Fréttablaðið - 01.12.2009, Page 54

Fréttablaðið - 01.12.2009, Page 54
50 1. desember 2009 ÞRIÐJUDAGUR 1 6 7 8 10 13 119 12 15 16 18 21 20 17 14 19 2 3 4 5 BESTI BITINN Í BÆNUM LÁRÉTT 2. lítil blýkúla, 6. 999, 8. skordýr, 9. draup, 11. hreyfing, 12. jakki og pils, 14. krapi, 16. átt, 17. hyggja, 18. tæfa, 20. tímabil, 21. truflun. LÓÐRÉTT 1. vilji, 3. frá, 4. garðplöntutegund, 5. landspilda, 7. naggrís, 10. óvild, 13. hola, 15. matargeymslu, 16. arinn, 19. bókstafur. LAUSN LÁRÉTT: 2. hagl, 6. im, 8. fló, 9. lak, 11. ið, 12. dragt, 14. slabb, 16. sv, 17. trú, 18. tík, 20. ár, 21. ónáð. LÓÐRÉTT: 1. vild, 3. af, 4. glitbrá, 5. lóð, 7. marsvín, 10. kal, 13. gat, 15. búri, 16. stó, 19. ká. „Saffran í Glæsibænum. Ég fæ mér alltaf það sama þar, saffrankjúkling og rauðlauk á teini.“ Björg Alfreðsdóttir, förðunarmeistari hjá MAC VEISTU SVARIÐ? Svör við spurningum á síðu 8 1. Reisa vatnsverksmiðju á Rifi. 2. Golfkylfu. 3. Tíu kjarnorkuver. „Þetta er mikill heiður fyrir okkur,“ segir Brynja Silness, sölustjóri Cintamani, en nýlega birtust myndir af norsku krónprinsessunni Mette- Marit í fatnaði frá fyrirtækinu. Mette-Marit tók þátt í sjónvarps- söfnuninni Care og birtust mynd- ir af henni í norska Séð & heyrt fyrir skemmstu. Söfnunin er hald- in árlega og var prinsessan klædd í dúnvesti þar sem hún bakaði vöfflur til fjáröflunar fyrir utan konungs- höllina. „Við erum með verslun og dreifingaraðila í Noregi og ég held að stílistinn hennar hafi bara valið þetta,“ segir Brynja, en Mette-Marit er sögð vera mikill aðdáandi Cinta- mani og bæði hún og börn hennar nota fatnaðinn í útivistina. Mette-Marit er þó ekki eina prins- essan sem klæðist Cintamani því danska krónprinsessan Mary Don- aldson var í útivistarfatnaði frá fyr- irtækinu í konunglegu skíðaferða- lagi í svissnesku Ölpunum í febrúar síðastliðnum. Á myndum sem birt- ust af henni í dönsku blöðunum Bill- ed Bladet og Se & Hör sést hún í úti- vistarbuxum, peysu og jakka frá Cintamani. Aðspurð segir Brynja vinsældir fatnaðarins fara vaxandi, en fyr- irtækið er einnig með verslun og dreifingaraðila í Danmörku. „Við erum að þreifa fyrir okkur úti og núna í janúar opnum við verslun í Svíþjóð. Frá því í haust höfum við verið með söluaðila í Kanada og svo eru aðilar í Frakklandi sem hafa sýnt okkur áhuga,“ segir Brynja. Prinsessur í Cintamani VINSÆLL FATNAÐUR Útivistarfatnað- urinn frá Cintamani er vinsæll meðal konungsfjölskyldna í Skandinavíu, en norska krónprinsessan Mette-Marit klæddist dúnvesti frá fyrirtækinu í fjáröflun nýverið. KONUNGLEG SKÍÐAFERÐ Mary Donaldsson var í útivistarfatnaði frá Cintamani í konunglegu skíðaferðalagi í svissnesku Ölpunum. Sigurður Guðmundsson og Memfis mafían gerðu allt vitlaust með eld- gömlum íslenskum slögurum í fyrra á plötunni Oft ég spurði mömmu. Sú plata var öll tekin upp á einn míkra- fón eins og vaninn var á sjötta ára- tugnum. Í lok vikunnar er von á tveimur jólalögum frá Sigurði og mafíunni. Nú er reyndar tekið upp með nútímatækni en útgáfuform- ið er fornt: Lögin tvö koma út á lít- illi vinýlplötu. Þetta er að öllum lík- indum fyrsta litla jólaplatan á vinýl síðan SG hljómplötur gaf út jóla- plötu með Stúlknakór Selfoss árið 1973! Eru menn nú endanlega orðn- ir vitlausir? „Já ætli það ekki bara!“ segir Sig- urður og hlær. Hann segir að fólk hafi verið að spyrja sig hvort ekki væri von á „einhverju jóladóteríi“ frá honum og fyrst það hafi bara komið tvö lög hafi verið kjörið að gefa þau út á vinýl-plötu. „Hvað gerir maður annars við tvö lög? Þau hefðu bara orðið undir ef þau hefðu bara komið út í stafrænu formi,“ segir Sigurður. „Svo er umslagið hálfpart- inn eins og merkimiði í laginu og það má alveg nota plötuna sem merki- miða. Aðallega erum við þó bara að minna á að við séum enn þá starfandi. Það er aldrei að vita nema að þetta sé forsmekkurinn að einhverju meiru. Maður veit samt aldrei lengra nefi sínu. Sérstaklega þegar maður býr á Íslandi.