Fréttablaðið - 03.12.2009, Blaðsíða 21
POTTÞÉTTAR ÆVISÖGUR
SKRUDDA
Flosi Ólafsson var einn ástsælasti leikari þjóðarinnar í
áratugi en var jafnframt afkastamikill rithöfundur og
þýðandi. Hann var leiftrandi húmoristi og er þessi bók
skýr vottur um það. Hér fer Flosi á kostum um æsku sína
í miðbæ Reykjavíkur, ýmis dægurmál, baráttuna
við skriffinnskubáknið o.fl.
Frábærlega skemmtileg bók!
ÓTRÚLEGT LÍFSHLAUP ÍSLENSKS
SÍBROTAMANNS
Bók sem hlýtur að vekja áhuga allra.
– Einar Már Guðmundsson, rithöfundur
Einstæð frásögn úr afkimum samfélagsins.
– Sigurður G. Tómasson, útvarpsmaður
Það liggur í loftinu er í senn ævisaga hjónanna
Birnu Óladóttur frá Grímsey og Dagbjarts Einarssonar
frá Grindavík og að hluta saga byggðarlaganna sem
fóstraði þau. Höfundurinn, Jónas Jónasson, vefur
þessa tvo þræði saman af snilld. ... Það er augljóst að
Jónas Jónasson hefur fengið hjónin til að segja
nánast allt um líf sitt og ástir.
– Reynir Traustason, DV
Bókin er frábær.
– Bragi Kristjónsson, bóksali
Epískt þrekvirki og grenjandi húmor.
– Tolli, myndlistarmaður
Þegar inn í fléttast svo kostulegar frásagnir af skemmtanalífi
og uppátækjum þessa mislita söfnuðar getur útkoman ekki
orðið önnur en bráðskemmtileg lesning og um leið fróðleg
heimild um hugsunarhátt og lífsstíl ungra róttæklinga á
sjöunda áratug síðustu aldar.
– Sveinn Guðjónsson, tónlistarmaður