Fréttablaðið - 03.12.2009, Page 88
DREIFING: dreifing@posthusid.is
EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN OG SKIPTIBORÐ: 512 5000
Mest lesið
VISIR.IS
Ritstjórn: 512 5313, Fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja
FRÉTTIR AF FÓLKI
Norski seðillinn
Þeir sem búa svo vel
að eiga seðla gætu hafa
rekið augun í skemmti-
lega staðreynd. Í umferð eru nefni-
lega seðlar sem hafa verið gefnir út í
bankastjóratíð Sveins Harald Öygard.
Falleg rithönd Norðmannsins prýðir
nú íslenska peningaseðla. Þá er
eftirtektarvert að Öygard skrifar
einn undir seðlana, en venjan er
að bankastjórar séu fleiri. Norsku
seðlarnir eru því tímamótaseðlar.
Jogastudio.org
opnum í
Kauptúni
eftir
daga
2
Draumalandið í
Amsterdam
Heimildarmyndin
Draumalandið eftir
Þorfinn Guðnason
og Andra Snæ
Magnason var
frumsýnd á
Alþjóðlegu heimildarmyndahátíðinni
í Amsterdam (IDFA) sem lauk um
síðustu helgi. Þetta var í fyrsta sinn
sem myndin er sýnd utan Íslands.
Hátíðin er sú stærsta og virtasta í
heimi á sviði heimildarmynda og
var þeim Þorfinni og Andra Snæ
vel tekið á hátíðinni. Þeir svöruðu
spurningum að lokinni sýningu og
vakti myndin mikla athygli á meðal
gesta, enda var uppselt á allar
sýningarnar. Draumalandinu hefur í
framhaldinu verið boðið á fjöl-
margar kvikmyndahátíðir og verður
myndin seld til erlendra sjónvarps-
stöðva.
Útvarp Saga í kvikmynd?
Úti um allan bæ eru menn að skrifa
handrit að kvikmyndum framtíðar-
innar. Margir hafa fengið handrits-
styrki frá Kvikmyndamiðstöð Íslands.
Þar á meðal eru aðstandendur
myndar sem lofar mjög góðu. Hún
fjallar um tvo þáttastjórnendur á
útvarpsstöð sem svipar til Útvarps
Sögu. Styrmir Sigurðsson kvikmynda-
gerðarmaður skrifar handritið með
tveimur af frægustu grínistum lands-
ins, þeim Jóni Gnarr og
Þorsteini Guðmunds-
syni. Þorsteinn er síðan
með aðra kvikmynd í
smíðum sem hann er að
skrifa með Reyni Lyngdal.
- fb, drg
1 Krafin um tvær og hálfa
milljón fyrir að stinga barn
2 Lygafrétt um mannafitusölu
3 Skókastari fékk að smakka
eigið meðal
4 Hugsanlegt að Íslendingar
verði ákærðir í mansalsmálinu
5 Breskir stórmarkaðir komnir í
kampavínsstríð