Veðrið - 01.04.1962, Side 24
farið eftir hitamælingum í Sigölduveri við Tungnaá suntarið 1959. Þetta svæði
ætti því að vera byggilegt vegna sumarhita, en vetrarhörkur og vorþurrkar eru
aftur til óhagræðis. Auk þess er Hekla óþægilega nálæg, jarðvegur sendinn og
gjarn að blása upp.
Hitasvæðið á Suðurlandsundirlendi tengist hitasvæði Reykjanesskaga á tveim
stöðum, með sjónum og yfir Mosfellsheiði. Hún ætti að vera allvel fallin til land-
náms. Reykjanesskaginn er aftur á móti hrjóstrugri en hitinn bendir til, vegna
hrauna.
Borgarfjörður er eitt stærsta svæðið með 10 stiga júlíhita og meira, og allt
vestur um Snæfellsnes og Breiðafjörð nær hitinn alls staðar því marki við
sjóinn. Á Vestfjörðum eru þessi hitasvæði mjög lítil að flatarmáli og liverfa alveg,
þegar komið er norður fyrir Djúp. Líkur benda til þess, að 10 stiga júlíhiti sé
innst í Steingrímsfirði, þó að ekki sé neinar mælingar að styðjast við þar um
slóðir. Aftur er greinilega kaldara í Vestur-Húnavatnssýslu samkvæmt mæl-
ingum í Hrútafirði og Miðfirði. 1 Víðidal mun vera lítið svæði með 10 stiga hita,
þó nær það varla út að Lækjamóti, þar sem hiti var eitt sinn mældur í nokkur
ár. Hlýlegra er austar, í Vatnsdal, Svínadal og Langadal. Þá tekur Skaga-
fjörðurinn við, en þar virðist hlýrra að austanverðu eins og víðar við norðlenzka
firði. Til dæmis er nærri 10 stiga júlíhiti á Hraunum í Fljótum, og er þá vafa-
laust hlýrra í Stíflunni, enda blómleg sveit. Við Eyjafjörð eru talsverð hlýinda-
svæði, mest í Eyjafirði sjálfum. í Suður-Þingeyjarsýslu er mikið land með sumar-
hlýju, og nær það út með Skjálfandaflóa að austan, en vestan við Skjálfanda, og
allt inn fyrir Sand í Aðaldal, er minna en 10 stiga júlíhiti. Mývatnssveit telst með
þessu hlýindasvæði, og er það sæmilega staðfest með mælingum í Reykjahlíð.
Um hitann i Axarfirði er rninna vitað, en þar er þó teiknað talsvert hlýinda-
svæði, enda er birkiskógur og kjarr þar allmikið og bendir til veðursældar. Nú
tekur við mikið flæmi, Melrakkaslétta, Þistilfjörður, Langanes og Bakka-
fjörður, þar sem ekki sýnist líklegt, að hitinn nái neins staðar 10 gráðum. í
Vopnafriði er svo aftur hlýrra, og sést það á mælingum á Hofi, en álitlegur
birkiskógur er þarna líka.
Þegar haldið er áfram lengra suður, er komið á allstórt hlýindasvæði á Fljóts-
dalshéraði. Það nær þó greinilega ekki út að sjó, en hlýjast mun þar í Hallorms-
staðaskógi. Á Austfjörðum mun ýmis hlýindasvæði inni í fjörðunum, einkum
sólarmegin, en þau verða lítt áberandi á kortinu. Þá taka við góðsveitir Austur-
Skaftafellssýslu, Hornafjörður, Suðursveit og fleiri.
Annað stærsta lilýindasvæði landsins er milli Vatnajökuls og Mýrdalsjökuls
Það kemur þó ekki að miklum notum á sandflæmunum, þar sem jökulvötnin
byltast fram og enginn er óhultur. En í jökulkrókunum upp af söndunum eru
sennilega einhverjir veðursælustu blettir landsins, því að þar vex birki sums
staðar upp í 5—600 metra hæð yfir sjó.
Nú skal minnzt lítillega á hin víðáttumiklu flæmi, þar sem júlíhitinn er 8—10
stig. Þau eru meira en þriðjungur landsins. Gróður er þarna ekki mikill,
en þó eru þar þýðingarmikil afréttarlönd, svo sem Arnarvatnsheiði og heiðarn-
ar upp af Þingeyjarsýslum. Einnig eru mikil láglendisflæmi á Skaga og Mel-
24 — VEÐRIÐ