðjumst að vísu undan óll- um novis gravaminibus (nýjum álög- um). E’n hvað skal segja? Sjálfir reyra þeir að sér sultarólina. Einkum og sér í lagi spara þeir við sig gjald- eyrinn. E’ða hefurðu ekki heyrt sög- una af aumingja stjórnarerindrekan- um á Kastrupflugvelli? Hann var að fara heim og átti ekki aura fyrir Karlsberg. Sá nýkomni réttir mér höndina og segir: — Við skulum vona að einhver hafi séð aumur á stjórnarerindrekan- um. En segðu mér; ertu í hópferð- inni? — Já, ég er það. Og mér þætti gaman að sjá framan í fararstjórann. Hann er vonandi enginn leiðindapoki. Þótt ég þekki ekki fararstjórann svo mikið sem í sjón, grunar mig þegar, að það sé einmitt hann sem ég nú á orðastað við, enda kemur fljótlega í ljós að svo er. Þegar ég er orðinn alveg viss í minni sök, segi ég: —- Þú ert vonandi með góðan hóp. Og nú er það áreiðanlega farar- stjórinn sem talar: — Því trúi / ég staðfastlega. Það er vonlaust að leggja upp með slæm- an hóp. Ég hef stússað i þessu fyrr og allt gengið að óskum. — Allir samtaka með að velta af sér reiðingnum? spyr ég. — Það má vel orða það þannig. — Og enginn komið brotinn til baka? spyr ég. — Ég fengi varla að fara þessar ferðir, ef ég kæmi með mannskapinn brotinn og benjaðan heim aftur. Húmorinn er uppi. Það líður á kvöldið. Skipið tekur að velta meir en góðu hófi gegnir fyrir suma. Fólk byrjar að kenna sjó- veikinnar; lífsánægjan hverfur úr svipnum og andlitið deyr. Það er bið- röð við öldustokkinn. Menn eru að gera þetta eina sem óhjákvæmilega fylgir sjóveikinni. Um nóttina liggur við sjálft að obbinn af mannskapnum sé að farast úr sjóveiki, að frádregn- um Færeyingum, sem flestir búa í lest og halda uppi söng og gleðskap. Næsta dag má segja að algjört frí sé hjá yfirkokknum og undirkokkn- um. Einn og einn maður slæðist þó upp til að láta niður í sig krásina. Á þriðja degi hastar einhver ' ósýni- legur á.vindinn og sjóinn. Það dettur á með logn, skipið hættir að velta og líður áfram eins og eftir lygnri heiðatjörn. Salirnir fyllast af bros- leitu fólki. Þarna eru glaðir Færey- ingar með gildan sjóð og á annað hundrað kátir hringfarar og svo hóp- urinn sem ég tilheyri. Við erum átján, en mundum að líkindum hafa orðið um þrjátíu, ef ferðakostnaður- inn hefði ekki hækkað verulega vegna bjargráðaráðstafana ríkis- stjórnarinnar. Jafnvel lúxusflakkarar ■komast ekki hjá að bjarga þjóðinni, þegar stjórnmálamenn fá samvizku- bit. En líttu nú á. Hér erum við öll samankomin á þiljum uppi i sólskini og blíðviðri. Þú sérð strax að þetta er ágætur hópur. Hér eru miðaldra kaupmannshjón að leggja upp í sína fyrstu utanlandsreisu. Og ef þú ert svolítill mannþekkjari og kannt að koma að þér fólki, þá er ég viss um Framhald á bls. 26. !□ VIKAN

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.