Fréttablaðið - 01.12.2009, Page 27
Sölufulltrúi Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473
„Ég hef aldrei verið í betra formi,
að minnsta kosti ekki síðan ég var
átján ára,“ segir Sveinn Jóhann-
esson Kjarval, sem hefur æft af
kappi combat conditioning og
kettle bells, eða ketilbjöllur, sem
hafa verið að ryðja sér til rúms
hérlendis.
„Combat conditioning er hrein-
ræktuð alhliða líkamsþjálfun,
þar sem mikið er unnið með laus
lóð, þol og eigin líkamsþyngd,“
útskýrir Sveinn fyrir blaðamanni
og bætir við að þessi tegund lík-
amsþjálfunar njóti sívaxandi vin-
sælda og einkum og sér í lagi á
meðal þeirra sem stunda bardaga-
íþróttir.
„Samt er þetta í sjálfu sér ekki
bardagaíþrótt og á lítið skylt við
þær,“ bætir Sveinn við, en hann
hefur allt frá bernsku heillast af
slíkum íþróttum. „Ég hef alltaf
verið aðdáandi bardagaíþrótta og
lá alveg yfir myndum með Bruce
Lee og Jean-Claude van Damme
á unglingsárum. Þetta voru nátt-
úrulega harðir naglar,“ segir
hann og hlær.
Áhuginn varð til þess að Sveinn
fór að æfa jiu jitsu og taekwondo
og gerði það í nokkur ár, áður en
hann sneri sér síðan að combat
conditioning og ketilbjöllunum.
Hann náði ágætis árangri í taek-
wondo, vann til einna silfurverð-
launa á Íslandsmóti og síðan til
tvennra gullverðlauna á alþjóð-
legum mótum.
Þetta áhugamál virðist vera
arfgengt þar sem yngri syst-
ir Sveins, Þóra Kjarval, fetaði
til skamms tíma í fótspor stóra
bróðir. „Það kom fyrir að maður
lamdi litlu systur sína á æfingum.
En það var allt í lagi, hún kunni
nú alveg að sparka frá sér,“ segir
Sveinn hlæjandi og neitar því
ekki að ýmis ágreiningsefni hafi
verið leyst í taekwondo-tímum.
„Nú heldur hún sig mestmegnis
í ræktinni og stendur sig vel.“
Þótt bardagaíþróttirnar hafi
alltaf heillað mest segist Sveinn
fá heilmikið út úr rútínunni sem
hann hefur komið sér upp á síð-
ustu árum. „Þú sérð það að ég næ
að taka allan pakkann á aðeins
45 mínútum í hádeginu svona
fjórum til fimm sinnum á viku,“
útskýrir hann og bætir við að
hann sé alltaf að bæta við sig.
„Nú get ég til að mynda slengt
eigin líkamsþyngd yfir höfuð.
Það er nýjasti árangurinn.“
roald@frettabladid.is
Útrásarvíkingur í vígahug
Sveinn Jóhannesson Kjarval er stórhuga maður, sjálftitlaður útrásarvíkingur sem vílar ekki fyrir sér að lyfta allt að 40
kílóa þungum ketilbjöllum og getur slengt eigin líkamsþyngd yfir höfuð sér án þess að blása úr nös.
„Ætli áhugann megi ekki meðal annars rekja til þess að ég hef alltaf fílað mig betur í einstaklingsíþróttum en í liði,“ segir Sveinn
Jóhannesson Kjarval, sjálftitlaður útrásarvíkingur með brennandi áhuga á bardagaíþróttum og líkamsrækt. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
LÝÐHEILSUSTÖÐ ráðleggur að menn neyti að minnsta
kosti tveggja fiskmáltíða á viku. Algengur skammtur af
fiski er um 150 grömm og ágætt að reikna með því að
fiskneysla sé að minnsta kosti 300 grömm á viku.
Tímapantanir 534 9600
Hlíðasmári 11, 201 Kópavogur -www.heyrn.is
Bjóðum úrval af dönskum ReSound heyrnartækjum
* Heyrnarþjónusta
* Heyrnarvernd
* Heyrnarmælingar
* Heyrnartæki
* Ráðgjöf
Hjá Heyrn er veitt alhliða þjónusta til að bæta
úr heyrnarskerðingu undir faglegri ábyrgð
Ellisifjar K. Björnsdóttur, heyrnarfræðings.
Ellisif K . Björnsdóttir
heyrnar fræðingur
Auglýsingasími
– Mest lesið