Fréttablaðið - 01.12.2009, Side 28
1. 2
Anna Rósa Róbertsdóttir grasa-
læknir hefur sett á markað krem,
smyrsl og tinktúrur undir eigin
nafni en þær eru búnar til úr hand-
tíndum íslenskum lækningajurt-
um. „Ég er auk þess með örfáar
erlendar jurtir en þær eru undan-
tekningarlaust lífrænt vottaðar,“
segir Anna Rósa.
Anna Rósa heldur samhliða úti
heimasíðunni www.annarosa.is en
þar er hægt að nálgast allar upp-
lýsingar um þær jurtir og þau efni
sem eru í vörunum. „Það hefur
alltaf farið svo í taugarnar á mér
að geta ekki lesið mér almennilega
til um hvað er í hinum ýmsu vörum
og var ég staðráðin í því að bæta
úr því en við hverja vöru á síðunni
er að finna lista yfir innihald. Með
því að smella á orðin birtast upp-
lýsingar um hvert efni og hverja
jurt fyrir sig,“ upplýsir Anna Rósa,
sem notar engin paraben-rotvarn-
arefni eða kemísk ilmefni í vör-
urnar. „Það er þó ekki hægt að búa
til hvít krem án rotvarnarefna en
ég nota blöndu sem er samþykkt
af bresku lífrænu vottunarstof-
unni Soil Association og hana má
finna í lífrænt vottuðum kremum
frá Bretlandi.“
Anna Rósa réðst í verkefnið í
byrjun árs, eyddi sumrinu í að tína
jurtir um allt land og er nú komin
með vöruna á markað.
„Ég fékk styrk
frá atvinnu-
málasjóði
kvenna og þá
varð ekki aftur
snúið,“ segir
Anna Rósa innt
eftir því hvað varð til þess að hún
fór af stað. „Ég var lengst að þróa
hvítu kremin en tinktúrurnar og
smyrslin hef ég verið að fást við
síðan ég útskrifaðist árið 1992.“
Anna Rósa segist hafa farið út í að
gera krem þar sem hún hafi ekki
fundið nein dagkrem sem henni
líkaði en í línunni eru dagkrem, 24
stunda krem, græðikrem, hand- og
fóta áburður.
Anna Rósa handhrærir vörurn-
ar sjálf í þar til gerðum pottum.
„Ég notast ekki við neinar vélar
og hleypi engum í framleiðsluna
mína. Ég vil vaka yfir þessu og
þannig stefni ég að því að hafa
framleiðsluna til frambúðar.“
Grasalækningar og upplýsinga-
miðlun eru Önnu Rósu mikið hjart-
ans mál en hún heldur úti vinsælli
facebook-síðu þar sem hún gefur
ráð og svarar spurningum áhuga-
samra en auk þess er hún
með stofu í Heilsuhvoli.
Útsölustaði nýju línunnar
er að finna á forsíðu heima-
síðunnar www.annarosa.is
vera@frettabladid.is
Vakir yfir framleiðslunni
Krem, smyrsl og tinktúrur úr lífrænum íslenskum lækningajurtum komu á markað fyrir skemmstu. Anna
Rósa Róbertsdóttir grasalæknir tínir jurtirnar og vakir yfir framleiðslunni ferlið á enda.
Anna Rósa tínir jurtirnar og hrærir þær síðan sjálf í þar til gerðum pottum.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Ítarlegar upp-
lýsingar um öll
innihaldsefni í
vörunum er að
finna á heimasíðu
Önnu Rósu.
Tinktúrurnar
innihalda jurtir
sem hafa reynst vel
við ýmsum kvillum
sem Anna
Rósa hefur
meðhöndlað
í gegnum
tíðina.
HÚÐHREINSUN er mikilvæg áður en við
setjum á okkur andlitskrem og þá allt árið um
kring eigi kremin að virka.
Sum hver erum við haldin svo óstjórnlegri löngun í súkkulaði að
við hreinlega ráðum ekki við okkur. Förum jafnvel að haga okkur
eins og súkkulaðifíklar, sem er ekki skrítið þar sem sykurinn í súkkulaðinu
örvar sömu heilastöðvar og ákveðin fíkniefni. Ýmislegt má þó gera til að fyrirbyggja
eða draga úr löngun í súkkulaði. Til dæmis með því að borða hnetusmjör, banana,
hnetur eða ávexti í staðinn fyrir súkkulaði. Eða bíða í korter en þá eru líkur á að löngunin hverfi. Svo getur
verið gott að hreyfa sig, því enda þótt hreyfing sé kannski ekki eins fullnægjandi og gómsætt súkkulaði eykur hún
framleiðslu serotónóins við heilann, sem vitað er að gerir menn glaða. Þá hafa sumir reynt dáleiðslu- eða nálastungu-
meðferð til að sigrast á vandanum. Ef ekkert virkar er alltaf ágætt að muna að dökkt súkkulaði er hollara en ljóst.
Glíman við súkkulaði
Ýmis ráð eru í boði til að vinna bug á löngun í súkkulaði.
LAGERSALA
Grensásvegi 8 - 108 Reykjavík
Allar upplýsingar í síma 517-2040
Mikið úrval af ódýrum skóm á alla fjölskylduna
Opið virka daga 12:00 - 18:00 - laugardaga 12:00 - 16:00
dömuskór stærðir 36-42herraskór stærðir 39-47
Glæsilegu
Vanity Fair haldararnir
komnir aftur. 7990 kr.
HAMRABORG 20A • KÓPAVOGI 544-4088 • YNJA.IS