Veðrið - 01.04.1962, Qupperneq 17

Veðrið - 01.04.1962, Qupperneq 17
9. mynd. 10. mynd. 9. mynd sýnir Sr—90 i úrkomu i Reykjavik. Ársfjórðungsgildi. Atomic Energy Research Establishment, Harwell). 10. mynd sýnir Sr—90, sem ársfjórðungslega fellur til jarðar i Reykjavih. (Atomic Energy Research Establishment, Harwell). Ending geislavirks úrfalls eftir kjarnorkusprengingar er einkum háð tvennu: Sjálfkrafa eyðingu hinna geislavirku efna og því, hve lengi geislarykið lielzt á lofti. Með því að mæla ákveðið úrfallsefni með langan helmingunartíma, eins og t. d. Sr—90, má losna við áhrif eyðingar hinna geislavirku efna og fá beinar upp- lýsingar um endingu geislaryksins í loftinu. 9. og 10. mynd sýna niðurstöður af mælinguih, sem gerðar hafa verið í Bret- landi á Sr—90 í úrkomu, sem Veðurstofan hefur safnað á Rjúpnahæð við Reykjavík. Niðurstöðurnar eru birtar í Veðráttunni. Niðurstöður áranna 1960 og 1961 sýna, að meira geislaryk berst niðut' úr heiðhvollinu fyrri hluta ársins en að liaustinu, og virðist það vera mest á öðrum ársfjórðungi. 10. mynd sýnir, hve niikið Sr—90 fellur á hvern fermetra lands á hverjum ársfjórðungi. Þetta má einnig mæla með því að ákveða Sr—90 í jarð- vegi. Slíkar ákvarðanir hafa verið framkvæmdar á rannsóknarstofu Kjarnorku- nefndar Bandaríkjanna í New York á jarðvegssýnishornum, sem tekin hala ver- ið í túni tilraunastöðvarinnar að Keldum við Reykjavík. Niðurstöðurnar gefa til kynna heildarmagn af Sr—90 á einum fermetra lands og eru sem hér segir: 27/c 1957 10 600 pc/m2 3/8 1958 13 000 - 20/(i 1959 25 100 - Þessar tölur gefa til kynna, að frá 3. ágúst 1958 til 26. júní 1959 hafi fallið um 12 000 pc á fermetra. Niðurstöður af mælingum á Sr—90 úrfalli með úr- kontu sem sýndar eru á 10. mynd gefa til kynna um 9000 pc/m2 á sama tímabili og er samsvörun þessara niðurstaðna eins góð og liægt er að vænta. HEIMILDIR: S. Glasstone: The Effect of Nuclear Wepons. (United States Atomic Energy Commission, 1957). Framhald á nœstu síðu. VEÐRie 17

x

Veðrið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Veðrið
https://timarit.is/publication/369

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.