Fréttablaðið - 01.12.2009, Page 10
10 1. desember 2009 ÞRIÐJUDAGUR
HEILSA Þeir sem meira eru menntaðir eru
líklegri til að finna sér heilsusamlegri lífs-
stíl en þeir sem minni menntun hafa og
konur lifa almennt heilsusamlegra lífi en
karlar. Þetta kemur fram í greiningu Rún-
ars Vilhjálmssonar, prófessors í félagsfræði
við hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands,
sem hann byggir á umfangsmiklum könnun-
um sem gerðar voru á heilsufari Íslendinga
á árunum 2006 til 2007.
„Ég ákvað að skoða svokallaða lífsstíls-
þætti sem hefð hefur verið fyrir að tengja
heilsufari síðan gerðar voru viðamiklar
rannsóknir í Bandaríkjunum á áttunda ára-
tugnum þar sem sýnt var fram á að tengsl
eru á milli heilsusamlegs lífsstíls og heil-
brigðis.“ Lífsstílsþættirnir sem kannað-
ir voru hjá fólki voru eftirfarandi, lík-
amsþyngd, hvort fólk borðaði aukabita á
milli mála, hvort það borðaði morgunmat,
hversu lengi fólk svaf á næturnar, hvort
það hreyfði sig, hvort það reykti og hversu
mikið það drakk af áfengi í viku að jafn-
aði. Í stuttu máli sagt eru gefin stig fyrir
það þegar fólk svarar á þá lund sem heilsu-
samlegt þykir, stig fæst til dæmis fyrir að
reykja ekki, vera í kjörþyngd, drekka í hófi
og svo framvegis.
Meðal þess sem kom í ljós þegar Rúnar
fór að kanna lífsstíl Íslendinga er að flest-
ir lifa frekar heilbrigðu lífi, fá stig fyrir að
minnsta kosti einhverja af þáttunum. Annað
sem kom í ljós var að það voru ekki sérlega
sterk tengsl á milli þáttanna, það er að segja
að þó að fólk stundaði óhollustu af einhverju
tagi þá fékk það kannski
stig fyrir aðra lífsstíls-
þætti. „Það voru margir í
blönduðum lífsstíl, hvorki
mjög óhollum né mjög holl-
um,“ segir Rúnar.
Töluverður munur kom
þó á daginn þegar rýnt var
í niðurstöðurnar. „Eftir
því sem fólk verður eldra
borðar það til dæmis frek-
ar morgunmat. Eldra fólki
er hins vegar hættara við
að vera yfir kjörþyngd.“
Þegar einstakir hópar voru skoðaðir betur
kemur í ljós að þeir sem eru meira mennt-
aðir lifa almennt hollara lífi en þeir sem
minna menntaðir eru. Einnig lifa konur
heilbrigðara lífi en karlar að meðaltali.
Tekjur og búseta skiptu líka máli, þótt
tengslin væru ekki jafn afgerandi. Þeir
tekjuhærri lifðu heilsusamlegra lífi en þeir
tekjulægri og íbúar höfuðborgarsvæðisins
að einhverju leyti líka.
Rúnar segir ávinninginn af heilsusamleg-
um lífsstíl augljósan og þessar niðurstöður
gefi vísbendingu um gott almennt heilsufar
Íslendinga. Hins vegar hafi erlendar rann-
sóknir sýnt að efnahagslegar þrengingar
hafi neikvæð áhrif á lífsstíl og því sé full
ástæða fyrir stjórnvöld að sinna vel for-
varnarstarfi og heilsueflingarstarfi, það sé
aldrei mikilvægara en á krepputímum.
sigridur@frettabladid.is
Konur heilbrigðari en karlar
Rannsókn á heilsu og lífsstíl Íslendinga benda til þess að almennt lifi fólk heilsusamlegu lífi hér á landi.
Meiri menntun skilar sér í heilbrigðara líferni. Konur lifa heilsusamlegra lífi en karlar.
*Ef þú sefur hæfilega, borðar reglulegan morgunverð,
borðar ekki aukabita á milli mála, ert í kjörþyngd, hreyfir
þig að minnsta kosti einu sinni í viku, reykir ekki og
drekkur minna en 3 skammta af áfengi á viku færðu sjö
stig á lífsstílskvarðanum.
**BMI stendur fyrir Body mass index, talan fæst með
því að deila í þyngd í kílóum með hæð í metrum í öðru
veldi. Dæmi um 60 kílóa manneskju sem er 1,70 á
hæð: 60/(1,70x1,70) = 20,8. Manneskjan er með BMI
20,8 og er í kjörþyngd.
RÚNAR
VILHJÁLMSSON
Þátttakendur í könnuninni
voru látnir svara spurningu um
hvernig þeir mætu heilsu sína.
Í ljós kom að 94 prósent þeirra
sem voru með fullt hús stiga
á samanlögðum lífsstílskvarða
töldu sig við góða heilsu. Ekki
einn einasti sem var með engin
stig taldi heilsu sína góða. 97
prósent þeirra sem voru með
fullt hús stiga á kvarðanum
töldu andlega heilsu sína góða
en einungis 25 prósent þeirra
sem voru með engin stig.
Þess má geta að í bandarísku
rannsóknunum áðurnefndu
kom í ljós að dánartíðni yfir
níu ára tímabil var mun lægri
hjá þeim sem voru með sex til
sjö stig en þeim sem voru með
færri stig.
TENGSL GEÐHEILSU OG LÍFSTÍLS
Hollustu- og áhættuhegðun full-
orðinna Íslendinga (18-75 ára)
Hæfilegur svefn
(7-8 klst.)
69%
Reglulegur morgunverður
76%
Át milli mála
(nær daglega)
29%
Kjörþyngd
(BMI ≥18,5 og <25)
43%
Líkamleg hreyfing
(vikulega)
65%
Reykingar
(reykir nú)
27%
Ofneysla áfengis
(≥3 sk., ≥5gl.)
32%
KERTAVAKA Hjúkrunarnemar héldu
í gær kertavökur víða á Indlandi á
heimsdegi eyðni. Um 2,5 milljónir
Indverja eru taldar HIV-smitaðar og
mörgum hefur verið hafnað af fjöl-
skyldum og vinum vegna sjúkdómsins.
NORDICPHOTOS/AFP
SJÁVARÚTVEGUR Humar- og síldar-
vertíð hjá Skinney-Þinganesi hf.
á Höfn í Hornafirði lauk í gær.
Þetta er afar óvenjulegt en
undanfarin ár hefur humarver-
tíð verið lokið þegar síldarver-
tíð hefst. Humarvertíðin hefur
staðið frá lok mars, eða í átta
mánuði.
Heildaraflinn á þessu tímabili
er 225 tonn af slitnum humri.
Þrír bátar félagsins hafa séð um
hráefnisöflunina.
Síldarvertíðin var stutt í báða
endana, en afli haustsins er rétt
um átta þúsund tonn. Síðastlið-
ið haust var aflinn rúm þrjátíu
þúsund tonn.
Uppsjávarskip félagsins, Jóna
Eðvalds og Ásgrímur Halldórs-
son, skiptu aflanum bróðurlega
á milli sín.
- shá
Humar og síld:
Vertíðarlok
sama daginn
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
39
89
8