Fréttablaðið - 01.12.2009, Page 51
ÞRIÐJUDAGUR 1. desember 2009 47
FÓTBOLTI Þórunn Helga segir að
Santos-liðið fái gríðarlega athygli
í Brasilíu eftir að Marta og Christ-
ine komu til liðsins.
„Athyglin hefur aukist gríð-
arlega. Öll umfjöllun um liðið
hefur aukist og áhorfendafjöldi
hefur margfaldast. Við höfum
fengið 15.000 áhorfendur á leiki,
sama hvort við spilum á útivelli
eða heimavelli. Það fylgja liðinu
myndavélar hvert sem við förum.
Á æfingum, í rútunni, á flugvöll-
unum og alls staðar. Við fengum
athygli í Santos áður, en ekkert í
líkingu við þetta,“ segir Þórunn
Helga Jónsdóttir sem eyðir góðum
tíma eftir hvern leik í að sinna
stuðningsmönnum Santos-liðsins.
„Ég er klukkutíma að labba tvö
hundruð metra heim, því hundruð
manna vilja fá eiginhandarárit-
anir og láta taka af sér myndir,
en aumingja Marta og Cristine
þurfa að hanga inni í búnings-
klefa langtímum saman og
bíða eftir tækifæri
til að laumast
út um bakdyr,“
segir Þórunn.
- óój
Þórunn Helga eftir hvern heimaleik Santos-liðsins:
Klukkutíma að labba 200 metra
ÞÓRUNN OG
MARTA Þórunn
Helga Jónsdóttir
með bestu knatt-
spyrnukonu heims.
FÓTBOLTI Það er skammt stórra
högga á milli hjá Þórunni Helgu
Jónsdóttur og félögum í kvenna-
fótboltaliði Santos því í kvöld er
komið að bikarúrslitaleiknum í
Brasilíu þar sem liðið mætir Bot-
ucatu og spilar sinn 58. leik á
árinu.
Þórunn Helga er áfram í stóru
hlutverki hjá liðinu og það breytt-
ist ekkert þótt tvær af bestu knatt-
spyrnukonum heims, Marta og
Christine, bættust í hópinn fyrir
síðustu tvö mót tímabilsins.
„Við erum mjög spenntar fyrir
leiknum. Mótherjarnir eru Botu-
catu, sama liðið og við töpuðum
fyrir í úrslitaleik Paulista fyrir
mánuði. Það voru gríðarleg von-
brigði að tapa þeim leik og allir
með blóðbragð í munninum að ná
að hefna fyrir það. Þetta er eina
liðið sem við höfum tapað fyrir
í ár. Eina leiðin til að vinna sæti
í Libertadores á næsta ári er að
vinna bikarkeppnina svo að það er
til mikils að vinna,“ segir Þórunn
sem var að sjálfsögðu með þegar
Santos vann fyrstu Suður-Amer-
íku-keppni kvenna á dögunum.
Þórunn er sátt við sig en við-
urkennir að þetta sé búið að vera
langt og strangt tímabil. „Ég hef
aldrei spilað svona langt og strangt
tímabil en þetta er án efa besta
tímabil mitt á ferlinum, bæði per-
sónulega og frá sjónarmiði liðs ár-
angurs. Við erum líka búnar að
tryggja okkur sæti í fyrstu heims-
meistarakeppni félagsliða kvenna
sem haldin verður hérna í Brasil-
íu á næsta ári í apríl. Það er gríð-
arlegur uppgangur í kvennaknatt-
spyrnunni hér og mikill heiður
fyrir mig að fá að taka þátt í þessu
ævintýri með Santos,“ segir Þór-
unn.
Heimkoma Christine og Mörtu
hefur haft mikið að segja um áhug-
ann á liðinu í Brasilíu. „Það eru
hreinlega forréttindi að spila með
knattspyrnukonum sem hafa náð
svona langt í íþrótt sinni. Fyrstu
dagarnir og fyrstu æfingarn-
ar voru svolítið skrýtnar, en það
vandist,“ segir Þórunn Helga sem
lenti í því fljótlega að vera her-
bergisfélagi Mörtu.
„Við erum vanar að fara inn á
hótel í einbeitingu 24 tímum fyrir
leik og í einum af fyrstu leikjunum
var Marta herbergisfélaginn minn.
Þetta var allt svolítið óraunveru-
legt, en núna eftir nokkra mánuði
nýt ég þess bara mjög að spila með
svona góðum leikmönnum. Það er
alla vega engin tilviljun að þær
skuli vera taldar besta og þriðja
besta knattspyrnukona heims,“
segir Þórunn. - óój
Besta tímabilið
Þórunn Helga Jónsdóttir getur í kvöld orðið brasil-
ískur bikarmeistari með Santos annað árið í röð
NÓG AÐ GERA Þórunn Helga Jónsdóttir sést hér gefa stuðningsmönnum Santos
eiginhandaráritanir. MYND/JÓN SKATPASON
MYND/PEDRO ERNESTO GUERRA AZEVEDO
lta
klingafata
egundir og
cl Pepsí dó
alltaf í leiðinni!
Ho
kjú
2 t
33 598 kr.pk.
ÓDÝRT
ALLA DAGA!
Viðkomustaðir um allt land. Kynntu
þér afgreiðslutíma og síðustu ferðir
fyrir jól á vefnum www.flytjandi.is.
*Hámarksstærð pakka er 0,5 x 0,5 x 0,8 m. Hámarksþyngd 50 kg. Á ekki
við um kæli- eða frystivöru. Greiða verður fyrir pakkann á upphafsstað.
PI
PA
R
\
TB
W
A
T
•
SÍ
A
•
2
2
42
9
2