Veðrið - 01.04.1962, Qupperneq 26

Veðrið - 01.04.1962, Qupperneq 26
norðaustan til á landinu og tók víða íyrir fjárbeit. Nokkuð dró úr hörkunum undir mánaðamótin, en síðan kólnaði á ný. Fyrstu vikuna í desember hélzt stöðugt NA-átt og bætti á snjóinn norðan- Iands og austan. Miðbluti mánaðarins var tiltiilulega hlýr. Ekki var þó nægileg hláka til að snjóinn tæki norðanlands, heldur mun hann hafa hlaupið í hjarn og svell, svo að jarðbönn héldu áfram. Milli jóla og nýárs gerði enn kulda- kafla, þann mesta á vetrinum í 500 og 1500 m hæð. Um áramótin breytir uni veðurfar. Lægðir fara um nálægt landinu og valda stormum og ógæftum, en hitasveiflurnar eru ekki áberandi miklar, því að loftið, sem hingað berst ei hvorki frá mjög suðlægum né norðlægum stöðum. Þó lagði hingað heldur kald- an loftstraum frá hafinu við Svalbarða upp úr miðjum mánuðinum. 1 febrúar var fádæma óstillt veður og stormasamt. Hitasveiflur voru stórar, því að lægðirnar, sem gengu austur yfir landið voru víðáttumiklar og drógu til Iandsins loft frá fjarlægum slóðum. Síðustu vikuna stilllist þó veðrið, því að mikil hæð breiddist ylir landið og nágrenni jress. Þ. 26. varð loftþrýstingur meiri í Reykjavík en áður hefur mælzt þar, eða 1051.1 millibör. í lok mánaðarins vék lægðin vestur yfir Grænland og settist þar að um sinn. Allan fyrri hluta marz var norðlæg átt og sífelldir kuldar. Fyrst í stað kom loftið norðan með austurströnd Grænlands, en sfðar frá hafinu við Sval- barða. Þann 15. er farið að stillast, og þá um morguninn mældist mesta frost sem komið hefur hér á landi síðan árið 1918. Frostið varð 33 stig í Möðrudal og 30 á Grímsstöðum, en 1918 komst j>að í 38 slig á Grímsstöðum. Eins og sjá má á línuritinu hér að oían var frostið í 1500 m hæð yíir Keflavík aðeins um 12 stig, og samanburður við háloftastöðvarnar á Tobinhöfða, Jan Mayen og í Færeyjum gefur til kynna, að i sömu liæð yfir Möðrudalsöræfum hafi verið lítið kaldara. Nokkru neðar mun liafa verið þar heldur minna frost, svo að þarna hafa verið a. m. k. 20 stiga hitahvörf um morguninn. Þann- ig er ástatt yfirleitt, Jregar kaldast verður á veturna og nóttunni. Jörðin geislar frá sér hitanum út í geiminn og tekur ekki á móti neinum varma að utan J staðinn. Sé Jjykkt loft, endurkasta skýin miklu af geisluninni aftur til jarðar, líkt og gler í vermireit. Tær vatnsgufa hefur einnig nokkuð af jjessum hæfileika til að endurkasta varmageislun. Kólnun landsins á nóttunni er ennfremur háð eðli yfirborðsins. Sumir lilut- ir sleppa frá sér eða geisla hitanum betur en aðrir. Einnig leiðist liiti að neðan misjafnlega vel upp til yfirborðsins. Snjórinn er mjög góður geislari, og hann leiðir h'ka illa hita. Af jjcim sökum verða frosthörkur að jafnaði mestar, jjegar alsnjóa er. En hið kalda loftlag neðst er Jjunnt, svo að varmamagnið, sem tapast, er lítið. Það vinnst jjví fljótt upp, jjegar sólin tekur að skína á daginn. llvítur snjórinn endurkastar að vísu miklu af sólargeislunum, en gleypir þó nóg í sig til að hita upp aftur kakla lagið, sem er ekki nema nokkrir metrar á þykkt, jjcgar logn er. Ef nokkur gola er að ráði, hrærir hún í loflinu, svo að jjað kald- asta Jjyrlast upp frá jörðinni og hlýrra berst niður í staðinn. Hin daglega 26 --- VEÐRIB

x

Veðrið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Veðrið
https://timarit.is/publication/369

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.