“ Hvað sem öðru líður á hann fast- lega von á að koma með nýja plötu á næsta ári. Líklega næsta haust. Jólalögin sem Sigurður syngur á litlu plötunni voru upphaflega með Roy Orbison og Walker Brothers, en hirðskáldið Bragi Baggalútur Skúlason hefur íslenskað þau. Nú heita þau „Það snjóar“ og „Þá komu jólin“. Plötunni fylgir svo vefslóð þar sem hægt er að nálgast lögin á staf- rænu formi. - drg Stór maður með litla plötu ÞAÐ SNJÓAR Sigurður Guð- mundsson og Memfismafían hafa gefið út fyrstu íslensku litlu jólaplötuna síðan 1973! Sverrir Guðnason, þrítugur Íslend- ingur sem búsettur er í Svíþjóð, leikur eitt aðalhlutverkanna í nýjum sjónvarpsþáttum um rann- sóknarlögreglumanninn Kurt Wal- lender. Um er að ræða þrettán myndir, tólf sem fara á DVD-diska og síðar í sjónvarp og svo eina kvik- mynd sem sýnd verður í sænskum kvikmyndahúsum. „Ég hef verið að leika mikið í Svíþjóð, bæði í sjón- varpi og kvikmyndum, og var bara fenginn til að vera með, þetta er bara mjög gott mál“ segir Sverrir í samtali við Fréttablaðið. Sverrir hefur búið mestalla ævi sína í Svíþjóð. Ef undanskilin eru átta ár hér heima. „Ég bjó hérna úti til fjögurra ára aldurs en þá fluttum við heim,“ segir Sverrir en hann er sonur Guðna Jóhannes- sonar, orkumálastjóra. „Við bjugg- um hér þar til ég varð tólf ára en þá snerum við aftur til Svíþjóðar.“ Þessi átta ár höfðu þó mikil áhrif á Sverri því það var hér sem draum- urinn um að verða leikari kviknaði. „Ég lék ungan Ólaf ljósvíking í upp- færslu Borgarleikhússins árið 1989 og eftir það var framtíðarstarfið eiginlega ákveðið,“ segir Sverrir og hlær. En þá aftur að Wallender. Sverrir segir þetta hafa verið mikla vinnu, tökur hafi staðið yfir í eitt og hálft ár. „Ég leik Pontus og þetta hlut- verk er lítið í fyrstu myndunum. En svo vex því ásmegin og í mynd númer tíu, held ég, er Pontus hálf- partinn í aðalhlutverki,“ útskýrir Sverrir en þegar hann hefur safn- að kröftum eftir Wallender-tímabil- ið þá mun hann leika fyrir sænska ríkissjónvarpið. Sverrir vildi ekki gefa upp hvað það væri, slíkt væri ekki tímabært eins og málin stæðu í dag. Sverrir heimsækir Ísland tvisar á ári og segist alltaf hugsa um sig sem Íslending þótt hann hafi verið búsettur svona lengi í Svíþjóð. Og hann útilokar ekki að leika í ein- hverju íslensku verki þegar fram líða stundir. „Það er alltaf draumur, að koma heim og leika. Það virðist allavega alltaf vera eitthvað í gangi á Íslandi.“ freyrgigja@frettabladid.is SVERRIR GUÐNASON: STJARNA Í SÆNSKU SJÓNVARPI Leikur aðalhlutverkið í myndum um Wallender STÓRT HLUTVERK Sverrir mundar byssuna sem Pontus í mynd um Kurt Wallender. Hlutverk Sverris er nokkuð lítið til að byrja með en því vex ásmegin eftir því sem myndunum fjölgar. Stefán Karl Stefánsson heldur áfram að gera mikla lukku í Panta- ges-leikhúsinu sem Trölli í sam- nefndum söngleik eftir barnabók Dr. Seuss. Stefán hefur fengið afbragðsgóða dóma fyrir frammistöðu sína og eins og við mátti búast þá hafa nokkrar stjörnur úr bandaríska afþreyingariðn- aðinum kíkt á sýninguna enda söngleikur- inn sýndur í L.A. Þeirra á meðal var Gwen Stefani úr No Doubt en hún mætti með eiginmanni sínum, Gavin Rossdale og syni þeirra, Kingstone. Eins og Fréttablaðið greindi frá fyrir skemmstu var það útgefandinn skeleggi, Jóhann Páll Valdi- marsson, sem tók kápumyndina af Vigdísi Finnbogadóttur fyrir ævisögu hennar eftir Pál Valsson. Jóhann Páll lét ekki staðar numið þar því hann á einnig fjölmargar ljósmyndir í bók Óskars Guðmundssonar um Snorra Sturluson. Þá myndar Jóhann Páll einnig flestalla rithöfunda Forlagsins en enn hafa þó ekki borist beiðnir frá öðrum for- lögum um að Jóhannn myndi þeirra líka. FRÉTTIR AF FÓLKI

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.