Veðrið - 01.04.1962, Page 28

Veðrið - 01.04.1962, Page 28
varð kaldasti mánuður vetrarins bæði við jörð og eins ofar. í 1000 m hæð var hitastigið — 8.0° C. Frá ársbyrjun 1954 hefur aðeins einu sinni mælzt lægri meðal- hiti mánaðar í þeirri hæð, en það var janúar 1956. YFIRLIT ARSINS 1961. A árinu varð einkennishitinn nálægt meðallagi undanfarinna ára. Svipað er um meðalhæð frostmarks írá sjó. Hún var 920 m. Hitafallið var einnig við meðallag, eða 5.64 gráður á kílómetra. Hinsvegar varð hitasveiffan óvenju- lega lítil, aðeins 9.5 gráður. Kemur þar til lágur hiti sumarmánaðanna og lilut- fallslega hlýir vetrarmánuðir. í 1000 m liæð var júlí hlýjastur með 4.0 stig, en desember kaldastur með — 5.5. Maí var tiitölulega hlýjasti mánuður árs- ins. I'rostmark var þá í 1380 m hæð og liefur ekki orðið hærra í þeim mánuði undanfarin sjö ár. Hins vegar varð frostmarkshæðin í júní minni en áður, aðeins 1260 m, eða á annað hundrað metrum lægri en í maí. Hlákurnar um sumarið voru litl- ar eins og frá er skýrt í síðasta hefti Veðursins. Fer hcr á eftir hláku- tafla ársins. Sú breyting er nú gerð, að hláku- magnið er talið í grdöudögum og verður svo framvegis. Einn gráðu- dagur er, þegar hitinn er ein gráða allan sólarhringinn. Jafn mikið hlákumagn er, ef 6 stiga hiti væri í 4 stundir, o. s. frv. Upphaflega notaði ég orðið gráðudægur um magn hláku, og þóttist ég með því girða fyrir misskilning. En orðið hefur ekki reynzt heppilegt, helzt vegna þess, að í veðurfræði og skyldum vísindagreinum er sólarhringurinn talinn eðli- leg tímaeining, og er þá algengt, að orðið dagur sé látið tákna sólarhring eins og hér er gert. Verða lesendur að gæta þess, að einn gráðudagur jafngildir tveimur gráðudægrum. Hlakur 1961, mœldar i graðudögurn. Við jörð Janúar—maí ................. 532 Júní—september ............ 1181 Október—nóvember............ 334 Samtals 2047 500 m 1000 m 1500 m 2000 m 299 117 40 13 722 384 168 71 199 88 42 23 1220 589 250 107 28 — VEÐRIÐ

x

Veðrið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Veðrið
https://timarit.is/publication/369

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.