Fréttablaðið - 03.12.2009, Side 44
3. DESEMBER 2009 FIMMTUDAGUR
Ekki fer á milli mála við hvaða lit flokkur
Steingríms J. Sigfússonar kennir sig.
Grænn jakki, græn skyrta og grænt
bindi klæða enda hinn rauðbirkna Stein-
grím einkar vel.
Dökkblá jakkaföt, dökkblátt bindi, hvít
skyrta og blá tjöld Alþingis í baksýn.
Bjarni Benediktsson svíkur ekki lit.
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson
leggur áherslu á að vera með falleg og
litskrúðug hálsbindi.
Hér um árið var ekki þverfótað
fyrir mönnum í jakkafötum á leið-
inni á mikilvæga fjármálafundi.
Eitthvað hefur þeim fækkað sem
ekki geta farið út úr húsi öðruvísi
klæddir en í jakkafötum og með
bindi en þó klæðast enn margir
jakkafötum við störf sín. Alþingis-
menn voru á vordögum leystir
undan þeirri skyldu að vera með
hálsbindi í vinnunni, en af þeirri
kvöð höfðu alþingiskonur aldrei
haft neinar sérstakar áhyggjur.
Steingrímur, Sigmundur og Bjarni
eru samt oftast með bindin sín um
hálsinn og í jakkafötunum enda
ekki um margt annað að velja,
nema kannski stakan jakka, ef þeir
ætla sér að vera teknir alvarlega
í starfi. Þeir formennirnir eiga til
að velja fötin sín og þó sérstaklega
bindin eftir flokkslínum og þeir
eru heppnir með það hvað þessar
línur fara þeim vel. - bb
Í uppáhaldslitunum í vinnunni
● GÆÐI OG NOTAGILDI Á KOSTNAÐ ÚTLITS Í síðari heimsstyrjöldinni varð al-
mennt mikill vöruskortur, sem hafði meðal annars áhrif á klæðnað og tísku. Þá var ekki óal-
gengt að karlmenn klæddust gömlum einkennisbúningum og um það leyti komust líka hattar
aftur í tísku. Gæði og notagildi náðu yfirhöndinni á kostnað útlits og ekki var óalgengt að mis-
munandi efni væru notuð í buxur og jakka vegna skorts á hráefni. Þá voru nælonskyrtur
kærkomin tilbreyting frá bómullarskyrtum, þar sem þær voru fljótar að þorna og þurfti ekki
að strauja. Heimild: visindavefur.is.
Enginn þarf að fara í jakkafata-
jólaköttinn, hvorki stórir né
smáir, breiðir né mjóir. Mín-
erva Jónsdóttir, deildarstjóri í
Debenhams, lofar því að þar
fáist jakkaföt handa öllum. Og
að sjálfsögðu í nýjustu tísku.
„Jakkaföt eru mest dökk núna,
mikið svart,“ segir hún. „Skyrt-
urnar eru hefðbundnar, hvítar og
svartar en fjólublátt aðalliturinn
fyrir þessi jól. Það er þessi fallegi
dökkfjólublái vetrarlitur, bæði á
skyrtum og bindum. Bindin eru
bæði einlit og mynstruð og við
erum með margar útgáfur og
skyrturnar fást líka bæði einlitar
og röndóttar.“
Mínerva segir jakkaföt seljast
vel fyrir jólin. „Karlmenn kaupa
sér jólaföt og salan er mjög góð.
Við aðstoðum viðskiptavinina við
að velja fallegustu fötin sem klæða
hvern og einn sem best.“
Í Debenhams fer enginn í jakka-
fataköttinn því þar fást jakka-
föt af öllum stærðum og gerðum.
„Við erum með mjög breiða línu,
bæði venjuleg jakkaföt og að-
sniðin frá mörgum merkjum. Við
eigum stærðir frá 44-64 og 25 upp
í 118 fyrir styttri menn og lengri.
Stóra menn vantar oft jakkaföt,“
segir hún og bætir við: „Svo erum
við með breitt úrval af skyrtum,
bæði með venjulegum ermum
og ermalengri fyrir handleggja-
langa menn, aðsniðnar og beinar.
Skyrtur eigum við í stærðum frá
37-51 sentrimetra í hálsmál,“ segir
Mínerva og bendir enn fremur á að
25 prósenta afsláttur sé af öllum
jakkafötum til áramóta. „Ódýrustu
jakkafötin eru á 29.900 krónur og
svo er 25 afsláttur,“ segir Mínerva
svo allir ættu að geta verið fínir
yfir hátíðarnar.
Eitthvað til fyrir alla, óháð
hæð, þyngd eða efnahag
Mínerva Jónsdóttir hjá Debenhams aðstoðar viðskiptavini við að finna hin full-
komnu jakkaföt. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
FELIX jakkaföt
44.900 kr.
LINDBERGH skyrta
9.990 kr.
ESPRIT bindi
7.990 kr.
ESPRIT jakki
37.990 kr.
(buxur seldar stakar 21.990 kr.)
ESPRIT skyrta
14.990 kr.
ESPRIT bindi
7.990 kr.
LINDBERGH jakkaföt
29.990 kr.
BRUUN & STENGADE
skyrta
14.990 kr.
CONNEXION bindi
6.990 kr.
FELIX jakkaföt
44.900 kr.
LINDBERGH skyrta
9.990 kr.
CONNEXION bindi
4.990 kr.