Veðrið - 01.04.1962, Blaðsíða 19

Veðrið - 01.04.1962, Blaðsíða 19
Margoft hefur það komið fyrir í vatnavöxtum, að Gufafljótið ltefur ffætt yfir varnargarðana og rofið skörö í þá, og oft hafa afleiðingarnar verið skeffi- legar. Árið 1887 flæcldi það t. d. yfir landsvæði, sent er álíka stórt að flatarniáli og fimmtungur lslands, og talið er að tæp ein milljón manna hafi látið lífið, en enn fleiri munu þó hafa farizt af völdum hungursneyðar, er fylgdi í kjölfar flóðsins. Af öðrum rnjög mannskæðum flóðum í ám má nefna flóð í Yangtzekíang árið 1911, en þá munu um 100.000 manns hafa drukknað. Erfitt er að gera sér í hugarlund þær hörmungar, sent svo mannskæðum flóðum fylgja, en sem betur fcr eru þau sjaldgæf. AJlmiirg dæmi eru þess liins vegar, að nokkrar þúsundir manna hafi farizt í flóði og að tugir og jafnvel hundruð jtúsunda hafa orðið fyrir meira eða minna tjóni. Bandaríska veðurstofan og raunar fleiri aðilar í Bandaríkjunum hafa um allmörg ár reynt að meta til fjár tjón af völdum flóða Jtar i landi. Niður- stöðum mismunandi aðila ber ekki fyllilega sarnan, og er jtað að vonum, því að verkefnið er erfitt. Ekki mun |jó fjarri sanni, að meðaltjón á ári sé einhvers staðar milli 200 og 500 milljónir dollara, en |>aö samsvarar milli 8.600 og 21.500 milljónum íslenzkra króna. Er hér um gífurlegar fjárhæðir að ræða. VEÐRIÐ 19

x

Veðrið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Veðrið
https://timarit.is/publication/369

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.