Veðrið - 01.04.1962, Qupperneq 5
KNÚTUR KNUDSEN:
NorðanveðriÖ í nóvember 1961
Um hádegi 21. nóvember síðastliðinn
var lægð 985 millibar út af Vestfjörð-
um og suðlæg átt um allt land. Um 700
km suðvestur af Vestmannaeyjum
mátti sjá á veðurkortinu vísi að nýrri
lægð með nokkra dýpkunarmöguleika.
Hreyfðist sú iægð allhratt norðaustur,
jafnframt því, að lægðin við Vestfirði
grynntist. Klukkan 23 eru lægðirnar
tvær orðnar jafndjúpar, 994 millibar.
Önnur er kyrrstæð og minnkandi fyrir
vestan land, en hin um 200 km suður
af Vestmannaeyjum og vaxandi. Lægð-
in sunnan við land hélt nú áfram að
dýpka, og klukkan 11 þann 22. er hún
yfir Austfjörðum 987 millibar. Á kort-
inu, sem fylgir þessari grein má sjá stað
lægðarinnar og dýpt á 12 tíma l'resti.
Kortið sjálft er frá því klukkan 23 þann 23. nóvember, en þá var veðrið livað
hvassast fyrir norðan.
I>að nýmæli var tekið upp á Veðurstofunni eftir þetta veður, að bréf var sent
til nokkurra manna á óveðurssvæðinu, og þeir beðnir að útvega sem gleggstar
upplýsingar um veðrið og afleiðingar þess.
Þetta tókst vel og bárust mörg fróðleg bréf. Þessum heimildum ber saman við
dagblöðin og skýrslur veðurathugunarmanna, um að flóð, brim og sjógangur
hafi víða ekki orðið meiri síðan 26.-28. október 1934. Þess má geta hér, að í
blöðum frá 1934 má lesa það, að elztu rnenn á Sauðárkróki og Siglufirði töldu,
að sjór hefði ekki gengið jafnlangt á land á þeim stöðurn síðan 1896, og er
ekki ástæða til að rengja það.
1 norðanátt má nota loftþrýstingsmismun á rnilli Bolungarvíkur eða Galtar-
vita annars vegar og Raufarhafnar til að ákvarða með nokkurri nákvæmni
meðalvindhraða fyrir öllu Norðurlandi. Á sama hátt má nota loftþrýstingsmis-
mun milli Grímseyjar og Raufarhafnar til að áætla nteðalvindhraða fyrir austan-
verðu Norðurlandi. Ef svona samanburður er gerður á veðrinu nú og 1934,
kernur það í ljós, að meðalvindhraði fyrir öllu Norðurlandi var svipaður, en
þó þannig, að nú varð hvassara austantil, en aftur lygnara á vestanverðu Norð-
urlandinu. I sólarhring varð í báðtun tilfellum meðal-loftþrýstingsmismunur
VEÐRIÐ
5